Ögurstund hjá Kimi Räikkönen

Kimi í IndianapolisBandaríski kappaksturinn er Kimi Räikkönen einkar mikilvægur ætli hann sér að vera lengur með í keppninni um heimsmeistaratitil ökuþóra.  

Verði hann fjarri verðlaunapalli - en báðir McLarenmennirnir á honum - er hann á góðri leið með að missa af lestinni.

Erfitt gengi McLaren í fyrra og hitteðfyrra eru megin ástæður þess að Räikkönen hélt á vit Ferrari við brottför Michaels Schumacher.

Rauðlitu fákarnir ítölsku virtust og mun betri silfurörvunum ensk-þýsku og Ferrari traust lið. Hann virtist búinn að glata trúnni á að hann yrði meistari með McLaren.  Eftir þrjú fyrstu mót ársins deildi Räikkönen forystu í keppni ökuþóra með McLarenþórunum Fernando Alonso og Lewis Hamilton. Mikið til vegna sigurs í fyrsta móti og þriðja sætis í tveimur næstu.

En síðan hefur Ferrari farið aftur í samanburði við McLaren og hann fallið í fjórða sæti, 21 stigi á eftir Hamilton og 13 á eftir Alonso.  Takmark Räikkönen hlýtur því að vera að eiga betra mót í Indianapolis en undanförnum þremur. Honum er mikilvægt að ná góðri ræsingu og geta síðan spilað hindranalaust úr keppnisáætlun sinni. Áætlanir ökuþóra í kringum hann koma vitaskuld ekki í ljós fyrr en eftir að stað er komið, hvenær fyrstu þjónustustopp eiga sér stað.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband