Færsluflokkur: Formúla 1
Miðvikudagur, 10. maí 2006
Hörmuleg helgi hjá Williams
Williams neyddist til að skipta um mótor í báðum bílum fyrir tímatökurnar. Vegna vítis sem því fylgdi hófu Webber og Rosberg keppni í 20. og 22. sæti. Aftar hafa þeir ekki verið á rásmarki frá því í bandaríska kappakstrinum í Watkins Glen árið 1975.
Í það skipti hófu Jacques Laffite og Lella Lombardi keppni í 21. og 24. sæti.Föstudagur, 5. maí 2006
Räikkönen þarf að losna úr álögum
Kimi Räikkönen bíður erfitt hlutskipti í Nürburgring á sunnudag, eigi hann að vinna fyrsta sigur McLaren á árinu á þessum heimavellil mótorsmiða liðsins, Mercedes. Til þess þarf hann eiginlega að losna úr álögum.
Já, það er eins og einhver álög hafi marað á Räikkönen í keppni í Þýskalandi. Hann hefur ekki komist á mark í Nürburgring þrjú ár í röð. Þá hefur hann ekki lokið þýska kappakstrinum í Hockenheim undanfarin fimm ár.
Tíu sinnum hefur Räikkönen hafið kappakstur í Formúlu-1 í Nürburgring og Hockenheim. Aðeins einu sinni hefur hann lokið keppni í stigasæti. Það var á fyrsta ári hans með McLaren, í Evrópukappakstrinum í Nürburgring árið 2002.
Þetta eru ótrúleg álög og fróðlegt verður að sjá hvort ísmaðurinn brýtur hlekki fortíðar af sér á sunnudag og sigri. Útlitið er ekki alltof gott ef eitthvað er að marka æfingarnar í dag. Räikkönen var þar frekar aftarlega á meri. Þó ber ætíð að taka niðurstöðum föstudagsæfinganna með fyrirvara þar sem einstakir ökuþórar geta verið að prófa sig áfram með mjög ólíka þætti.
Vísbendingar ættu hins vegar að fást í tímatökunum á morgun hvernig liðin virðast standa fyrir helgina.
Mánudagur, 3. apríl 2006
Massa og Klien sjá silfrið sínum augum hvor
Nú vilja menn þrátta um hvort Felipe Massa hafi gert akstursmistök í fyrstu beygjunum í Melbourne og orðið þess valdur að Nico Rosberg og Christian Klien féllu úr leik. Taka ef til vill afstöðu út frá því hverjum þeir halda með.
Það fór eins og mig grunaði, engir tveir ökuþórar segja eins frá atviki milli þeirra. Massa segir Klien hafa fyrst rekist utan í sig og eftir það hafi hann bara verið farþegi í Ferrarifáknum. Klien og Red Bull neita að bera nokkra ábyrgð og segja að tvisvar hafi verið ekið aftan á Klien í beygjunni [væntanlega er þar átt við Massa, eða hvað?]
Þannig er þetta í formúlunni. Ökuþórar og fyrirsvarsmenn liða, allt fullorðnir og eldklárir menn, þrefa og þrátta. Minna mann oft á lítil börn í sandkassa. En samt hefur maður gaman að íþróttinni og lætur þrasið ekki leiða sig af þeirri vegu.
Hvað segir Eðvarð um þetta? Ég held sannleikurinn komi aldrei í ljós. Alla vega munu Red Bull og Ferrari ekkert beita sér fyrir því. Þau halda sínu striki og strika bara yfir þetta óhapp, horfa beint fram eftir veg og reyna gera sitt besta í mótunum framundan. Það er venjan í formúlunni!
Myndasyrpu af óhappinu er að finna á formúluvef mbl.is - á slóðinni(http://www.mbl.is/mm/sport/formula/myndasyrpa.html?album=273)
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 07:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 2. apríl 2006
Ánægjubros Brawn átakanlegt
Mér fannst heldur átakanlegt ánægjubrosið sem færðist yfir andlit Ross Brawn tæknistjóra Ferrari er hann sá Juan Pablo Montoya snúa bíl sínum í lok upphitunarhringsins í Melbourne. Hvernig ætli honum hafi svo liðið þegar báðir ökuþórarnir hans voru búnir að eyðileggja bíla sína fyrir hrein akstursmistök áður en keppnin var hálfnuð?
Eins og fleiri hefur Brawn líklega talið að Montoya væri fallinn úr leik eða yrði að byrja aftastur og hagur Ferrari í keppninni við enska liðið væri þar með orðinn betri. Eðlilegt er að mönnum í hans stöðu létti við hvert atvik er bætir stöðu eigin liðs en að það hlakki í þeim jafn opinberlega í viðurvist sjónvarpsáhorfenda um heim allan er fyrst og síðast niðurlægjandi fyrir Brawn sjálfan. Það finnst mér alla vega.
Betur hefði hann sagt "yes" í hljóði og hvatt sína menn í talstöðinni til að bíta nú á jaxlinn vegna ófara Montoya! Yfir því hefði verið meiri reisn.
Laugardagur, 1. apríl 2006
Aprílgabb hjá Ferrari eða áhrif vængjanna?
Botna ekkert í árangri eða öllu heldur getuskorti Ferraribílanna í tímatökunum í Melbourne. Komast ekki gegnum niðurskurðinn í hóp 10 bestu. Áreiðanlega hafa einhverjir haldið að um aprílgabb væri að ræða. En ætli skýringin á ónógum hraða - sem Schumacher segir að verði að finna - hafi eitthvað með ólöglegu fram- og afturvængi bílsins að gera sem Ferrari var beðið að taka af bílnum eftir síðasta mót?
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 10:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Laugardagur, 25. mars 2006
Vinnur Fisichella annað árið í röð í Melbourne?
Þriðja ballið á nýhafinni stuðvertíð er framundan; eftir viku í Albertsgarði í Melbourne í Ástralíu. Þarf ekki að rífa mig eins snemma upp og menn heima á klakanum því klukkunni verður flýtt um helgina hér í Frakklandi og seinkað í Melbourne eftir viku. Sem sagt kappaksturinn hefst klukkan sex að morgni að frönskum tíma en ekki rúmlega miðja nótt eins og á Raufarhöfn.
Í ljósi yfirburða Renault í Malasíu spyr maður sig hvort Giancarlo Fisichella endurtaki afrekið frá í fyrra og vinni aftur í Melbourne í ár? Mest hætta er honum sjálfsagt búin af liðsfélaga sínum Fernando Alonso. En svo segjast McLarenmenn munu taka stórtækum framförum í Albertesgarði og gefa til kynna að þeir muni í það minnsta velgja Renault verulega undir uggum.
Fisichella ók frábærlega í Sepang en Alonso neyddist til að beita annarri taktík vegna mistaka við bensínáfyllingu. Standi þeir jafnar að vígi hvað uppleggið varðar í Melbourne verður fróðlegt hvort Ítalinn geti lagt hinn spænska liðsfélaga sinn að velli. Sýni hann þolinmæði og þrautsegju sé ég ekki hvers vegna hann ætti ekki að geta það!
Víst er að mann hlakkar til mótsins.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 13:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 21. mars 2006
Vondir vængir og váleg tíðindi
Bomban er fallin, bæði fram- og afturvængur Ferraribílanna eru ólöglegir samkvæmt úrskurði Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA). Og afturvængir McLaren og BMW ofan í kaupið. Þá er það komið á hreint.
Breytingarnar sem Ferrari og McLaren þurfa að gera munu verulegar en afturvæng BMW mun þurfa breyta smáræðis.
Þetta gæti átt eftir að koma hart niður á liðunum, sérstaklega Ferrari og McLaren. Vængirnir hafa jú veruleg áhrif á getu bílanna og vegna V8-vængjanna ríður enn meira á að loftflæðið um bílinn sé skilvirkt og bæti hraða þeirra.
Nýir vængir koma því líklega til að draga úr ferð bílanna. Þar með er þess allt eins að vænta - a.m.k. fyrst um sinn - að Renault og Honda slíti sig frá McLaren og Ferrari í stigakeppnum formúlunnar. Það eru vissulega váleg tíðindi því hætt er við að keppnin verði ekki eins tvísýn og spennandi og í fyrstu tveimur mótum ársins.
Vitaskuld fara tæknimenn liðanna út á ystu mörk hönnunarrammans eins og hann er lagður niður í tæknireglum formúlunnar. Vænghönnuðir framangreindra liða hafa ekki aðeins farið inn á grátt svæði, heldur út fyrir ramman, samkvæmt niðurstöðum FIA.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 10:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 18. mars 2006
Metagræðgi?
Jæja, ekki skildi ég alveg tilgang Michaels Schumacher með því að hamast í tímatökunum og þræla þannig að óþörfu út mótorinn nýja sem settur var í bílinn í morgun.
Hefði ekki verið nær að spara hann í keppnina því litlu munar hvort maðurinn hefur keppni í 11., 14. sæti eða aðeins aftar. Það læddist að mér sú hugsun að þarna væri karlinn að reyna slá ráspólamet Ayrtons Senna.
Þegar formúlumetin hafa legið í valnum vegna glæsilegs gengis hans um dagana hefur hann alltaf neitað því að metaslátta væri eitthvað markmið hjá sér, sagðist aldrei hugsa um tölfræði sem slíka.
En var þetta ekki gönuhlaup í morgun hjá Schumacher? Var það metagræðgi? Hann einn getur svarað því. En þurfti hann eitthvað að læra á brautina eða aðstæður? Það held ég ekki; ekki fremur en liðsfélagi hans sem kaus að spara sína vél.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 11:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 17. mars 2006
Vandi Monza óleystur
Þær eru þokkalegar fréttirnar frá Ítalíu í dag. Bann við æfingum og keppni háværra bíla í Monza er staðfest en undir bannið falla formúlubílarnir sem eru langt yfir hávaðamörkum sem leyfileg eru. Það er náttúrulega skandall ef ítalski kappaksturinn verður að flytja burt úr þessari sögufrægu braut.
Þeir sem hafa keypt sér hús eða byggt í Monza undanfarna rúmlega hálfa öld hafa vitað að hverju þeir gengju varðandi æfingar og keppni í brautinni. Og bílar eru ekkert háværari nú en á árum áður.
Við verðum bara að vona hið besta og að einhver vitræn niðurstaða fáist í málinu þar sem tekið er tillit til sjónarmiða beggja aðila, íbúanna og akstursíþróttanna.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 19:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 17. mars 2006
Að keyra í Sepang er eins og kynlíf í gufubaði!
Þá er formúlufjör framundan aðra helgina í röð. Við áhugamennirnir búum við ólíkt annað en ökuþórarnir sem þurfa að þeysast áfram og halda athyglinni óskertri á annan klukkutíma við gríðarlega erfiðar aðstæður.
David Coulthard segir að það að keppa í Sepang sé eins og að þræla í gufubaði, slíkur sé hitinn. Hann segist ekki vita um nokkurn sem vilji stunda æfingar í gufubaði, nema þá kynlíf - eins og hann kemst að orði.
Þá hafið þið það - þeir sem það þekkja vita þá hvernig ökuþórarnir hafa það í kappakstrinum í Sepang!!!
Já, þeir tala léttúðlega kapparnir þegar sá gállinn er á þeim. Mér finnst ómögulegt að ráða nokkuð í framhaldið af æfingunum í morgun. Þetta er reyndar ekkert svo ólíkt því sem var á föstudeginum í Barein.