Fyrsti sigur KERS-bíls

Margs konar tímamót urđu í ungverska kappakstrinum önnur en ţau ađ ţar keppti yngsti ökuţór sögunnar, Jamie Alguersuari hjá Toro Rosso. Telst ţar međal annars til tíđinda ađ ţar vann bíll búinn KERS-búnađi sigur í fyrsta sinn; silfurör McLaren en undir stýri sat Lewis Hamilton.

Reyndar var KERS-bíll einnig í öđru sćti, eđa Ferrarifákur Kimi Räikkönen og líka í ţví fimmta, en ţar var á ferđ Heikki Kovalainen hjá McLaren. Er ţađ langbesta útkoma KERS-bíla í ár.

Ţetta var tíundi mótssigur Hamiltons en nefna má, ađ jafn marga sigra unnu Englendingurinn  James Hunt, Svíinn Ronnie Peterson, Suđur-Afríkumađurinn Jody Scheckter og Gerhard Berger sá austurríski.

Tveir breskir ökuţórar hafa ţar međ unniđ sigur í ár, Hamilton og Button. Ţađ hefur ekki gerst frá 1999 er Eddie Irvine, David Coulthard og Johnny Herbert unnu allir mót.

Fernando Alonso hjá Renault hóf keppni af ráspól í fyrsta sinn frá í ítalska kappakstrinum í Monza 2007. Var ţetta 18 ráspóll hans en jafnmarga unnu á sínum tíma ţeir Mario Andretti frá Bandaríkjunum og Frakkinn Rene Arnoux.

Ţrír ökumenn skiptust á forystu í Hungaroring í gćr, Alonso, Hamilton og Kovalainen. Enginn ţeirra hafđi veriđ í ţeirri stöđu fyrr á vertíđinni í ár.

Jenson Button hjá Brawn hefur veriđ í forystu meira en tvöfalt fleiri hringi en nokkur annar í ár. Ţó hefur hann aldrei veriđ í forysta í síđustu ţremur mótum. 

Button hefur unniđ stig í öllum mótum ársins en sjöunda sćtiđ í gćr er hans versti árangur í ár.

Mark Webber hjá Red Bull átti hrađasta hringinn í Hungaroring. Er ţađ í fyrsta sinn á ferlinum sem hann nćr ţeim áfanga. Skipar hann sér á bekk međ 115 öđrum ökumönnum sem sett hafa hrađasta mótshring í 60 ára sögu formúlunnar.

Vegna fjarveru Felipe Massa af völdum meiđsla í tímatökunum á laugardag tóku ađeins 19 bílar ţátt í kappakstrinum í gćr. Fćrri hafa ekki veriđ á rásmarkinu frá í bandaríska kappakstrinum áriđ 2005 er ţeir voru ađeins sex.

Renault hefur veriđ útilokađ frá nćsta móti, Evrópukappakstrinum í Valencia á Spáni 23. ágúst Álíka gerđist síđast 2005 er BAR-liđiđ var útilokađ frá tveimur mótum.

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband