Færsluflokkur: Formúla 1

Toyota mun sigrast á vandanum!

Árangur Toyotaliðsins í Barein var langt undir væntingum og þaðan virðist liðið fara vængbrotið - svo ekki sé meira sagt - ef marka má yfirlýsingar forsvarsmanna þess. Gascoyne tæknistjóri segist hreint og beint ringlaður yfir hraðaskortinum.

Skiptin yfir á Bridgestonedekk af Michelin virðast hafa bitnað hart á Toyota. Allavega í samanburði við Williamsliðið. Það er mjög nærtæk skýring því Toyotabíllinn er meira og minna sá sami og liðið beitti í síðustu tveimur til þremur mótunum í fyrra með góðum árangri - þá voru Michelindekk undir honum.

Ég hef fulla trú á að Toyotamenn komist yfir vandann og muni laga stöðu sína stórlega að nokkrum mótum liðnum. Nú vita þeir nákvæmlega hvar þeir standa miðað við önnur lið og þeir hafa bæði aðstöðu og auðlindir til að takast á við vandann og sigrast á honum tiltölulega fljótt.  


Byrjunin lofar góðu!

Vertíðin fór vel af stað, hvernig sem á það er litið. Góður sigur Alonso eftir verðuga rimmu við Schumacher. Ánægjulegt að hann skuli kominn í toppslaginn á ný því það eykur bara á fjörið og dramatíkina í keppninni um heimsmeistaratitil ökuþóra. Ótrúlegur akstur hjá Räikkönen - það er eins og hann þurfi að starta aftast, þá er hann bestur!!!

Svo eru það öll ef-in! Hvað hefði gerst ef kúplingin hefði ekki snuðað Button í ræsingunni? Og hefði Rosberg ekki bara komist á pall ef hann hefði ekki klúðrað fyrstu beygjunni og snúist þar útaf? Það finnst mér ekki fjargi lagi að álykta.

Allavega kemur Williamsinn þægilega á óvart - þar á bæ hefur mönnum tekist að aðlagast skiptum yfir á Bridgestonedekk margfalt betur en Toyotamönnum! Og aukinheldur skiptu þeir um mótorsmið þannig að margfaldur nýr vandi blasti við Williams er liðið hannaði bíl sinn í fyrrahaust.

Hafi árangur Rosberg í fyrsta mótinu ekki verið tilviljun þá ætti hann að verða reglulega í stigasæti í ár og meðal 6-8 efstu í keppninni um titil ökuþóra á sínu fyrsta ári í Formúlu-1. Sá til hans í GP1-mótum í fyrra og hann er ótrúlega sókndjarfur og sýndi þar einstaka hæfileika - rétt eins og í Barein.


Á Schumacher sjens?

Michael Schumacher er heljarmenni, það er best að taka það fram. En ég held ekkert með honum frekar en öðrum ökuþórum. Og ég hata hann ekki heldur - þó fer ekki á milli mála að ýmsir stuðningsmenn hans halda það!!!  Við það verð ég víst að búa og sef eftir sem áður vært þrátt fyrir allt!

Á hann einhverja möguleika í titilbaráttunni í formúlunni í ár? Við upphaf vertíðar held ég ekki. En svo afsannar hann það og þá er það bara í stakasta lagi!

Vitaskuld hefur Schumacher talað undanfarið sem 248-bíllinn væri sérdeilis góður og tilbúinn í slaginn við Alonso og Räikkönen. Getur hann sagt annað? Hann er jú eins og fyrirliði á velli sem þarf að peppa liðsmenn sína og stuðningsfólkið í stúkunum og við sjónvarpsskjána. Foringi - og hefur verið góður sem slíkur. Bar höfuðið hátt í fyrra þótt örugglega væri hann hundfúll undir niðri sem alvöru keppnismanni sæmir!


Hvaða lið floppa?

Miðað við hvernig liðunum hefur gengið við þróunaraksturinn í vetur þá virðist blasa við að Red Bull floppi í ár. Og jafnvel Toyota líka.

Þetta er nokkuð undarlegt í ljósi þess að þau voru langfyrst til að smíða keppnisbíla sína og byrja prófanir á þeim. Mike Gascoyne tæknistjóri Toyota sagði blákalt að það myndi veita liðinu gríðarlegt forskot - það gæti verið búið að sníða alla galla sem óhjákvæmilega fylgdu svo miklum reglubreytingum og fyrir árið í ár. Fyrir vikið myndi Toyota mæta með óbrigðulan bíl í fyrsta mót. Í ljós kemur um helgina hversu sannspár hann reynist.  

Það á líka við um Red Bull að það er ekki allt fengið með peningum. Ekkert hefur verið til sparað og toppmenn keyptir til liðsins, síðast Adrian Newey frá McLaren. Minnir mig á Chelsea sem afrekaði frekar lítið árum saman þótt dýrar stjörnur væru í flestum stöðum.


Ballið að byrja í Barein

Loksins, loksins, segir maður bara. Nú nær spennan hámarki og allar vangaveltur vetursins, já  annað hvort reynast þær réttar eða rangar. Tekst Renault titilvörnin - ég hef mikla trú á því - eða kemst Ferrari aftur á toppinn eftir misheppnað tímabil í fyrra?

Ég held Honda verði topplið frá fyrsta móti en Ferrari nái sér ekki á skrið fyrr en er á vertíðina líður.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband