Færsluflokkur: Formúla 1
Sunnudagur, 17. júní 2007
Ögurstund hjá Kimi Räikkönen
Bandaríski kappaksturinn er Kimi Räikkönen einkar mikilvægur ætli hann sér að vera lengur með í keppninni um heimsmeistaratitil ökuþóra.
Verði hann fjarri verðlaunapalli - en báðir McLarenmennirnir á honum - er hann á góðri leið með að missa af lestinni.
Erfitt gengi McLaren í fyrra og hitteðfyrra eru megin ástæður þess að Räikkönen hélt á vit Ferrari við brottför Michaels Schumacher.
En síðan hefur Ferrari farið aftur í samanburði við McLaren og hann fallið í fjórða sæti, 21 stigi á eftir Hamilton og 13 á eftir Alonso. Takmark Räikkönen hlýtur því að vera að eiga betra mót í Indianapolis en undanförnum þremur. Honum er mikilvægt að ná góðri ræsingu og geta síðan spilað hindranalaust úr keppnisáætlun sinni. Áætlanir ökuþóra í kringum hann koma vitaskuld ekki í ljós fyrr en eftir að stað er komið, hvenær fyrstu þjónustustopp eiga sér stað.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 11:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 16. júní 2007
Silfurörvar í sérflokki
Eins og í undanförnum mótum virtust silfurörvar McLaren vera í sérflokki, að loknum frjálsu æfingunum í gær, föstudag, í Indianapolis. Á þeirri seinni sóttu Ferraribílarnir að vísu á.
Yfirburðir McLaren voru samt áberandi og vöknuðu strax spurningar hvort bílar liðsins myndu sýna í kappakstrinum á morgun, sunnudag, álíka yfirburði og í Mónakó og Montreal.
Til gamans má geta þess, að Fernando Alonso og Lewis Hamilton eru einu ökuþórarnir sem lokið hafa öllum keppnishringjum mótanna sex sem lokið er, eða 384. McLarenþórarnir tveir eru jafnframt einu ökuþórarnir sem unnið hafa stig í hverju móti.
Laugardagur, 16. júní 2007
Sápuópera fjölmiðla sem sögð er eiga sér stað hjá McLaren
Sápuóperan sem í gangi hefur verið kringum McLarenliðið - alla vega á síðum breskra og spænskra fjölmiðla - hefur verið nokkuð áhugaverð. Þar hefur verið farið verulega út úr þrælstífum farvegi sem lengi hefur einkennt almannatengsl McLaren. Og Lewis Hamilton er eiginlega aðal sökudólgurinn!
Hví segi ég það? Jú, breskir blaðamenn fengu hann á eitthvert flug í Mónakó. Þeir hafa líklega verið þangað sendir til að dokumentera ætlað jómfrúarsigur nýliðans þar. Allavega var breska pressan búin að spinna upp sögur þess efnis að þar myndi breska undrið sigra.
Og Hamilton missti út úr sér eftir kappaksturinn að honum hafi verið sagt að halda stöðu sinni - öðru sæti - eftir þjónustustoppinn og reyna ekki að taka fram úr Alonso. Sagðist heldur ekki vera ökumaður númer eitt innan liðsins, eins og númerið á bílnum hans segði til um, númer 2. Þvíværi sér líklega ætlað að víkja fyrir Alonso ef svo bæri undir.
Liðsstjórinn Ron Dennis staðfesti að ökuþórunum hefði verið gert í ljósi yfirburða sinna að slaka á í lokin og koma bílunum í höfn í fyrsta og öðru sæti. Væri það viðtekin venja við kringumstæður sem þær sem voru í kappakstrinum, einkum og sér í lagi í Mónakó.
Þar með taldi breska pressan sig komin með afburða fóður í fréttir um að bruggað hafi verið samsæri gegn ensku hetjunni í enska liðinu. Umfjöllun þeirra leiddi til rannsóknar á því hvort úrslitum kappakstursins hafi verið hagrætt, eins og fjölmiðlar í Bretlandi héldu bókstaflega fram. Til að gera langa sögu stutta var McLaren hreinsað af slíku og sagt hafa staðið að öllu leyti faglega og eðlilega að þátttöku sinni í Mónakó.
Dennis sagði síðar, að Hamilton hafi hlaupið á sig með ummælum sínum í Mónakó. Og svo sem skiljanlegt af ungum manni sem lentur væri í skolti grimmúðugra fjölmiðlamanna.
Nýliðanum hafði orðið á í messunni, látið tilfinningarnar hlaupa með sig í gönur og McLaren sá sig tilneytt til að takmarka aðgang fjölmiðla að þeim Alonso. Öldur virtist vera að lægja er Alonso sagði við spænska útvarpsstöð að sér liði ekki enn nægilega vel hjá McLaren og fyndist sem Hamilton nyti þar meiri hjálpar, enda enskur ökumaður og liðið enskt.
Það taldi Alonso sosum alveg skiljanlegt og bætti við að breskir og spænskir fjölmiðlar myndu, allt eftir efninu, alltaf hafa eitthvað til að spinna upp úr öllu veldi. Ef sér gengi illa myndu spænskir fjölmiðlar leggja það út á verri veg en efni stæði til og breskir þegar á móti blesi hjá Hamilton.
Allt er þetta nú frekar lítilfjörlegt, finnst mér, og óþarfi að fara algjörlega af hjörum, eins og kollegar mínir víða virðast gera. Og verðum við ekki bara að trúa ökuþórunum báðum og forsvarsmönnum McLaren, að þar sé engin spenna, engin hjaðningavíg í gangi, heldur fyrirtaks samstarf allra aðila, þar á meðal ökuþóranna, og andrúmsloft eins og best gerist. Sem lýsi sér best í þeirri drottnun sem liðið hefur sýnt í undanförnum mótum og virðist ekki vera að ljúka.
Ómögulegt er að segja til um eða spá um framhaldið, og ekki ætla ég mér þá ósvinnu. En ætli megi ekki segja um þessi mál og hárgreiðslustólinn, sem þrætt hefur verið um í fjögur ár í Kópavogi, að sjaldan hafi jafn lítil mál stækkað jafn mikið í smæð sinni.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 16:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 11. júní 2007
Hvaða ráð gefur Schumacher?
Hvaða ráð gefur Michael Schumacher Ferrari? Veit einhver það? Í þessu nýja hlutverki sínu - sérlegur ráðgjafi liðsstjórans Jean Todt - hefur hann verið viðstaddur þrjú mót í röð og haft sig í frammi í bílskúrnum og stjórnborðinu. Það þarf ekki að hafa langt mál um það, að þetta eru með ömurlegustu mótum Ferrari lengi, að eigin sögn.
Því skal þó haldið til haga að Felipe Massa vann fyrsta kappaksturinn sem ráðgjafi Schumacher var við störf, í Barcelona. (Því er reyndar hvíslað að Schumacher sé einkaþjálfari Massa og láti Kimi Räikkönen eiga sig).
Síðan tóku við Mónakó og Montreal nú um helgina. Mót til að gleyma, við verðum betri í næsta móti, sögðu Ferrarimenn eftir þau bæði.
Þeir töluðu um hörmungar í Mónakó en vísuðu til einstakra sérkenna brautarinnr og að bíll Ferrari væri lengri en annarra, þ.e. bilið milli fram- og afturöxla, sem væri vont í Mónakó. McLaren drottnaði á götum furstadæmisins og silfurörvarnar unnu aftur örugglega í gær, í Montreal, og Ferrarifákarnir voru aldrei í tæri við toppsætið í báðum.
Todt viðurkennir að McLaren sé búið að velta Ferrari úr toppsætinu en huggar sig við að langt er eftir vertíðar, 11 mót. Segir það nægan tíma til að laga stöðuna og komast aftur á toppinn í titilslagnum, meðan menn hafi trú á því að þeir geti það, eins og hann segir ekki skorta hjá Ferrari. Segir sem fyrr að næsta mót muni ganga betur en hið síðasta, aðstæður í Indianapolis henti keppnisfákunum betur en brautirnar í Mónakó og Montreal.
Það kemur auðvitað allt í ljós hvað úr hverju - en á sama tíma velti ég fyrir mér hvort Schumacher eigi eftir að ráða úrslitum? Hvað tillag hans dugar langt? Eða er það út í hött að segja - í ljósi reynslunnar - að hann ætti bara að njóta þess að vera hættur og láta liðið í friði?
Hvað segja menn um það?
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 19:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 11. júní 2007
Sloppinn fyrir horn?
Ég vildi geta sagt að Heikki Kovalainen hafi lesið bloggið mitt síðasta og tekið pistilinn sem áhrínisorð. Það verður að segjast um kappaksturinn í Montreal að þar var allt annar Heikki á ferð en fram að því. Hóf keppni 22. og síðastur en keppti í lokin um sæti á verðlaunapalli.
Auðvitað hafði Kovalainen heppnina með sér þar sem öryggisbíllinn kom fimm sinnum út í brautina vegna óhappa. Á því græddu þeir mest sem lögðu upp með það að stoppa aðeins einu sinni til að taka bensín og skipta um dekk. Þeir eru ekki alltaf svona heppnir og allt í lagi að minni menn fái stundum að skína, eins og Alexander Wurz hjá Williams sem ók úr 19. sæti í það þriðja.
Þetta sýnir að kappakstri er aldrei lokið fyrr en flaggið fellur. Skemmtilegt fyrir Wurz þar sem hann hóf keppnisferilinn í formúlu-1 í Montreal 10 árum áður.
Aftur að Kovalainen til að veita honum uppreisn æru fyrir gagnrýnina. Auk heppni verður að skrifa árangur hans líka á góða keppnisáætlun Renault og góðan og algjörlega mistakalausan akstur hans.
Kovalainen stóð sig mjög vel þegar mest á reyndi, á síðustu 10-15 hringjunum. Varðist þá fimlega pressu frá bæði Kimi Räikkönen og Fernando Alonso og hélt sínu örugglega. Og gerði meir að segja tilraunir til að komast fram úr Wurz, en var aldrei nógsamlega nærri honum til að eiga möguleika.
Með því sýndi hann líka skynsamlega sókn en ekki fífldjarfa, eins og freistandi kann að hafa verið með verðlaunapall í augsýn. Kovalainen náði ekki bara sínum besta árangri í formúlu-1, heldur jafnaði besta árangur Giancarlo Fisichella, sem varð fjórði í Mónakó.
Um leið og Renault gleðst yfir kröftugum Kovalainen grætur það refsingu Fisichella sem dæmdur var úr leik fyrir að aka út í brautina úr bílskúrareininni gegn rauðu ljósi. Fisichella var í toppslagnum fram að því og sýndi að Renaultinn er orðinn jafngóður Ferrarinum. Kvaðst hann ekki hafa séð rauða ljósið er hann ók úr reininni í keppni við aðra bíla sem hann sagðist hafa haft augu á.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 08:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 10. júní 2007
Kovalainen hvíldur?
Heikki Kovalainen hefur staðið langt undir væntingum hjá Renault. Tvær ákeyrslur á öryggisveggi í Montreal í gær og fyrradag benda til að hann ráði ekki við pressuna sem er á ökuþórum í formúlu-1. Er frammistaða hans allt önnur og lakari en til dæmis tveggja gamalla keppinauta hans úr öðrum mótaflokkum, Lewis Hamilton og Nico Rosberg.
Miklar væntingar voru gerðar til Kovalainen og Renault hafði hann í sérstakri starfsþjálfun allt síðastliðið ár sem tilraunaökuþór. Alveg sömu aðferð beitt og við Fernando Alonso á sínum tíma, árið áður en hann var gerður að keppnisþór. Og í sömu skólun er nú tilraunaþórinn Nelson Piquet yngri.
Það skyldi þó aldrei verða að Piquet fá tækifæri að spreyta sig, þ.e.a.s. ef Heikki hífir ekki upp um sig árangursbuxurnar?
Ef til vill er pressan að ná tökum á Kovalainen og hann að reyna að sækja full mikið við að standa sig. Hann gerir sér örugglega betur grein fyrir því en margir að frammistaðan til þessa er ekki gott vegarnesti upp á framtíðina í formúlu-1. Sjöunda sæti á mark er besti árangur hans í fyrstu fimm mótunum.
Litlar líkur eru á að hann geri betur í Montreal í dag. Mér segir svo hugur um að liðsstjórinn Flavio Briatore sé eigi alls kostar ánægður með finnska ökuþórinn því Renault er ekki með í keppninni til að dóla í miðjum hóp eða aftar. Forstjóri franska bílafyrirtækisins, Carlos Ghosn, sagði fyrir skömmu að fjórða sæti eða aftar væri óviðunandi og Renault yrði ekki lengi með í formúlunni ef það gerði ekki betur.
Þetta er reyndar einn helsti veikleiki formúlunnar sem lagt hefur sig í framkróka um að púkka upp á bílafyrirtæki í stað keppnislið einyrkja - sem við höfum séð hverfa úr formúlunni eitt af öðru á undanförnum árum. Bílafyrirtækin líta á formúluna sem auglýsingaglugga - en ekki íþrótt fyrst og fremst - og þegar árangurinn þjónar ekki hagsmunum þeirra, eða jafnvel skaðar þá, hverfa þau á brott, ef þeim sýnist.
Nýlegt dæmi um það er Ford og fróðlegt verður að sjá hversu lengi Honda og Toyota tolla í formúlunni. Bæði fyrirtæki eyða milljörðum á ári án þess að uppskera nokkurn skapaðan hlut.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 15:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 28. maí 2007
Mónakó mætti missa sín!
Sumir segja að Mónakó sé gimsteinn í kórónu formúlunnar. Ætli það sé ekki bara nostalgía því ætli nokkurt kappakstur sé jafn óspennandi á að horfa. Eiginlega er nóg að fylgjast með tímatökunum daginn áður og svo fyrsta hring. Eftir það breytist ekkert. Nema menn geri akstursmistök eða bíllinn bilar.
Mætti ég ráða væri Mónakó ekki lengur á mótaskránni. Lái mér hver sem vill. Ég efa stórlega að mótið sé til að auka vegsemd formúlunnar. Það er ekki kappakstur í mínum huga, heldur prósessía. Eins og Ron Dennis hjá McLaren staðfesti reyndar með því að greina frá því að hann hafi skipað ökuþórum sínum - sem voru langt á undan rest - að halda stöðu sinni og keppa ekki innbyrðis eftir um þriðjung mótsins.
Ég vil það harða keppni um sigur og fyrstu sæti, að skjárinn haldi manni með tonnataki. Allir vita fyrirfram að upp á slíkt verður ekki boðið í Mónakó. Þar sem bílar biluðu ekki og menn gerðu engin mistök - alla vega ekki nógu alvarleg - var röð fyrstu fjögurra manna í kappakstrinum sú sama og í tímatökunum. Svona hefur þetta oftast verið.
Staðurinn nýtur sögu og hefðar, ellegar væri búið að kippa honum út. Ökuþórarnir hafa örugglega gaman af tilbreytingunni, að aka á níðþröngum götunum með ógnandi vegrið og veggi í sentímetra fjarlægð. Það er alveg hægt að setja sig í spor þeirra, en sumum þeirra finnst auglýsingamennskan og glamúrinn í kringum mótið það þrúgandi að þeir flýja bæinn og til fjalla í frítíma!
Annars voru yfirburðir McLaren athyglisverðir og líklega bíða margir þess að sjá hvort áframhald verði á því í næsta móti, Kanadakappakstrinum í Montreal eftir hálfan mánuð. Það kæmi mér á óvart því þar eru aðstæður gjörólíkar, þá njóta straumfræðilega skilvirkir bílar sín en á slíku var lítil sem engin þörf í Mónakó, heldur mikil vængpressa fyrst og fremst.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 19:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 18. maí 2007
Óspennandi í Barcelona
Ég hef af ásettu ráði beðið í nokkra daga með að blogga um kappaksturinn í Barcelona. Mér finnst hann yfirleitt einn sá jafnleiðinlegasti á árinu og skrifi ég "neikvætt" um formúluna fornemast einn til tveir einstaklingar og halda mig þurfa á meðhöndlun að halda!
Engin breyting varð á þessu síðastliðin sunnudag, eftir fyrstu beygju hefði alveg mátt sleppa því að fylgjast frekar með, eins og oft áður. Eina sem ruglaði röðinni voru bilanir - ekki man ég eftir neinum framúrakstri. Svona hefur þetta verið svo lengi sem ég man eftir.
Kannski er þetta vegna þess að liðin og ökuþórarnir þekkja brautina eins og handarbak sitt vegna alls þróunarakstursins sem þar fer fram og því klikka uppsetningar bílanna aldrei, þær henta alltaf aðstæðum eins og best verður á kosið. Akstursmistök eru vart til vegna kunnugleika keyrenda á Katalóníuhringnum.
Mér fyndist sem sagt allt í lagi að taka Barcelona af mótaskránni og má ég t.d. frekar biðja Bernie Ecclestone að sýna Silverstone vægð. Þótt þar sé flest gamalt og lúið er þó keppnin þar eitthvað fjörlegri og stemmningin.
Menn segja að Mónakókappaksturinn sé leiðinlegur, eftir tímatökurnar sé hann búinn. Í þessu eru sannleikskorn, en þó er hægt að ganga að því fyrirfram vísu að þar ríkir spenna. Óvænt atvik geta gerst sem breyta miklu og þar á ég fyrst og fremst við akstursmistök ökuþóra. Þess vegna fylgist maður yfirleitt spenntur með.
Vonandi verður maður ekki fyrir vonbrigðum tvær mótshelgar í röð.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 14:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 12. maí 2007
Kjósið eins og mér þóknast ellegar fáið þið ekki kappakstur!
Bernie Ecclestone, sem ræður öllu því í formúlu-1 sem hann vill ráða, hefur verið í miklu uppáhaldi hjá mér um dagana. Þrátt fyrir þá aðdáun vík ég mér ekki undan því að gagnrýna hann ef svo ber undir. Margt gott hefur hann gert. Og aðra hluti umdeilda, en þar hlýtur að ná hámarki hans afskipti af spænskri pólitík!
Ecclestone samdi í vikunni um mótshald í Valensíu á Spáni til sjö ára frá og með næsta ári. Tilkynnti þó með pomp og prakt að samkomulagið væri skilyrt; héraðshöfðingi appelsínuhéraðsins Valensíu skyldi ná endurkjöri í kosningum eftir hálfan mánuð. Hann hefði jú lofað að borga Ecclestone 26 milljónir evra á ári fyrir mótið, um 2300 milljónir króna. Því yrði ekki skrifað undir samninginn fyrr en eftir kosningar og þá því aðeins að úrslitin í kosningunum yrðu "rétt".
Það er skiljanlegt að þetta skuli hafa leitt til pólískrar ólgu á Spáni. Og skiljanlegt að því sé haldið fram að hér sé verið að reyna að kúga kjósendur. Og vægast sagt undarleg hegðan af hálfu Bernie. Af hverju beið hann ekki með málið þar til eftir kosningar og lét það þá niður falla ef úrslitin yrðu ekki eins og honum þóknaðist? Og af hverju skrifaði hann ekki strax undir því kjörnir fulltrúar hljóta hafa fullt umboð til þess þótt kosningar séu í nánd? Ef úrslitin yrðu honum ekki þóknanleg gæti hann látið á málið reyna, og vildu nýir valdhafar ekki virða samkomulagið þá yrði samningum rift og málið félli niður. Heimamenn sætu þá líklega uppi með skaðabætur. Eitt mót til eða frá á næsta ári skipti ekki máli og nógir eru þeir sem vilja fá að halda kappakstur í formúlu-1 þótt fyrirvarinn sé e.t.v. of lítill til að fylla skarð Valensíu þegar á næsta ári.
Allavega, Bernie Ecclestone hefur komið á óvart eina ferðina enn. Ætli kallinn hafi nokkuð verið að blanda sér í spænska pólitík visvítandi? Ég hallast að því að svo hafi ekki verið. Hann hefur einfaldlega talað óvarfærnislega og ekki hugsað út í afleiðingarnar.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 08:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 10. maí 2007
Uppgjöf Fisichella ótímabær
Rómanskt ráðleysi var það fyrsta sem mér datt í hug er ég sá að Giancarlo Fisichella hjá Renault væri búinn að gefast upp eftir aðeins þrjú mót. Maðurinn sem fyrir tveimur mánuðum ætlaði að verða heimsmeistari ökuþóra í ár. Og enn eftir 14 mót og keppninni lýkur ekki fyrr en eftir rúma fimm mánuði, seint í október.
Ég botna bókstaflega ekkert í því að jafn reyndur ökuþór skuli gripinn slíku vonleysi löngu fyrir tímann. Vissulega er Renaultliðið ekki svipur hjá sjón miðað við undanfarin tvö ár er það vann bæði titil ökuþóra og bílsmiða.
Keppnin í formúlu-1 er eins og langhlaup, það eru ekki endilega þeir sem eru fyrstir eftir tvo kílómetra sem verða fyrstir í mark eftir 10 km. Þess vegna þýðir ekkert annað en berjast vertíðina út í gegn. Til síðasta blóðdropa. Þetta er ekki spurning um raunsæi, heldur ákveðni og vilja, jafnvel svolitla sálfræði því væl í ökuþór getur smitað frá sér og dregið kjark úr öðrum liðsmönnum. Til hvers eiga þeir að fórna sér nótt sem nýtan dag ef ökuþórinn er búinn að gefast upp?
Þetta segir mér að Fisichella eigi ekki að fá fleiri tækifæri hjá Renault en út þetta ár. Liðið þarf aftur að næla í harðnagla og baráttumenn. Keppnismenn á borð við Fernando Alonso.
Það er hins vegar rétt hjá Fisichella að úr því sem komið er - og verði ekki verulegar breytingar til hins betra í næstu tveimur til þremur mótum - ætti Renault að einbeita sér fremur að hönnun og þróun keppnisbíl næsta árs í stað þess að eyða miklum kröftum í að betrumbæta núverandi bíl, sem hann segir andvana fæddan.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 08:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)