Færsluflokkur: Formúla 1

Metfjöldi kvenna í IndyCar

Sarah Fisher eftir tímatökurnar í Kansas City í gær.Blað verður brotið í dag í sögu bandaríska IndyCar-kappakstursins því meðal 21 keppenda í móti sem fram fer í Kansas verða þrjár konur, Danica Patrick, Sarah Fisher og Milka Duno. Aldrei áður hafa svo margar konur tekið þátt í bandarískum kappakstri á bílum með „opnum hjólum“ eins og það er kallað.

Sarah Fisher hefur keppt í IndyCar í nokkur ár en með hléum þó, aðallega vegna skorts á styrktarfé. Danica Patrick mætti þar til leiks í hitteðfyrra og sló strax í gegn. Vann til að mynda ráspól í Kansas 2005. Þær Fisher og Patrick eru bandarískar en  Milka Duno er frá Venezúela og er að keppa í mótaröðinni í fyrsta sinn.

Af þeirri ástæðu kemur ekki á óvart að Duno varð í 21. og síðasta sæti í tímatökunum. Patrick var óánægð með 10. sætið að þessu sinni. Fisher hefur keppni í 17. sæti Meðalhraði þeirra þriggja á hringnum var frá 336,0 til 341 km en sá sem ráspólinn hlaut ók á 344,6 km meðalhraða. 

Milka Duno keppir í fyrsta sinn í IndyCar Þótt almennt sé fjallað um kappaksturinn sem tímamót og jákvætt skref í þá veru að þátt kvenna í bílaíþróttum þá finnst konunum þremur sem hlut eiga að máli atburðurinn ekkert óvenjulegur.

"Þetta er hluti af menningunni, atburður eins og hver annar þar sem þjóðerni þátttakenda getur verið mismunandi, hlutfall karla og kvenna misjafnt eða litarháttur ójafn. Konur eru í auknu mæli að láta til sín taka í "karlastörfum". Þær eru forstjórar, þær keppa við karla sem er tímanna tákn," sagði Danica Patrick.

Patrick og Fisher eru keppendur í IndyCar-mótunum í fullu starfi í ár en nýr kapituli var skrifaður á fimmtudag er Duno stóðst nýliðapróf í Kansas-brautinni. Konurnar þrjár líta ekki á mót helgarinnar sem nein vatnaskil.
 
Danica Patrick hefur lokið tímatökunum í Kansas City "Það er ekki þetta sem hvetur mig áfram til að keppa. Og þátttaka mín varð ekki til að hinar tóku þátt. En þetta er skemmtileg þróun og það er gaman að vera hluti af henni," segir Fisher sem hóf fyrst keppni í IndyCar fyrir nokkrum árum.

Patrick tekur í svipaðan streng. "Þetta breytir engu fyrir mig og það breytir mér á engan hátt, hefur ekki áhrif á hugarfarið. Ég pæli eiginlega ekkert í þessu. Ég vona að það hljómi ekki asnalega, en mér er eiginlega alveg sama. Þær eru bara ökuþórar í mínum huga "

Fleiri myndir af konunum þremur frá Kansas er að finna í myndasyrpu á formúluvef mbl.is


Líkir Viktor Þór eftir Lewis Hamilton?

Viktor vinnur beygjunaEnsk-íslenski ökuþórinn Viktor Þór Jensen stóð sig með eindæmum vel í frumraun sinni í formúlu-3 í Oulton Park-brautinni í Cheshire í Englandi um páskana. Hann verður aftur á ferðinni um þessa helgi í hinni frægu kappakstursbraut Donington Park í Leicesterskíri. Ég mun fylgjast spenntur með hvernig honum vegnar þar.

Háð eru tvö mót á hverri keppnishelgi, ekið í hálftíma í hvoru. Bæði fara fram á sunnudag en tvennar tímatökur, einnig 30 mínútur hvor, fara fram á morgun, laugardag. Keppt er í fjölda annarra bílaflokka á hverju móti, t.d. í fara 11 kappakstrar fram í Donington um helgina.

Í Oulton Park komst Viktor Þór á verðlaunapall í báðum. Það er athyglisverður árangur sem komið getur honum vel því formúla-3 er fyrir marga stökkpallur inn í atvinnumennsku og jafnvel inn í formúlu-1. Spurning er hvort hann fari eins að og Lewis Hamilton í formúlu-1 og komist á pall í þriðja mótinu í röð? Ekki slæmt að vera jafnað við þann mann sem hefur nú þegar breytt ásjónu formúlu-1!

Viktor Þór varð í fjórða og fimmta sæti í tímatökum fyrstu mótanna tveggja. Hann ók til þriðja sætis í fyrri kappakstrinum en bætti um betur í þeim seinni og varð annar í mark. „Það er gott að klára fyrsta mótið, það var fiðringur í maganum en hann hvarf um leið og ræst var. Ég er afar ánægður með byrjun vertíðarinnar. Og það er aðeins hægt að komast einu sæti ofar í mínum flokki, eftir að hafa orðið í þriðja sæti og síðan öðru,“ sagði hann eftir keppnina. Oulton Park hafði ekki verið honum hagstæð braut undanfarin ár en nú kvað hann í kútinn þann ára sem fylgt hafði honum þar.

Breska mótaröðin í formúlu-3 á sér langa hefð og keppnin þar einkar hörð. Í ár eru bílarnir 33 og ökumenn frá 20 löndum. Áhugi fjölmiðla á mótaröðinni er mikill og munu Channel 4 og gervihnattastöðin Motors TV, sem næst á Íslandi, sýna frá öllum mótunum 22 í ár.

Í nafni Íslands og undir íslenskum fána keppir Viktor Þór a Honda-knúnum Dallara F304-bíl fyrir ADR-liðið [Alan Docking Racing]. Fyrir sama lið kepptu tveir núverandi ökuþórar í formúlu-1, Mark Webber árið 1997 og Scott Speed 2003. Speed komst aldrei á pall en Webber vann mótssigra og varð fjórði í stigakeppni ökuþóra.

Aðrir núverandi ökuþórar í formúlu-1 sem skólast hafa í bresku formúlu-3 mótunum eru Lewis Hamilton, 2003, Heikki Kovalainen, 2002, Jenson Button, 1999, Christijan Albers, 1999, Giancarlo Fisichella, 1993, David Coulthard, 1991, Alex Wurz, 1995, Anthony Davidson, 2001, Takuma Sato, 2000 og 2001 og Rubens Barrichello, 1991. Tveir þeirra unnu stigakeppni ökuþóra, Sato og Barrichello.

Allir nema einn voru eldri en Viktor Þór er þeir kepptu í þessum flokki. Einn var jafngamall, Barrichello.

Viktor Þór, sem er 19 ára, er einn þeirra yngstu sem keppir í ár. Meðal mótherja eru ökuþórar sem keppa fyrir lönd sín í A1-mótunum, svo sem Frankie Cheng frá Kína og Sergio Perez frá Mexíkó. Cheng hefur nú forystu í stigakeppninni í flokki Viktors Þórs, með 42 gegn 27 stigum ensk-íslenska ökuþórsins.

Formúluvefur mbl.is mun að sjálfsögðu flytja fréttir af frammistöðu Viktors Þórs í Donington en forvitnast má um bresku formúlu-3 og árangur hins unga ökumanns eftir nokkrum leiðum. Í fyrsta lagi á  heimasíðu Viktors Þórs, í öðru lagi á heimasíðu hinnar bresku formúlu-3 og í þriðja lagi á heimasíðu  Donington-brautarinnar.

Á meðfylgjandi myndbandi má sjá Viktor Þór í harðri keppni í móti í Palmer Audi-formúlunni sem fram fór í franska sinnepsbænum Dijon í fyrra. Myndbandið má nálgast í mun meiri upplausn á  heimasíðu Viktors Þórs.  


Fín byrjun í formúlunni

Ferskur blær með HamiltonÞrjú mót, þrír mismunandi sigurvegarar og þrír jafnir í keppninni um heimsmeistaratititl ökuþóra. Formúluvertíðin byrjar einstaklega vel! Getur það verið betra? Er hægt að biðja um meira?  Er brottför Michaels Schumacher blessun?

 

Síðustu spurningunni svara ég með annarri; man einhver eftir Scuhmacher? Jú, það sakna hans örugglega einhverjir sem fylgt hafa honum gegnum súrt og sætt undanfarin ár. En hann er farinn, það er lífið, og verður hvorki kennt um né þakkað að keppnin í formúlunni hefur eitthvað yfir sér sem hana hefur vantað um árabil.

 

Vissulega hefur mótssigur í mótunum þremur unnist með yfirburðum en keppnin um öll sæti þar á eftir verið mikil. Sviptingar hafa verið miklar og hefur það skilað sér nokkuð vel á sjónvarpsskjána. Eftir mótið í Barein gengur ekki lengur að segja að erfitt sé að taka fram úr! Séu ökuþórar nógu hungraðir, og nægir þá aðeins að nefna Heidfeld, Rosberg, Trulli, að ekki sé talað um öldunginn Coulthard, þá sést að vogun vinnur.

 

Ferskleikinn sem Lewis Hamilton hefur komið með sér er ánægjulegur og langt verður að leita til að finna fordæmi álíka rimmu og þeir Felipe Massa háðu í Sepang. Minnti helst á glímur Alain Prost og Ayrton Senna forðum. Þar við bætist að liðsskipti Kimi Räikkönen og Felipe Massa hafa og skapað nýja stemmningu.

 

Þetta og ýmislegt fleira gerir formúluna eitthvað öðru vísi og jafnvel ánægjulegri með að fylgjast í ár.

 

Annars finnst mér miður að sjá hversu fáir mæta á vettvang í Barein til að fylgjast með keppninni. Reyndar var uppselt á keppnina sjálfa en stúkur og stæði vallarins taka aðeins 34.000 manns. Er það boðlegt? Hvað segði Bernie Ecclestone ef fleiri kæmust ekki inn í Silverstone? Stúkurnar virtust æði tómlegar aðra daga en mótshaldarar segja samt, að með æfingum á föstudag hafi 22.000 manns fylgst, 6.000 fleiri en í fyrra, og á laugardag 26.000. Samtals dagana þrjá 82.000 manns sem er færra en á einum degi í t.a.m. Silverstone; gömlu, lúnu brautinni þar sem stemmning er þó alltaf frábær á vallarsvæðinu.

 


Viktor Þór þroskast vel

Það var ánægjulegt að fylgjast með upphafi keppnistíðar Palmer Audi formúlunnar í Bretlandi. Viktor Þór Jensen - sem keppir í nafni Íslands - sýndi þar og sannaði að hann hefur þroskast vel og dafnað í þessari grein kappaksturs. Í upphafi þriðja keppnisársins er þessi 18 ára unglingur orðinn drottnandi ökuþór í keppni við sér mun eldri og reyndari ökuþóra. Og það við mjög erfiðar aðstæður vegna rigningar. Eftir þessu verður tekið og líkur aukast á að hann eigi eftir að fá tækifæri í stærri greinum.

Áhugamenn vita flestir að Viktor Þór á íslenska móður og enskan föður. Hann hefur ræktað tengslin við Ísland og talar móðurmálið. Í umfjöllun í Bretlandi er hann kynntur sem íslenski ökuþórinn þótt einnig vilji Englendingar að sjálfsögðu eiga sína hlutdeild í honum. Rétt eins og menn segja stoltir frá sínum eignarhlut í virðulegu fyrirtæki.

Og það er einmitt það sem kappakstur er. Hann er nokkurs konar fyrirtæki. Rekstarkostnaðurinn er mikill. Hann brúa menn með hjálp styrktaraðila. Viktor Þór hefur undanfarin tvö ár notið tilstyrks íslenskra fyrirtækja en ekki er að sjá á bíl hans í ár að svo sé. Er það miður því glæsilegur árangur hans vekur athygli í Bretlandi - og víðar. Sigur í tveimur mótum um helgina mun stórauka athygli þá sem þessi ungi og efnilegi ökuþór hlýtur. Bæði meðal áhorfenda, áhugafólks og síðast en ekki síst forsvarsmanna stórliða. Rétt eins og efnilegur fótboltamaður.

Eiður Guðjohnsen hefur gert garðinn frægan og borið hróður Íslands undanfarin ár í Englandi. Hann á mikið eftir en ætli röðin sé ekki að koma að Viktor Þór í þessum efnum. Hann ekur stoltur með íslenska fánann á bíl sínum. Og á keppnishjálminum. Er ekki komin röðin að íslenskum fyrirtækjum að skjóta styrkum stoðum undir rekstur hans svo hann megi eflast enn frekar og komast í hóp þeirra stóru? 

Algent er að allt þar til menn komast að í formúlu-1 þurfi ökuþórar að færa liðum sínum styrktarfé. Það er metnaðarmál margra fyrirtækja og eftirsóknarvert að tengjast formúlunni. Og þar komast færri að en vilja, svo einfalt er það. Ávinningurinn er gagnkvæmur. Ef vel gengur hefur styrkurinn komið viðkomandi liði vel og styrktaraðilinn notar tengslin í þágu eigin kynningar. Tvö íslensk fyrirtæki styðja lið í formúlu-1, Baugur lið Williams gegnum verslanakeðjuna Hamleys og Glitnir banki styrkir rússneska liðið Midland F1 gegnum dótturbanka sinn í Lúxemborg. Það er vel en mér sýnist vera laust auglýsingapláss á bíl Viktors Þórs, jafnvel það besta, á sjálfum afturvængnum.

Á ég að trúa því að íslensk útrásarfyrirtæki hafi ekki séð þámöguleika sem í því felst að tengjast hinum íslenska ökuþór sem er á hraðferð upp á við sem kappakstursmaður? Maðurinn sem í gær vann tvöfaldan sigur í hinni sögufrægu Brands Hatch-braut austan Lundúna? Það hlýtur að eiga eftir að breytast.

 


Kimi lélegur langhlaupari

Mér finnst Kimi Räikkönen full fljótur til uppgjafar í formúlunni. Finnar eru þekktir fyrir góða langhlaupara og keppnin um heimsmeistaratitil ökuþóra er eins og hvert annað langhlaup. Engu hlaupi er lokið fyrr en á mark er komið. Hann er ekki í þeirri stöðu að hafa sprengt sig á fyrsta hring. Þess vegna er yfirlýsing hans um að hann sé úr leik fallinn í titilslagnum óskiljanleg.  

   Maður freistast til að leita skýringa í eigin hugarfylgsni. Upp spretta spurningar. Vissulega hefur hann kvartað undan hraðaleysi McLarenbílsins en jafnharðan segir stjórinn Ron Dennis að engar áhyggjur þurfi að hafa af hraða silfurörvanna! Räikkönen hefur nú spyrnt við fótum all hressilega og nánast með berum orðum gefið frat í síðasta sköpunarverk Adrians Newey.

   Er hann ekki líka með þessu að segja blákalt skilið við McLaren. Bílar liðsins hafa verið einstaklega mistækir undanfarin ár og hann segist ætla að keppa fyrir lið sem getur sigrað á næstu árum. Segir þar aðeins Renault og Ferrari koma til greina auk McLaren.

   Þessum mikla keppnismanni hlýtur að hafa liðið illa í Barcelona í gær - það er niðurdrepandi sjón að horfa á eftir keppinautum sínum hverfa sér sjónum. Räikkönen hefur ítrekað verið bendlaður við Ferrari. Og víst er að liðið þarf að reiða fram fúlgur fjár til að næla í hann. Ekki síst vegna þess að nú er Renault búið að bjóða honum 20 milljónir evra á ári fyrir að koma til sín! Það eru aðeins 1805 milljónir króna á gengi dagsins. Með öðrum orðum 150 milljónir á mánuði - sem er samasem fimm milljónir krónur hvern dag!

   Þetta mun vera margfalt hærri upphæð en Renault hefur verið að borga Alonso. Einkennilegt hlutskipti að vera heimsmeistari á lúsarlaunum á meðan uppgjafa ökuþór eru boðnar svimandi upphæðir úr mörgum áttum! Öðru vísi mér áður brá, ég segi bara ekki annað.

 


Tímabær sigur Alonso á heimavelli

Sigur Fernando Alonso í Barcelona var tímabær. Draumur sérhvers ökuþórs er að vinna á heimavelli en bið hefur verið á því í tilfelli Alonso. Tvisvar hefur hann orðið annar en í dag gat ekkert nema bilun í bílnum komið í veg fyrir sigur. Kominn heim til keppni sem heimsmeistari var hann greinilega frá upphafi staðráðinn í að láta draum sinn og landa sinna um sigur fyrsta spænska ökuþórsins í Spánarkappakstrinum rætast.

Það var ekki amalegt að hafa sjálfan þjóðhöfðingjann Jóhann Karl sér til fulltingis. Annars er konungur mikill áhugamaður um íþróttir. Leggur sig fram um að styðja landa sína með nærveru sinni og hefur um langan aldur verið viðstaddur kappaksturinn í Barcelona. Honum hefur ekki leiðst að afhenda verðlaunin í dag.

Alonso sneri dæminu úr tveimur síðustu mótum við og lagði Mihcael Schumacher örugglega að velli - og það á herfræðinni. Fyrir viku var Schumacher með yfirhöndina og vann glæsilegan sigur í Nürburgring, sérstaklega þó með góðri keppnisáætlun því Ferraribíllinn virðist að öðru leyti orðinn nokkuð jafn Renaultinum að getu.

Rétt eins og Schumacher naut aðstoðar liðsfélaga síns Massa í keppninni í Imola fyrir þremur vikum hafði Alonso stuðning af Giancarlo Fisichella framan af keppninni í dag. Var hann tilbúinn að tefja fyrir Schumacher. Eftir á að hyggja og í ljósi þess hversu miklu meira bensín Schumacher var með í sínum bíl uppskar Fisichella ekkert nema tapa öðru sætinu til Schumachers.

Oftast hefur mér fundist lítið varið í Spánarkappaksturinn. Nánast eins og prósessía frá upphafi til enda og lítil sem engin keppni um sæti. Það vantaði mjög á slíkar viðureignir í dag en samt var stemmningin öðru vísi og mikil spenna í loftinu í Barcelona. Þar kemur Alonso til sögunnar. Pressan á honum var mikil. Stemmningin stórjókst eftir sigur hans í keppninni um ráspólinn. Og í ljósi þess hvernig fyrri mót hafa þróast var erfitt að segja til um hvernig færi í dag fyrr en að loknum seinni þjónustustoppunum. Þá gerði Schumacher sér ljóst að hann næði ekki Alonso og sparaði mótor sinn eftir það en hann þarf hann að nota í næsta móti, í Mónakó. Þar verður Alonso hins vegar með nýjan mótor þar sem mótorinn í dag var einnig í bíl hans í Nürburgring.

Ef Barcelonakappaksturinn er fjörlítill þá er Mónakókappaksturinn enn verri - örugglega jafnleiðinlegasta mót ársins. Eina vonin um að röðin breytist eftir að rásmerki er gefið er að bílar skelli utan í vegriðum eða hlekkist á með einhverjum öðrum hætti. Framúrakstur heyrir þar til undantekninga. Meira fjör ætti hins vegar að verða þegar í breska kappaksturinn í Silverstone kemur 11. júní og í mótunum í framhaldi af því. Ég hlakka meira til þeirra móta en þess næsta.

 


Sagan um samningamál Schumacher orðin leiðinleg

Sagan endalausa stendur undir nafni. Sagan um það hvenær Michael Schumacher ákveður hvort hann hættir keppni í vertíðarlok eða heldur áfram. Virðist hann eiga erfitt með að ákveða sig því í dag sagðist hann allt eins þurfa tíma út vertíðina til að hugsa málið. 

Fjölmiðlar – og er formúluvefur mbl.is ekki þar undan skilinn – hafa flutt marga fréttina af málinu allt frá í fyrra. Bæði hann og umboðsmaður hans, Willi Weber, hafa verið loðnir í svörum og nefnt hina og þessa tíma um það hvenær ákvörðun myndi liggja fyrir.

 Síðast í gær tjáði Weber sig og sagðist gera ráð fyrir fregnum af fyrirætlunum Schumacher í júlí. Áður hafði hann nefnt júní, þar áður maí og svo framvegis. Þá sagði Ferraristjórinn Luca di Montezemolo í viðtali við ítalska íþróttadagblaðið Gazzetta dello Sport í apríl að hann vænti svars frá Schumacher í maí – þessum mánuði – um það hvort hann héldi áfram eða hætti.

 

Svo gefur Schumacher til kynna í dag að þurfi fimm mánuði til viðbótar til að velta málinu fyrir sér. Gott og vel. Hann veit best sjálfur hvaða tíma hann þarf til að hugsa málið og skoða. En hvað sem öðru líður þá er ég eiginlega búinn að fá hundleið á þessu máli. Það er löngu orðið svo farsakennt. Auðvitað vil ég að Schumacher haldi áfram. Hann er í fullu fjöri og tvímælalaust einn þriggja toppmanna formúlunnar í dag. Og næstu ára, ef hann vill.  Ég hef haft á tilfinningunni að hann sé tilbúinn í  eitt ár enn, en Ferrariliðið vill fá hann til tveggja ára. Það segir Montezemolo að honum hafi verið boðið, hann þurfi bara að segja já eða nei.  Kannski var Schumacher að gera grín að öllu fárinu er hann sagði í Barcelona í dag, að hugsanlega yrði löng bið í niðurstöðu sína. „Ferrari er alveg ánægt þótt það þurfi að bíða til vertíðarloka,“ sagði hann.

Ætti Renault að hvíla Fisichella?

Stjórnendur Renaultliðsins virðast stundum hafa ástæðu til að ergjast út í Giancarlo Fisichella. Mér finnst reyndar að þeir ættu að hvíla hann og gefa tilraunaþór sínum,  finnska ökuþórnum Heikki Kovalainen, tækifæri í staðinn. Já, eða einhverjum frönskum ökuþórum, nóg er af þeim góðum, t.d. í GP2- og A1-mótunum.

Það er ekki bara að gengi Fisichella sé skrykkjótt frá einu móti til annars. Að maður tali ekki um skapgerð hans, eins og hún braust út gagnvart Jacquese Villeneuve í tímatökunum í Nürburgring.

Nei, hraði Fisichella í keppni á það til að vera skrykkjóttur einnig. Furðugóðir hringir inn á milli en hægagangur þess utan. Og oft er eins og hann finni ekki rétta tempóið fyrr en undir lok kappaksturs.

Í fyrra setti hann til að mynda hraðasta hring Spánarkappakstursins í Barcelona á síðasta hring! En var samt mínútu á eftir sigurvegaranum, Kimi Räikkönen hjá McLaren, á mark.

Skrykkjótt ók hann einnig í Nürburgring um helgina. Yfirleitt ók hann hringinn á rúmlega 1:35 mínútum en svo batnaði tíminn allt í einu um sekúndu á 22. hring. Og án þess að hafa farið neðar kom allt í einu 1:32,964 mín. hringur hjá Fisichella á 46. hring. Alveg eins og þruma úr heiðskíru lofti! Og svo datt hraðinn niður aftur. Hann varð þó altjent sjötti á mark og því í fjórða mótinu í röð í stigasæti. Það hafði hann ekki afrekað frá árinu 2004.

Með hraðasta hring sínum sýndi Fisichella samskonar sprett og Michael Schumacher, Fernando Alonso og Kimi Räikkönen. Engir aðrir komust undir 1:33 mínútur. Munurinn á honum og þeim er að hraði þeirra var mun stöðugri.

 


Fljótir fákar í Spa

Þótt undarlegt kunni það að hljóma hófst Ítalíureiðin á hjólum - Diro di Italia - í Belgíu um helgina. Á fjórðu dagleið sinni í gær lögðu hjólareiðagarparnir leið sína meðal annars um formúlubrautina í Spa Francorchamps. Í þeim áfanga hjóluðu þeir frá  Wanze til Hotton í Belgíu.

Viðkoman í formúlubrautinni var síðasti kafli keppninnar í Belgíu. Í dag heldur hersingin land- og loftleiðis til Ítalíu. Áfram verður þar haldið á morgun, fimmtudag. Þá þenja knaparnir hjólhesta sína og sjálfa sig í kapp við klukkuna, einn og einn í einu, 38 km vegalengd.

 


Vandi Toyota heldur áfram

Lengi vel virtist Toyota ætla að komast vel frá Evrópukappakstrinum í Nürnburgring um helgina. En það er ekki nóg að vera famarlega í byrjun, það er röðin í mark sem telur. Markmið liðsins var að vinna mótssigur í ár. Ekki virðast horfur á því ýkja miklar nú er svo gott sem þriðjungur vertíðar er að baki.

 

Jarno Trulli byrjaði keppni sjöundi og Ralf Schumacher 11. Um skeið voru þeir nokkrum sætum framar eftir að keppnin hófst. Á endanum kláraði Trulli utan stiga og er það níunda mótið í röð sem hann fer heim stigalaus. Er það svipaður árangur og varð til þess að hann var látinn fara frá Renault 2004.

 

Ralf virtist ætla að verða í sjötta sæti í 150. mótinu sínu. Mótorinn sprakk hins vegar er stutt var eftir. Hann hafði lokið öllum mótum ársins fram að þessu. Hann vann Evrópukappaksturinn á Williamsbíl árið 2003 en hefur ekki komist á mark í Nürburgring síðan.

 

Vonandi er að hagur strympu batni og Toyota láti fastar að sér kveða. Miðað við það sem það hefur lagt í sölurnar hlýtur sá dagur að koma að það uppskeri vel.    

 

Red Bull átti ekki heldur góðan dag. Í þriðja sinn í síðustu fjórum mótum féllu báðir bílar liðsins úr leik.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband