Sebastian Vettel hjá Red Bull þarf aðeins eitt stig úr síðustu fimm
mótunum sem eftir eru til að verða heimsmeistari ökumanna í ár. Erfitt
er að ímynda sér að það gerist ekki í Suzuka í Japan á sunnudaginn
kemur. Í pottinum eru enn samtals 175 stig fyrir sigur í mótunum fimm.
Það yrði annar titill Vettels í röð og þar með verður hann
yngsti ökumaðurinn í sögu formúlu-1 til að verða tvöfaldur
heimsmeistari. Hann verður og níundi ökumaðurinn til að vinna titil tvö
ár í röð.
Í sögu sinni hefur Red Bull unnið 24 mót sem er lítið í
samanburði við stórliðin sögufrægu. Þannig hefur Ferrari unnið sigur 216
sinnum og McLaren 173 sinnum og Williams 113 sinnum.
Enginn ökuþór í sögunni hefur unnið kappakstur í formúlu-1 jafn oft og
Michael
Schumacher hjá Mercedes sem staðið hefur á efsta þrepi verðlaunapalls
91 sinni. Af núverandi keppendum hefur Fernando Alonso hjá Ferrari
komist 27 sinnum upp á það þrep. Í sögu formúlunnar hefur skoski
ökuþórinn Jackie Stewart staðið þar jafn oft en aðeins fimm ökumenn hafa
oftar unnið kappakstur en þeir tveir.
Vettel hefur unnið 19 mót,
Lewis Hamilton hjá McLaren 16 og 11 kappakstra hafa Rubens Barrichello
hjá Williams, Jenson Button hjá McLaren og Felipe Massa hjá Ferrari
unnið.
Vettel hefur unnið níu mót á árinu af þeim 14 sem lokið er
og af síðustu 18 mótum í röð hefur hann unnið 12. Schumacher hefur unnið
flest mót á einni og sömu vertíðinni eða 13 sem liðsmaður Ferrari árið
2004.
Schumacher  er eini ökumaður sögunnar sem unnið hefur 10
mót eða meira á einni og sömu keppnistíðinni. Hann vann einnig 11 sinnum
árið 2002.
Halda stjórnendur Ferrariliðsins, með fíflalátum sínum í dag, að fólk sé fífl? Hafa þeir engan lærdóm dregið af skandalnum í Austurríki 2002. Eru þeir svo barnalega einfaldir að halda að þeir sleppi með atvikið í Hockenheim í dag, þegar Felipe Massa var skipað að hleypa Fernando Alonso fram úr?
Að reyna að halda því fram - eins og þeir rembast þó við sem rjúpa við staur - að það hafi ekki verið liðsfyrirmæli þegar Massa var skipað,  segjum beðinn, að hleypa Alonso fram úr er hrein og klár móðgun. Móðgun við íþróttina, móðgun við unnendur hennar og áhorfendur. Fíflalæti.
Ég held þeir hafi ekkert haft að óttast. Alonso hafði ekki burði til að komast fram úr Massa við eðlilega keppni og ekki virtist Sebastian Vettel hjá Red Bull það nærri að hann ógnaði sigri Ferrari. Fyrst hefði hann þurft að komast fram úr Alonso, sem hefði ekki verið neinn leikur, áður en svo reyndi við Massa.
Nei, Red Bull bílarnir höfðu einfaldlega ekkert í Ferrari að gera í dag. Ég held þegar öllu er á botninn hvolft að fyrirmælunum hafi einungis verið beitt til að styrkja stöðu Alonso í keppninni um heimsmeistaratitil ökumanna. Með öðrum orðum, úrslitunum var hagrætt sem er andstætt öllu íþróttasiðferði. Alonso fékk gefins 5 stig með þessu. Og Ferrari getur ekki úr þessu haldið því fram að jafnræði sé með ökuþórunum. Ætli hafi nokkurn tíma svo verið.
Svei mér þá, ég hélt Ferrari hafi lært lexíu í Austurríki 2002. Er Rubens Barrichello var á leið til öruggs sigurs en var síðan skipað að víkja svo Schumacher gæti sigrað og styrkt stöðu sína í titilkeppninni. Það dæmi þótti svo brútalt á miðri keppnistíð, ekki síst vegna yfirburðastöðu Schmacher í stigakeppninni þá, að Ferrari var hart refsað. Liðið þótti sekt af því að hafa komið óorði á formúlu-1 með framferði sínu 2002. Vegna þess voru settar reglur er banna liðsfyrirmæli.
Alonso er uppáhalds ökuþór minn og því þykir mér leitt hvaða leik hann lék í dag. Það er blettur á sigri hans, blettur á ferlinum. Hann á aðild að málinu því hermt er að mikil ltalstöðvarsamskipti hafi átt sér stað milli bílanna og stjórnborðsins í nokkra hringi áður en Massa vék. Þau verða væntanlega birt þegar málið verður frekar krufið hjá íþróttaráði FIA.
Bernie Ecclestone er sagður íhuga að hætta
formúlukappakstri í Mónakó. Hann segir furstadæmið á Frakklandsströnd
ekki borga nógu mikið fyrir mótið.
Keppt hefur verið í formúlu-1 í Mónakó frá árinu 1955 og þætti mörgum sjónarsviptir ef hætt yrði keppni þar. Það má vel vera rétt en mér yrði nokkuð sama. Ekki síst ef tækist að finna nýja kappakstursbraut þar sem keppni gæti verið skemmtileg og spennandi.
Sjaldan eða aldrei hefur mér fundist keppni í Mónakó spennandi. Eftir að tímatökum er lokið hefur mátt með góðri vissu segja til um úrslitin. Spurningin hefur einungis verið hvort mönnum yrðu þar á mistök er stokka myndu upp röðina. Því myndi ég alls ekki sjá eftir mótinu þaðan - eins og ég hef reyndar nokkrum sinnum bloggað um dagana.
Ecclestone
hefur verið áfram um að koma keppni til nýrra landa, svo sem í Asíu nær og fjær en þar hafa yfirvöld reynst liðugri með budduna en einkaaðilar í t.d. Evrópu og Bandaríkjunum. Þar vilja margir fá formúlukappakstur til sín.
En þar sem í mesta lagi er hægt að hafa 20 mót á ár vantar Ecclestone eiginlega að losna við nokkur evrópsk mót. Því þykir nú til greina koma að slaufa Mónakó - hvort sem mikil alvara er í þeim yfirlýsingum hans eða ekki. „Ég held það sé mögulegt að formúlan lifi án Mónakó,“ hefur vefmiðillinn  Sport1 eftir honum. „Þeir borga ekki nóg,“ bætir hann við en hingað til hefur ekki þótt skorta á ríkidæmið í Mónakó eða fréttir farið af fjárþröng.
Á næstu tveimur árum bætast við mót í Indlandi og Bandaríkjunum og Ecclestone hefur verið að þreifa fyrir sér með mótshald í Rússlandi og Suður-Afríku. Og því er Mónakó ekki eina Evrópumótið sem er í hættu. „Evrópumenn verða að borga meira fyrir mótin, annars förum við eitthvað annað með þau,“ segir Ecclestone í viðtalinu.
Í þessu sambandi skýtur sjálfsagt skökku við að hann hefur nú stofnað til tveggja móta ár hvert á Spáni og hefur verið að díla við aðila á Rómarsvæðinu um að efna til formúlukeppni í og við höfuðborgina ítölsku. Það yrði annað mótið þar í landi því ekki er útlit fyrir að mótshaldi verði hætt í Monza.
Svo hefur hann um margra ára skeið haft í hótunum við breska kappaksturinn en endaði það svo með því að gera samning til 15 ára um keppni í Silverstone.
Því er ég hræddastur við að ekki verði tekið mikið mark á yfirlýsingum hans um Mónakó. Og að sú ósk mín um að keppni verði hætt þar rætist ekki.
Það er í mannlegu eðli að reyna fegra jafnan stöðu sína. Til þess
hefur Ferrariliðið gripið nú. Í stað þess að vera í öðru sæti í
stigakeppni bílsmiða hefur það reiknað út að liðið væri efst, ef beitt
væri sömu stigagjöf í formúlu-1 og í fyrra.
Og ekki nóg með að það
væri í efsta sæti í stigakeppni liðanna, því Ferrari segist einnig
myndu vera í efsta sæti í keppni ökuþóra að loknum fimm fyrstu mótum
ársins ef áfram hefði verið stuðst við sama kerfi og í fyrra, en þá var
átta fremstu ökumönnum gefin stig og mun færri en nú.
Stigagjöfin
hefur tvisvar tekið breytingum á öldinni en árið 2003 var byrjað að
veita átta fremstu stig í stað sex áður. Eftir sem áður hlaut
sigurvegarinn þó aðeins 10 stig. Í ár fær hann 25 stig og fimmti maður
10. Nýjasta stigagjöfin verðlaunar þó sigur sérstaklega því talsvert
stigabil er í annað sætið.
Í stað þess að vera þremur stigum á eftir
McLaren nú í keppni liða, eða 119:116, væri það með 47 samkvæmt gamla
kerfinu og jafnmörg og McLaren. Og Fernando Alonso væri efstur í keppni
ökumanna með 28 stig og Jenson Button hjá McLaren næstur með 27.
Vertíðin
í fyrra fór hörmulega af stað hjá Ferrari en með því að beita
stigagjöfinni frá í fyrra segir það framfarirnar augljósar. „Við höfum
tekið mestum framförum frá í fyrra, bætt við okkur 41 stigi. McLaren
hefur bætt sig um 33 stig, Renault 11 og Red Bull um 4. Um afturför er
að ræða hjá Brawnliðinu fyrrverandi, nú Mercedes, því með sömu
stigaútreikningum og í fyrra hefði það 47 stigum minna eftir fimm mót en
í fyrra.
Þessir útreikningar hafa náttúrulega ekkert gildi annað en að bera saman frammistöðu milli ára. Að öðru leyti eru þeir til gamans. Eftir sem áður er Button efstsur í keppni ökuþóra og McLaren í keppni liðanna.
Kínakappaksturinn í dag var öldungis frábær. Maður þurfti á öllum skilningarvitum að halda til að fylgjast með öllu því sem átti sér stað á brautinni. Þökk sé skúraveðrinu. Það er eiginlega bráðnauðsynlegt að hann rigni - næstbesta mót ársins er Melbourne en þar hjálpaði rigning líka til.
Þess vegna hef ég verið að velta því fyrir mér í dag hvort ekki eigi að koma upp úðarakerfi við formúlubrautirnar svo hægt sé að framkalla rigningarástand þegar náttúran sér ekki sjálf um það. Mótin yrðu einfaldlega miklu fjörlegri - og þar með skemmtilegri.
Úðunarkerfi kostar lítið, það er góð reynsla fengin á þau í t.d. stórvirkum landbúnaði, já eða sem brunavarnarkerfi í stórum stofnana- og verksmiðjubyggingum. Snjallir forritarar gætu búið til nokkur prógröm til að tölvustýra úðuninni. Keppnisstjórinn ákvæði hverju sinni - til dæmis með útdrætti - hvaða rigningarprógramm yrði notað í það og það skiptið.
Prógrömmin þyrftu að innihalda breytileika í veðráttunni eins og í dag. Að minnsta kosti tvær skúrir, misjafnlega langar, svo að við fengjum dekkjaskipti og fleiri taktísk útspil sem oftast á þeirri rúmlega hálfri annarri klukkustund sem keppnin stendur.
Ég er á því að kappaksturinn í dag hafi verið mót aldarinnar. Gott væri að heyra ef einhver er andvígur því - og nefni þá mót sem verið hafa betri.
Þegar ljósin fimm slokkna
og kappakstursbílarnir 24 þjóta af stað í ræsingunni í Barein á sunnudag hefst
keppnistímabil sem beðið hefur verið með mikilli væntingu mánuðum saman.
Sjaldan hafa jafn margir öflugir ökumenn verið samtímis í keppni og því er
talað um að framundan sé tröllaukin titilkeppni á kappakstursbrautinni.
Miklar væntingar eiga
sér gjarnan stað við upphaf hverrar keppnistíðar en sjaldan þó meiri en nú.
Ástæður eru margar. Úrslit þykja mjög svo ófyrirséð vegna einstaklega jafnrar
getu bíla fjölda liða og róttækra breytinga á reglum, en þar þó helst að
bensínstopp heyra nú sögunni til. Þá eru nokkur ný lið mætt til leiks, nýir
ökumenn komnir til skjalanna og aðrir hafa færst milli liða. Vart getur það
verið betra á 60 ára afmæli keppni í formúlu-1.
Fjórir meistarar eigast við
Af þessum sökum hefur
mótsins í Barein um helgina verið beðið með óþreyju um heim allan. Þar ganga
til leiks fjórir ökumenn sem hampað hafa heimsmeistaratitli ökuþóra. Fremstur
meðal jafningja er Michael Schumacher sem snúinn er aftur til keppni eftir
þriggja ára hlé og genginn á fimmtugsaldurinn. Ekki keppir hann þó lengur fyrir
Ferrari heldur þýska bílafyrirtækið Mercedes sem keypti meistaralið síðasta
árs, Brawn.
Aðrir meistarar eru
Fernando Alonso hjá Ferrari, sem vann titlana 2005 og 2006, Lewis Hamilton hjá
McLaren sem varð meistari 2008 og liðsfélagi hans Jenson Button sem er ríkjandi
meistari. Við reynsluakstur í vetur þótti litlu muna á bílum þessara þriggja
liða og bílum þess fjórða, Red Bull, en þar er fyrir Sebastian Vettel sem varð
annar í titilkeppninni í fyrra eftir keppni við Button.
Spurning er hversu
reynsla Schumacher vegur og keppnisgleði og kraftur gegn yngri ökumönnunum. Mun
hann hafa við Alonso á Ferrari sem augljóslega er komið í toppslaginn aftur
eftir slakt ár og ósamkeppnisfæran bíl í fyrra? Eða Hamilton sem fær nú
tækifæri til að bera sig saman við Schumacher í fyrsta sinn?  Verður silfurör McLaren öflugri þeirri þýsku
frá Mercedes?
Já, þær eru margar
spurningar sem spurðar hafa verið að undanförnu. Ólíkt því sem var í fyrra er
greinilega var ljóst hvaða lið væri með langbesta bílinn við upphaf
keppnistíðar.
Einvígi að lokum milli Alonso og Hamiltons?
Þótt alls ekki megi
vanmeta Schumacher þá er freistandi að álíta sem svo að titilslagurinn muni
enda í einvígi Alonso og Hamiltons. Þótt Button sé með eins bíl hjá McLaren
hefur Hamilton
visst forskot sem liðsmaður þar á bæ undanfarin ár. Það gæti þó óvænt komið
Button til góðs að hann býr yfir mun „mýkri“ aksturstækni en hinir meistararnir
sem er mjög gagnlegt  nú þegar fara
verður betur með dekk en áður vegna bensínþyngsla.
Ánægjulegt er að
Ferrari og McLaren skuli aftur komin í toppslaginn eftir dapurt gengi beggja í fyrra.
Keppnin 2009 var áhugaverð og stóð á endanum óvænt milli Red Bull og Brawn. En
hana skorti þá miklu ákefð sem jafnan hefur einkennt baráttu gömlu risanna
tveggja. Útilokað þykir að yfirburðir eins og Brawn framan af í fyrra sjáist í
ár. Fróðum sýnist öllu heldur, að Ferrari, McLaren, Red Bull og Mercedes muni
heyja keppni sem verði jafnari og tvísýnni strax frá byrjun.
Skammt að baki þeirra
eru svo a.m.k. fimm önnur lið sem einnig eru talin með tiltölulega jafna bíla.
Hér ræðir um Williams, Force India,
Renault, Sauber og Toro Rosso.
Þungir í ræsingunni
Þegar bílarnir leggja
af stað á sunnudögum hér eftir verða þeir með tvöfalt meira bensín um borð, 160
kíló, en alla tíð frá 1993 er bensínstopp í keppni komu til sögunnar. Vegna
þessa verða bílarnir erfiðari viðureignar í byrjun og líkur á bægslagangi við
fyrstu beygjur. Og þyngslin reyna mun meira á bæði dekk og bremsur en fyrr og
kalla á nýjar akstursaðferðir af hálfu ökumannanna.
Formúluliðunum hefur
fjölgað um tvö í ár og eru 12; áttu að vera 13 en USF1 komst ekki til leiks.
Horfin eru BMW og Toyota
en hið fyrrnefnda er nú komið aftur í hendur fyrri eiganda, Peter Sauber, og
ber sitt gamla nafn, Sauber. Sérfræðingar Bridgestone segja bíla þess fara
betur með dekk en önnur og gæti átt eftir að reynast hálfgerður „svarti Pétur“
og koma á óvart í keppni af þeim sökum; jafnvel velgja toppliðunum fjórum við og
við undir uggum.
Herfræðin hugsuð upp á nýtt
Hin liðin eru Virgin,
Hispania og Lotus, öll ný lið frá grunni þótt hið síðastnefnda beri nafn
gamalfrægs og sigursæls liðs úr formúlu-1. Þau tvö fyrst nefndu tefla fram
þremur nýliðum. Brasilíumaðurinn Lucas di Grassi keppir fyrir Virgin og landi
hans Bruno Senna og Indverjinn Karun Chandhok
fyrir Hispania. Senna er systursonur eins frægasta ökuþórs sögunnar, Ayrtons
Senna.
Hinar breyttu reglur
kalla á alveg nýja nálgun í gerð keppnisáætlana. Það eitt þykir eiga eftir að
bjóða upp á mikla spennu í keppni. Hingað til hefur enginn þótt meiri
herfræðingur en Ross Brawn, stjórnandi Mercedes og maðurinn á bak við árangur
Schumacher hjá Ferrari. Spurningin er hvort herfræði þeirra gangi jafnvel upp
sem fyrr eða hvort herfræðingar Ferrari og McLaren standi þeim snúning. Við því
fást svör á sunnudag og 18 sunnudögum öðrum til nóvemberloka.
Tímamót verða í formúlu-1 næstkomandi sunnudag, 14. mars. Michael Schumacher snýr þá aftur til keppni, eftir þriggja ára hlé. Algeng er sú skoðun að hann hafi öllu að tapa, ekkert að vinna. Þessu er ég ósammála.
Hverju ætti Schumacher að tapa? Ekki tapar hann heimsmeistaratitlunum. Orðsporinu sem einn besti ökumaður sögunnar? Er hægt að tapa því? Það held ég ekki. Ég held hann tapi engu. Og ekkert þarf hann að sanna lengur, hann hefur gert það nógu oft.
Sjálfur segist hann ekki hafa tapað keppnisgleðinni og það sé megin ástæða þess að hann snýr aftur. Hin ástæðan er kannski sú, að hann mun ekki hafa verið alls kostar sáttur við að þurfa að rýma fyrir Kimi Räikkönen hjá Ferrari á sínum tíma og draga sig í hlé.
Það er athyglisvert, að fjórir núverandi og fyrrverandi meistarar munu keppa í formúlu-1 í ár. Og sín á milli deila þeir 11 titlum. Miðað við reynslu- og þróunarakstur liðanna undanfarið má ætla að hinir meistararnir; Fernando Alonso hjá Ferrari og Lewis Hamilton og Jenson Button hjá McLaren hafi yfir öflugri bílum að ráða en Schumacher hjá Mercedes. Hvað það dugar langt og lengi leiðir reynslan ein í ljós. En víst má telja, að Schumacher sé mættur til leiks aftur til annars og meira en dóla með. Já, og Mercedes hefur sagst ætla verja titlana sem forveri þess - Brawnliðið - hampaði í fyrra.
Það efast enginn um færni og keppnishörku Schumacher undir stýri.
Allavega ekki ég. Því er það visst tilhlökkunarefni að hann
skuli snúa aftur. Það mun krydda keppnina, sem hefur ekki veitt af. Ég hlakka  til að sjá gamla brýnið tukta ungu ökumennina til. Og sjá hvernig honum nýtist reynslan í keppni - sem er um svo margt ný, með nýjum liðum og banni við bensíntöku eftir að lagt er af stað.  Ætli mótherjar hans séu ekki á glóðum yfir því sem í vændum er?
Trauðla verður Jenson Button heimsmeistari ökuþóra að loknum japanska kappakstrinum á morgun. Fyrir tímatökurnar í dag - og reyndar enn - er það tölfræðilega mögulegt að hann landi titlinum í Suzuka en litla trú hef ég á því.
Hefði
sú aðferð verið tekin upp, eins og til stóð, að titilinn skyldi sá
vinna sem flest mót vinnur hefði  Button orðið meistari í síðasta móti, með sjötta sætinu í Singapúr.
Þegar þrjú mót eru eftir vertíðar af 17 hefur Button unnið 15 stigum
fleiri en Barrichello. Það myndi duga honum til titils að uppskera fimm
stigum meira í Suzuka en Barrichello. Þá væri bilið 20 stig og myndi
ekki duga Barrichello að vinna tvö síðustu mótin og verða jafn að
stigum. Button fengi titilinn út á fleiri sigra, en Barrichello hefur
unnið tvö mót í ár.
Fyrir
utan liðsfélagana tvo er Sebastian Vettel hjá Red Bull enn með í
titilslagnum þótt hann standi mun verr, er 25 stigum á eftir Button og 10
á eftir Barrichello. Þessi munur gæti minnkað verulega vinni Vettel vel úr stöðu sinni á rásmarkinu. Hann hefur keppni af ráspól en keppinautarnir byrja mun aftar. Barrichello líklega í níunda sæti og Button því ellefta.
Til þess að Button hampi heimsmeistaratitli í
mótslok í Suzuka á sunnudag dugar honum að vinna, gegn því að
Barrichello verði í mesta lagi í fjórða sæti. Verði hann annar í mark
yrði Barrichello að verða í sjötta sæti eða aftar. Það mundi duga
Button að verða í þriðja sæti að því tilskildu að Barrichello yrði ekki
framar en í áttunda sæti. Og til þess að vinna titilinn út á fjórða
sæti í mark yrði Barrichello að vera utan stiga, þ.e. í besta falli í
níunda sæti.
Möguleikar á úrslitum af þessu tagi verða teljast afar ólíklegir, nema úrkoma verði og röðin í keppninni stokkist verulega upp.
Til þess að falla ekki úr leik í
titilkeppninni um helgina verður Vettel að verða í einhverju þremur
efstu sætanna í Suzuka og Button fjórum til sex sætum aftar. Það held ég séu mun líklegri úrslit en að annar hvor, eða báðir, ökumanna Brawn verði í toppsætum.
Mér finnst að makleg málagjöld hafi verið ákveðin í dag vegna svindlsins í kappakstrinum í Singapúr í fyrra. Eðlilegt er að Flavio Briatore, hinn brottrekni liðsstjóri Renault, sé útskúfaður frá akstursíþróttum alla tíð, enda brot hans og samverkamanna alvarlegra en nokkru tali tekur.
Briatore hefur  enga iðrun sýnt og rembdist eins og rjúpa við staur að halda fram sakleysi sínu fram yfir það að hafa verið rekinn úr starfi er innanhússrannsókn Renault leiddi í ljós að ásakanir um svindlið áttu við rök að styðjast.
Það er eitt að hafa rangt við í keppni. Öllu verra er að stofna til samsæris um að hagræða úrslitum. Og það með því að efna til klessukeyrslu í íþrótt sem getur í raun verið hættuleg keppendum, starfsmönnum hennar og áhorfendum.
Bæði innanhússrannsókn hjá Renault og sjálfstæð rannsókn á vettvangi Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) leiddi í ljós, að Briatore, Pat Symonds verkfræðistjóri og Nelson Piquet ökumaður stofnuðu til samsæris um að reyna hagræða úrslitum.
Það tókst og fór svo að Fernando Alonso, ökumaður Renault, vann fyrsta mótssigur Renault um tveggja ára skeið. Hann átti enga aðild að málinu og segir FIA hann enga vitneskju hafa haft um það fyrr en eftir að rannsókn var nýlega hrundið af stað.
Renault situr uppi með skömmina af verknaði þremenninganna, sem það hefur losað sig við, og hlaut sína refsingu. Mildilega þó í ljósi alvarleika brotsins. Ýmsar ráðstafanir undanfarna viku af hálfu Renault vegna þessa máls gerðu sitt til að koma í veg fyrir  útskúfun liðsins úr formúlu-1 fyrir fullt og allt.
Piquet sleppur við refsingu þar sem FIA hafði fengið hann til frásagnar með því að bjóða honum friðhelgi. Það bætir lítt mannorðsmissinn sem hann hefur orðið fyrir með framferði sínu. Og fróðir telja að hann eigi ekki afturkvæmt í formúlu-1 sem ökumaður. Þó eflaust megi trúa því að honum myndi aldrei detta til hugar að endurtaka gjörð af þessu tagi væri fyllilega skiljanlegt ef ekkert lið fengist til að ráða hann í vinnu hjá sér.
Ég hef séð til Piquet í návígi og fannst hann nokkuð heillandi ökuþór. Það var áður en hann hóf keppni í formúlu-1. Fyrir utan þýska kappaksturinn í fyrra - þar sem hann komst á verðlaunapall - sýndi hann sjaldnast góðan árangur. Og það er athyglisvert, að á hálfri annarri keppnistíð með Renault afrekaði hann að keyra bíl sinn í klessu 17 sinnum, með því að missa vald á honum og fljúga út úr brautinni eða eiga í árekstri við aðra ökumenn.
Á morgun, mánudag, verður tekið fyrir málið sem snýst um meint svindl Renaultliðsins í kappakstrinum í Singapúr í fyrra. Það sem fram hefur komið í málinu þykir mér benda til að aðalstjórnendur liðsins séu ekki jafn saklausir og þeir héldu í fyrstu.
Flavio Briatore hefur verið settur af sem liðsstjóri vegna málsins og einnig Pat Symonds verkfræðistjóri. Það er eðlileg ráðstöfun af hálfu Renault, sem er fyrirtæki sem tekur málin mjög alvarlega. Ekki skal ég segja um Briatore en af þvi sem lekið hefur verið út af rannsóknargögnum virðist mega ætla, að Symonds hafi brallað með Nelson Piquet um að setja á svið slys til að fá öryggisbíl út í brautina og freista þess þannig að koma Fernando Alonso sem lengst upp á við.
Svo fór, að Alonso sigraði eftir að hafa lagt af stað í 15. sæti.
Í ljós hefur komið, sem ég hef áður haldið fram, að mál þetta kemur upp núna sem  bein afleiðing reiði Nelson Piquet yfir að vera settur af hjá Renault. Og mér finnst það hneyksli, að Alþjóða akstursíþróttasambandið (FIA) skuli hafa heitið honum friðhelgi fyrir að bera vitni. Manninum sem hafði þagað í heilt ár og féllst á að taka þátt í samsærinu því með því taldi hann sig myndu áfram halda starfinu sem ökumaður Renault.
Mér er sama hvort hugmyndin um klessukeyrsluna kom frá Piquet eða Symonds, það er jafn bölvanlegt að ökuþórinn skyldi taka í mál að framkvæma hana. Skömm hans er söm í augum venjulegs fólks og hann keppir líklega aldrei framar í kappakstri þótt aflausn hafi fengið hjá Max Mosley, forseta FIA.
Sannað þykir að Alonso hafi ekki verið meðvitaður um svindlið og ekkert vitað um það fyrr en það kom upp síðsumars; eftir brottvikningu Piquet. Allt bendir til að það sé verk tveggja til þriggja manna sem allir hafa verið reknir frá Renault.
Í ákæru FIA er einungis Renaultliðið sótt til saka en ekki mennirnir þrír sem málið snýst um; Piquet, Sumonds og Briatore. Séu þeir sekir verða þeir því ekki dæmdir fyrst ákæran nær ekki til þeirra. Það finnst mér ámælisverður málatilbúnaður af hálfu FIA. Og hafi verið um svindl að ræða er það af þeirri gerð og því eðli, að viðkomandi aðila á að dæma frá formúlu-1 um aldur og ævi.
Lögmenn Renault munu væntanlega freista þess að fá íþróttaráð FIA á morgun til að sýna liðinu sjálfu vægð þar sem það átti ekki aðild að málinu sem slíkt, heldur einungis sökudólgarnir tveir eða þrír.
Þangað til annað kemur í ljós ætla ég ekki að leggja hinn minnsta trúnað á ásakanir brasilískrar sjónvarpsstöðvar um að Renault hafi svindlað sér til sigurs í Singapúr í fyrra. Hræddur er ég um að þessi kenning sé ein afleiðing af þeirri hrikalegu og langvarandi fýlu sem Nelson Piquet hefur verið í eftir að hann var settur af hjá liðinu.
Samsæriskenningar í þessa veru komu upp á sínum tíma en voru fljótt afskrifaðar og engin gögn komu fram er studdu þær. Vegna nýju ásakananna er eðlilegt að lagst verði yfir málið á ný, ekki síst ef Piquet heldur þessu fram. Þ.e. að hann hafi fengið fyrirmæli um að klessukeyra bíl sinn í kappakstrinum svo keppnisáætlun Fernando Alonso gengi upp. Hann átti að stoppa snemma á bensínlitlum bíl en Piquet seint. Þær áætlanir byggðust á tilgátu um að öryggisbíll yrði kallaður út í brautina.
Og það gerðist einmitt eftir að Piquet klessti. Alonso hafði rétt áður stoppað til að taka bensín og ný dekk. Var því fyrstur er keppnin hófst að nýju er hlutverki öryggisbílsins var lokið. Lét hann ekki happ úr hendi sleppa og ók til sigurs.
Víst er að afleiðingar þessara ásakana geta orðið alvarlegar. Reynist þær réttar verður bæði Renault og Piquet hegnt harkalega, jafnvel í keppnisbann. Komi hins vegar í ljós, að um þvætting sé að ræða eða ósannanlegar tilgátur sleppur Renault. Verði ásakanirnar raktar til Piquet fær hann líklega á baukinn fyrir að koma óorði á íþróttina, reynist þær staðlausar.
Þetta er að sönnu grafalvarlegt mál hver svo sem niðurstaðan verður. Og alls ekki sú auglýsing sem formúla-1 þarf á að halda. Ég held hins vegar þetta sé bull og velti fyrir mér siðferði brasilísku stöðvarinnar að halda þessu fram án þess að tilgreina það nánar. Til dæmist  hvenær og hvernig Piquet var beðinn að klessa og hver eða hverjir báðu hann um það.
Væntanlega koma margir  við sögu í  samsæri af þessu tagi; stjórnendur og ökumenn í það minnsta. Einu áþreifanlegu sönnunargögnin eru talstöðvarfjarskipti milli stjórnborðs ökumannanna. FIA hefur alltaf haft aðgang að þeim og skoðaði á sínum tíma. Hver nýju gögnin sem brasilíska stöðin heldur fram að séu til verður fróðlegt að heyra um.
Sé þar einungis um að ræða fullyrðingar Piquet þá mun hann væntanlega sitja uppi með þær sjálfur. Það er ekki nóg að honum hafi verið mislagðar hendur í keppni og lítið sýnt. Heldur hefur hann sýnt einkennilegt dómgreindarleysi frá því hann var leystur undan samningi sem hann gat sjálfur ekki efnt.
Peter gamli Sauber var greinilega reiður BMW og afstöðu þýska bílafyrirtækisins gagnvart tilraunum hans til að bjarga liðinu. Ætlar BMW virkilega reyna græða á brottförinni úr formúlu-1? Á eign sem í raun og veru við núverandi efnahagsaðstæður er verðlaus? Sauber segir altjent að BMW hafi heimtað alltof mikið fyrir liðið.
Sé þetta svo þá er lítt mark takandi á orðum yfirmanna BMW um að þeir aðhyllist lausn í anda þess sem gerðist með Hondaliðið er japanski bílaframleiðandinn dró sig út úr formúlu-1. Ross Brawn þurfti nefnilega ekki borga nema eina evru fyrir liðið. Já, jafnvirði 180 íslenskra króna.
Og það sem meira var, Honda veitti liðinu talsverða fjárhagslega meðgjöf. Lagði fram sem svaraði rekstrarkostnaði þess fyrsta árið. Enda talið betra en sitja upp með tjón af lokun liðsins og atvinnumissi mörg hundruð starfsmanna.
Öðru vísi hugsa þeir hjá BMW. Eða annað verður ekki skilið af orðum Sauber. Honum er fyrst og síðast annt um starfsmenn liðsins, að þeir haldi lífsviðurværi sínu. Hann segist hafa átt í þriggja daga áköfum samningaumleitunum við BMW.
Með því að klúðra tækifærinu til að skrifa undir Concorde-samkomulaginu í gær á BMW ekki lengur tilkall til öruggrar þátttöku í formúlu-1 næstu þrjú árin. Og undirritun samkomulagsins hefði tryggt liðinu jafnvel tugi milljóna dollara af sameiginlegum tekjum íþróttarinnar.
Alþjóða akstursíþróttasambandi hafði veitt BMW sérstakan frest til að undirrita samkomulagið en upp á það skrifuðu öll önnur lið fyrir nokkru. Sambandinu er nú í sjálfsvald sett að láta BMW lönd og leið og bjóða nýjum liðum sem knýja á dyr formúlunnar aðild.
Og FIA gæti allt eins gert arftaka BMW-liðsins skylt að skrá sig sem nýtt lið og verða þannig af tekjum sem því hefðu ella verið tryggðar. Þannig leit Bernie Ecclestone eiginlega á Brawnliðið og neitaði því um að öðlast sjálfkrafa fjárhagsleg réttindi sem Honda naut samkvæmt fyrra Concorde-samkomulagi.
Það var ekki fyrr en Brawn skrifaði í síðustu viku upp á nýja Concorde sem Ecclestone borgaði liðinu 35 milljónir evra sem Honda átti rétt til fyrir þátttöku sína árið 2008. Nú náði BMW margfalt betri árangri en Honda í fyrra og mætti ætla að greiðslur til BMW frá Ecclestone yrðu hærri.
Samtök formúluliðanna (FOTA) hafa þó líklega komið í veg fyrir það um sinn með heitstrengingum þess efnis að BMW verði kleift að skrifa upp á Concorde-samkomulagið þótt síðar verði. Boltinn er alfarið hjá yfirmönnum BMW og þótt Sauber segðist súr lýsti hann í dag vilja til að aðstoða við tilraunir til að tryggja tilveru liðsins.
Sauber rennur blóðið til skyldunnar. Hann hélt sig nefnilega vera tryggja starfsfólki sínu starfsöryggi til fjölda ára er hann seldi BMW liðið sem eftir honum hét árið 2005. Hélt hann eftir 20% hlut og í krafti hans beitir hann sér nú.
Telja verður BMW það til tekna að frestur þess til að skrifa upp á Concorde-samkomulagið var lítill, eða um vika. Aðdragandi ákvörðunar fyrirtækisins um að draga sig út úr formúlunni er þó miklu lengri en svo.
Því má segja að BMW hafi látið hjá líða að búa liðið að einhverju leyti undir framtíðina. Og í raun klúðrað því máli frekar með því að afhenda Sauber ekki liðið til baka fyrir lítið; einhverja táknræna upphæð. Í staðinn kallaði BMW yfir sig þá einkunn Peters Sauber, að gærdagurinn hafi verið sá bitrasti á 40 ára ferli hans í akstursíþróttum.
Fréttin um brottför BMW úr formúlunni var nógu slæm. En það yrði víða túlkað sem ófyrirgefanlegt ef liðið verður látið deyja. Vegna síngirni og græðgi. Fyrir að reyna selja verðlausa eign á miklu hærra verði en nokkur er tilbúinn að borga.
Vonandi tekst þessu ágæta liði að halda velli. Það býr yfir hinni ágætustu aðstöðu í Hinwil í Sviss og tækniþekkingu. Finnist ekki kaupandi að liðinu með öllu því sem það hefur til að bera - og þar með ágætum árangri undanfarin ár - er ekki óeðlilegt að maður efist um að nýju formúluliðin þrjú, sem mæta til leiks á næsta ári, muni halda velli.
Þau þurfa nefnilega sjálf að bera allan kostnað af upphafi sínu í íþróttinni og fá engan skerf af tekjum íþróttarinnar fyrr en á öðru ári. Og þá í hlutfalli af frammistöðu sinni á fyrsta ári. Ný lið standa þannig fremur höllum fæti í upphafi gagnvart rótgrónum liðum. Þannig hefur það alltaf verið og mér skilst engin breyting hafi orðið á því.
Aldrei var ég hrifinn af Michael Schumacher, það var eitthvað við persónuleikann sem olli því. Og ég hélt líka upp á suma helstu keppinauta hans. Hins vegar hefur mér aldrei dulist að hann er afburða ökumaður og keppnismaður eitilharður. Heimsmeistaratitlarnir hans sjö eru auðvitað kraftbirting þess. En nú tek ég ofan fyrir Schumacher.
Mér finnst það aðdáunarvert af honum að koma sínu gamla og góða liði til hjálpar á þessari stundu. Þegar annar ökumaður þess, Felipe Massa, liggur illa særður á sjúkrahúsi vegna slyss í tímatökunum í Búdapest sl. laugardag. Fyrirséð er að Massa snýr ekki til keppni í senn, jafnvel ekki meira í ár.
Því var Ferrari vandi á höndum. Áttu reynsluökuþórarnir að fylla skarð Massa eða skyldi liðið reyna laða Fernando Alonso til sín, eins og Bernie Ecclestone vildi? Eða leita til síns gamla meistara, eins og Niki Lauda lagði til.
Sú leið var farin og er í raun eðlilegust, því vitað er að Schumacher hefur haldið sér í góðri líkamsæfingu þótt hann hafi formlega hætt keppni í árslok 2006.
Hollustan sem hann sýnir Ferrari með því að verða við kalli liðsins er þakkarverð. Og með þessu sýnir Schumacher á sér nýjar hliðar. Hann þótti hrokafullur og samferðamenn hans hjá liðum hafa lýst honum sem síngjörnum. Sú ákvörðun hans að svara kalli Ferrari finnst mér fremur sýna örlæti og auðmýkt, og þjónustulund. Já, ef ekki stórmannleg.
Ég held hann geri formúlu-1 mikinn greiða með þessu. Einmitt þegar íþróttin hefur átt undir högg að sækja vegna pólitískra átaka sem gert hafa marga unnendur íþróttarinnar fráhverfa henni. Nú flykkjast eflaust fleiri á mótsstað. Annað hvort til að sjá meistarann sýna að hann hefur engu gleymt eða sjá hann lagðan að velli svo um munar! En það má ekki gera alltof miklar kröfur til hans, það fyndist mér ósanngjarnt. Alla vega ekki í fyrsta móti. Sjálfur ætlar sér hann örugglega reyna verða í fremstu röð, þekki ég hann rétt.
Hvað segir Kimi?
Sú spurning sem ég vildi helst heyra svarið við núna er hvað segir Kimi Räikkönen um endurkomu Schumacher? Sá þarf að hafa meiri áhyggjur af því en nokkur annar. Eða taka því sem hundsbiti og sparrka rækilega í eigin afturenda. Hysja upp um sig buxurnar og sýna gamla góða getu sem hefur lítið sem ekkert borið á í tvö ár.
Ég hef trú á að Räikkönen taki sér nú tak. Og vakni af værum blundi. Annars blasir við honum sú hætta að Schumacher flengi hann og orðspor hans bíði alvarlega hnekki. Kannski eigum við því eftir að sjá breytingar til hins betra af hálfu Räikkönen.
Önnur hejta snýr aftur
Önnur gömul hetja, hjólreiðamaðurinn Lance Armstrong, sneri í ár til keppni eftir næstum fjögurra ára hlé. Hann þótti hrokafullur og síngjarn á sínum tíma er hann reið til sjö sigra í Frakklandsreiðinni (Tour de France) sjö ár í röð. Hann stóð sig frábærlega í mótinu í ár með þriðja sæti. Og nú var allt annar og menskari maður á ferðinni. Vakti hann hvarvetna aðdáun með framkomu sinni í túrnum í ár, ákaft hvattur til dáða af milljónum Frakka sem röðuðu sér upp með hjólaleiðunum.
Það hlýtur að vera hundfúlt fyrir Renaultliðið að vera dæmt úr leik fyrir að felguró hægra framhjóls á bíl Fernando Alonso festist ekki sem skyldi í þjónustustoppi í Hungaroring í gær. Ég velti því fyrir mér hvort þar gangi dómarar kappakstursins ekki full langt. Verða þeir ekki líka að dæma Brawn úr leik í mótum fyrir lausa fjöðrunargorminn sem stórskaðaði Felipe Massa? Geta þeir fyrr talist samkvæmir sjálfum sér? Er ekki um ófyrirséðar bilanir að ræða í báðum tilvikum?
Renaultliðinu var fundið það til sakar að hafa ekki fest felguróna sem skyldi. Hvað með gorminn sem hengir fjöðrunarkerfi afturhjóla Brawnbílsins saman? Gildir ekki hið sama um það tilfelli?
Auðvitað fyndist mér það út í hött ef Brawn yrði refsað vegna þessa hörmulega atviks. Hér hlýtur að ver um bilun að ræða sem á nánast að vera útilokuð og enginn getur séð fyrir.
Þá hélt ég að dekkjamenn á þjónustusviði teldu sig vita hvort felguró væri föst eða ekki. Oft höfum við séð þá þurft að glíma við þær meira en eðlilegt er og ná að festa þær á endanum. Gaf ekki felgumaðurinn í tilviki Alonso merki um að hann hefði lokið sínu hlutverki og hjólið væri fast undir? Var um bilun í rónni að ræða sem hann varð ekki var? Spyr sá sem ekki veit.
Við því fást væntanlega svör á næstunni og ekki síst þegar áfrýjunardómur Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) tekur málið fyrir. Renault hefur áfrýjað úrskurði dómara kappakstursins sem dæmdu liðið úr leik í gær.
Margs konar tímamót urðu í ungverska kappakstrinum önnur en þau að þar keppti yngsti ökuþór sögunnar, Jamie Alguersuari hjá Toro Rosso. Telst þar meðal annars til tíðinda að þar vann bíll búinn KERS-búnaði sigur í fyrsta sinn; silfurör McLaren en undir stýri sat Lewis Hamilton.
Reyndar var KERS-bíll einnig í öðru sæti, eða Ferrarifákur Kimi Räikkönen og líka í því fimmta, en þar var á ferð Heikki Kovalainen hjá McLaren. Er það langbesta útkoma KERS-bíla í ár.
Þetta var tíundi mótssigur Hamiltons en nefna má, að jafn marga sigra unnu Englendingurinn  James Hunt, Svíinn Ronnie Peterson, Suður-Afríkumaðurinn Jody Scheckter og Gerhard Berger sá austurríski.
Tveir breskir ökuþórar hafa þar með unnið sigur í ár, Hamilton og Button. Það hefur ekki gerst frá 1999 er Eddie Irvine, David Coulthard og Johnny Herbert unnu allir mót.
Fernando Alonso hjá Renault hóf keppni af ráspól í fyrsta sinn frá í ítalska kappakstrinum í Monza 2007. Var þetta 18 ráspóll hans en jafnmarga unnu á sínum tíma þeir Mario Andretti frá Bandaríkjunum og Frakkinn Rene Arnoux.
Þrír ökumenn skiptust á forystu í Hungaroring í gær, Alonso, Hamilton og Kovalainen. Enginn þeirra hafði verið í þeirri stöðu fyrr á vertíðinni í ár.
Jenson Button hjá Brawn hefur verið í forystu meira en tvöfalt fleiri hringi en nokkur annar í ár. Þó hefur hann aldrei verið í forysta í síðustu þremur mótum.
Button hefur unnið stig í öllum mótum ársins en sjöunda sætið í gær er hans versti árangur í ár.
Mark Webber hjá Red Bull átti hraðasta hringinn í Hungaroring. Er það í fyrsta sinn á ferlinum sem hann nær þeim áfanga. Skipar hann sér á bekk með 115 öðrum ökumönnum sem sett hafa hraðasta mótshring í 60 ára sögu formúlunnar.
Vegna fjarveru Felipe Massa af völdum meiðsla í tímatökunum á laugardag tóku aðeins 19 bílar þátt í kappakstrinum í gær. Færri hafa ekki verið á rásmarkinu frá í bandaríska kappakstrinum árið 2005 er þeir voru aðeins sex.
Renault hefur verið útilokað frá næsta móti, Evrópukappakstrinum í Valencia á Spáni 23. ágúst Álíka gerðist síðast 2005 er BAR-liðið var útilokað frá tveimur mótum.