Mánudagur, 10. september 2007
Hverjum dettur í hug að McLarenbílarnir séu smíðaðir upp úr teikningum Ferraribílsins?
Hverjum dettur í hug, eftir að hafa horft á kappaksturinn í Monza í gær, að McLarenbílarnir séu smíðaðir upp úr teikningum Ferraribílsins? Þeir rétti upp hönd! Í ljósi njósnamáls sem skekið hefur formúluna undanfarið var þetta eflaust mikilvægasti sigur McLaren í sögu liðsins. Og sætari en ella þar sem það vann tvöfalt á heimavelli Ferrari og gjörsigraði ítalska liðið.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 08:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 7. ágúst 2007
McLaren gæti komið í veg fyrir að Alonso keppi 2008
Allt getur gerst í formúlunni. Samt á ég bágt með að trúa því að Fernando Alonso sé á förum frá McLaren. Eftir aðeins eina vertíð af þremur sem hann er samningsbundinn liðinu. Ég ætla ekki að trúa því fyrr en það gerist.
Renault vildi fegið fá hann aftur og BMW liðið myndi ekki slá hendinni á móti stæði því hann til boða.
Vitað er að Alonso hefur ekki liðið alltof vel hjá McLaren og hann hefur lengi grunað það um að hygla Lewis Hamilton. Nýverið hefur hann reyndar sagt allt í stakasta lagi og sér líða vel hjá liðinu. Eftir uppákomur innan liðsins í Búdapest um helgina virðist ekki ýkja mikil eining þar á bæ.
Reyndar kann ein ástæða atburðanna vera ákafar tilraunir liðsstjórans Ron Dennis til að gera Alonso ánægðan og eyða grunsemdum hans um forgang Hamiltons. Honum mun áfram að hafa hann í sínum röðum enda er Alonso að verulegu leyti þakkað að McLarenbíllinn er sá besti í formúlunni í ár.
Dennis vísar á bug fregnum þess efnis að óvissa ríki um framtíð Alonso og hann sé e.t.v. á útleið. Ekkert annað sé á dagskrá af hálfu McLaren en standa við samninga beggja ökuþóra.
Það er óhjákvæmilegt að um svona sé kjaftað, sagði Dennis í Búdapest. Ökuþórar okkar eru samningsbundnir nokkur ár fram í tímann. Við munum uppfylla þá af okkar hálfu og vonum að ökuþórarnir standi við sitt en um það snúast samningar."
Þarf það endilega að þýða að Alonso keppi fyrir McLaren. Auðvitað er erfitt - og sennilega útilokað - að halda ökuþór sem misst hefur traust á liði sínu og vill fara. McLaren missti ekki aðeins afburða ökumann heldur sæi það væntanlega eftir honum til harðs keppinautar.
Liðið á þó alltaf þann kost að koma í veg fyrir að Alonso keppi yfirleitt á næsta ári vilji hann ekki aka silfurörvum McLaren. Með því að halda stíft í samninginn sem hann skrifaði upp á.
Formúla 1 | Breytt 8.8.2007 kl. 05:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 7. ágúst 2007
Kom dómurunum erjurnar hjá McLaren við?
Að nokkru leyti er hægt að taka undir með þeim sem gagnrýna refsingu Fernando Alonso í tímatökunum í Búdapest. Spurningin er hvort yfirvaldið eigi að skipta sér af innanbúðarerjum hjá keppnisliðum formúlunnar?
Var uppákoman við bílskúra McLaren í tímatökunum í Búdapest ekki barasta innanbúðarátök sem liðsstjórinn Ron Dennis átti að taka á, en ekki Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA)? Voru afskipti þess ekki óþörf? Gengu eftirlitsdómarar þess ekki of langt?
Ég fæ ekki betur séð af lestri skýrslu eftirlitsmanna FIA en þeir hafi gefið sér þá forsendu að Fernando Alonso hafi vísvitandi hindrað Lewis Hamilton með þeim afleiðingum að Hamilton gat ekki klárað síðustu tímatilraun sína.
Og segja að atburðirnir við bílskúr McLaren hafi ekki verið í þágu hagsmuna íþróttarinnar. Hvernig þá, spyr ég? Hvaða hagsmuna? Þeir þurfa að útskýra málið betur, finnst mér.
Í öllum ágreiningsefnum er hættulegt fordæmi að búa sér til forsendur. Á grundvelli þeirra draga menn svo ályktanir sem kunna vera rangar. Í besta falli handahófskenndar. Dennis gaf sínar skýringar á atvikinu og Alonso en dómararnir sögðust ekki trúa þeim.
Því spyr ég, hvað annað höfðu þeir til að fara eftir en skýringar Ron Dennis, Alonso og Hamiltons? Var það e.t.v. sá síðastnefndi sem hratt skoðun eftirlitsmannanna úr vör? Hann sást með einum þeirra að tjaldabaki í Búdapest rétt eftir tímatökuna og staðfestir það sjálfur en segir þá aðeins hafa átt stutt almennt spjall.
Getur ekki allt eins verið og þess þyrfti að spyrja Alonso að ætlun McLaren með biðinni hafi verið sú að þeir hafi verið að bíða eftir Kimi Räikkönen hjá Ferrari svo þeir gætu flækst fyrir honum í lokatilraun hans? Alla vega kom Alonso út í brautina í sína lokatilraun rétt fyrir framan Räikkönen og það ku há mönnum mjög að hafa bíl rétt á undan ef hratt skal aka.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 18:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 6. ágúst 2007
Bardagamenn og frekjuhundar nú sem fyrr
Ekki verður annað sagt en að helgin hafi verið tíðindasöm í Búdapest. Atburðir minna mann á þá daga er heimsmeistararnir Ayrton Senna og Alain Prost voru liðsfélagar hjá McLaren. Tveir klókir afburða- og bardagamenn. Það eru þeir Fernando Alonso og Lewis Hamilton líka og mér sýnist sá síðarnefndi ekki síðri frekjuhundur en núverandi meistari.
Oft sauð upp úr milli Senna og Prost og virtust þar takast á skapheitur Brasilíumaður annars vegar og yfirvegaður og útspekúleraður Frakki sem sýndist rólegheitamaður á yfirborðinu. Breskir fjölmiðlar hafa sumir hverjir málað Alonso sem yfirgangsmann og frekjuhund er reynt hafi að ná frumvkæði gegn Hamilton með brögðum.
Ætli þeir hinir sömu verði ekki að endurmeta þá afstöðu eftir atburði helgarinnar. Miðað við útskýringar McLarenliðsins á því hvernig það klúðraði tímatökunni í Búdapest hratt Hamilton þeirri atburðarás allri af stað með yfirgangi og frekju; með því að ganga á svig við ákvarðanir sem hann hafi sjálfur átt aðild að.
Nú er bleik eiginlega brugðið. Brosið sem einkennir Hamilton öllum stundum og virtist vörumerki nýliðasakleysis, ef svo mætti segja, er ekki svo saklaust eftir allt. Það er ekki bara að hann hafi þroskast vel sem ökuþór og sé a.m.k. jafngóður þeim bestu strax á fyrsta ári í formúlunni. Heldur virðist hann ekki hafa minni keppnisvilja og meistarafrekju.
Menn verða ekki meistarar nema á hörkunni og ótrúlega miklum keppnisvilja. Það brosar sig enginn til titla.
Áreiðanlega á Alonso sinn þátt í því hvernig fór, sérstaklega þessar 10 aukasekúndur sem hann dvaldi við bílskúrinn eftir að hann átti að fara af stað. Að spyrjast fyrst þá um hvort rétt dekk væru undir hljómar vægast sagt einkennilega.
Ljóst er að mikil spenna er innan McLaren um þessar mundir og milli Alonso og Hamilton. Því munu fjölmiðlar eflaust veita mikla athygli á þeim vertíðarþriðjungi sem eftir er.
Ferrariliðið getur þakkað klúðursmálum McLaren að eiginlega enn stærra klúður frá helginni hefur meira og minna fallið í skuggann. Þar á ég við að Ferrariliðið gleymdi að setja bensín á bíl Felipe Massa í annarri lotu tímatökunnar. Afleiðingarnar þekkja þeir sem fylgdust með keppninni. Honum var kappaksturinn ónýtur og stuðningsmenn Ferrari hafa tæpast haft mikla ánægju af því að sjá djúprauðan Ferrarifákinn þurfa 50 hringi til að komast fram úr Super Aguri-bíl.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 06:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 26. júlí 2007
Ferrari yfir strikið
Mér finnst Ferrariliðið fara alveg yfir strikið í viðbrögðum sínum við úrskurði íþróttaráðs Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) í njósnamálinu svonefnda í dag. Ráðið sagði það vera í trássi við íþróttareglur formúlu-1 að starfsaður McLaren skyldi vera með hugvitsgögn Ferrari undir höndum. Hins vegar hafi ekki verið hægt að gera liðinu refsingu því engin sönnun væri fyrir hendi um að það hefði notað gögnin. Punktur.
Tæknilega telst McLaren sökótt með því að einhver starfsmaður Ferrari hafði lekið leynilegum gögnum liðsins til aðalhönnuðar McLaren, Mike Coughlan. Staðhæft hefur verið að gögnin hafi aldrei í hús komið hjá McLaren og einungis verið á heimili Coughlan. Þessu heldur liðsstjórinn Ron Dennis fram og bæði vinir hans og óvinir segja heiðarlegri mann líklega ekki til í formúlu-1.
Nú hefur maður kannski ekki nógu góða mynd af því sem gerðist við vitnaleiðslurnar í dag og hvað nýtt - ef eitthvað er - í málinu kom þar fram sem rýrt hefur málstað McLaren. Er rétt að pæla í því hvort svo sé miðað við hin ofsafengnu viðbrögð Ferrari.
Það er náttúrulega skandall af hálfu Luca di Montezemolo og Jean Todt að halda því fram að með niðurstöðunni í dag hafi FIA lögleitt sviksemi í formúlu-1, svo eitthvað sé tínt upp úr yfirlýsingu Ferrari í framhaldi af vitnaleiðslunum og lyktum þeirra. Létu þeir sig dreyma um að vinna heimsmeistaratitla formúlunnar í dómsalnum? Altjent virðist Ferrari ekki hafa nógu mikla burði til að vinna þá úr þessu á kappakstursbrautinni, slíkt er forskot McLaren orðið.
Miðað við hversu forseti FIA, Max Mosley, hefur haft frumkvæði að því að taka hart á mönnum sem ætla hefur mátt að hafi komið óorði á formúluna með hegðan sinni eða yfirlýsingum þá tel ég að ganga megi út frá því sem vísu að hann bregðist við yfirlýsingu Ferrari.
Ef ekki þá verður það aðeins til að treysta málstað þeirra sem haldið hafa því fram um árabil að hann hafi verið helst til leiðitamur Ferrari. Spenntur mun ég fylgjast með hvað Mosley gerir, lágmark er að hann veiti forsvarsmönnum Ferrari tiltal.
Það skal tekið fram að ég fordæmi aðgerðir bæði þeirra sem láku gögnum Ferrari og þess sem við þeim tók. McLaren opnaði verksmiðju sína fyrir FIA og bauð sambandinu allan þann aðgang að tölvum og mannskap við rannsókn njósnamálsins. Hlutlausir fulltrúar FIA fundu engin merki um notkun McLaren á gögnunum. Því er McLaren hreinsað af aðild að málinu.
Til vara áskildi FIA sér rétt til að taka málið upp síðar ef eitthvað nýtt kemur í ljós er rýrt getur hlut McLaren. Þetta túlka ég sem vissan - og sjálfsagt eðlilegan - öryggistappa ef eitthvað þyrfti að skoða nánar þegar málaferlum vegna njósnanna á hendur Ferrarimönnum á Ítalíu og Coughlan í Englandi er lokið. En ég geng út frá því að málið sé þó búið fyrir McLaren eftir niðurstöðuna í dag.
Það er eins og Ferrarimenn skilji það ekki að það þurfi að sanna á menn eitthvað athæfi til að hægt sé að refsa fyrir það. Ætli þessi afstaða forsvarsmanna Ferrari endurspegli aðra réttlætisvitund en tíðkast t.d. norðan Alpanna?
Spyr sá sem ekki veit.
Laugardagur, 21. júlí 2007
Evrópukappakstur við hlið Grænhelju
Evrópukappaksturinn fer fram í 12. sinn í Nürburgring í Eifel-fjöllum í suðvestanverðu Þýskalandi, og alls í 17. sinn. Liggur formúlubrautin við jaðar fornfrægrar brautar með sama nafni en sem gengur manna á meðal undir uppnefninu Græna helvítið. Þótt nafngiftin sé neikvæð er umhverfið hér um slóðir ægifagurt.
Formúlu-1 kappakstri var hætt um skeið í Nürburgring eftir slysið hrikalega árið 1976 þar sem Niki Lauda slapp naumlega en illa meiddur úr eldhafi. Brautin var upphaflega 22,5 km og byggð í atvinnubótavinnu 1925 fyrir bílprófanir þýskra bílaframleiðenda. Fyrsti kappaksturinn fór þar fram tveimur árum seinna.
Skotinn Jackie Stewart sagði 1976, rétt eftir Lauda-slysið, að á löngum beinum köflum í brautinni væru ökuþórarnir eins og farþegar í bílunum því þeir hefðu ekkert að gera annað en stíga bensíngjöfina í botn.
Brautin var endurgerð og keppni í Formúlu-1 hafin þar á ný 1984, annar Evrópukappaksturinn, sem Alain Prost vann á McLaren-bíl. Þótti hún með endemum illa hönnuð og einhæf svo að eftir keppnina 1985 leið áratugur þar til keppt var aftur í Nürburgring. Brautinni var breytt og er nú mjög frábrugðin því sem var, en þó var beina upphafs- og lokakaflanum haldið.
Tímarnir breytast því árið 1995 töldu keppnisliðin brautina eina þá bestu í formúlu-1. Þar eru 12 beygjur og áhorfendur njóta víðast hvar frábærs útsýnis yfir brautina. Síðast var bætt við hana 2002 nýjum hlykk með þremur beygjum strax eftir beinan upphafskaflann og er hún 5,2 km á lengd. Þessi kafli verður nefndur í ár til heiðurs Michael Schumacher, sem hættur er keppni, og nefndur Schumacher-S-ið. Mun hann aka hring í brautinni af því tilefni.
Schumacher var sigursæll í Nürburgring, vann þar 1995 á Benettonbíl, en síðan á Ferrari 2000 og 2001, 2004 og 2006, og hefur því hrósað þar sigri fimm sinnum.
Evrópukappaksturinn hefur verið háður á fjórum brautum í þremur löndum frá 1984. Fyrsta mótið fór fram í Brands Hatch í Englandi 1983 og vann Nelson Piquet á Brabham-bíl.
Jacques Villeneuve vann jómfrúrsigur sinn í Nürburgring árið 1996 á Williams-bíl, í aðeins sínu fjórða móti. Hann var krýndur heimsmeistari í Evrópukappakstrinum árið eftir, sem fram fór í Jerez á Spáni, eftir að hafa lifað af tilraun Michaels Schumachers sem reyndi að keyra hann út af brautinni. Mika Häkkinen vann mótið í Jerez og þar með sinn fyrsta mótssigur í Formúlu-1.
Englendingurinn Johnny Herbert vann sinn þriðja sigur á ferlinum og fyrsta og eina sigur Stewart-liðsins í afar tíðindasömum kappakstri í Nürburgring árið 1999. Segir Stewart það stærstu stundina í lífi sínu; stærri en að sigra sjálfur í gömlu brautinni frægu en þar keppti hann síðast 1973, rétt áður en hann hætti keppni sem ökuþór.
Árið eftir fyrsta og eina sigurinn var Stewartliðið selt Ford sem nefndi það Jagúar. Það var síðan selt Red Bull. Einungis einn annar breskur ökuþór hefur unnið Evrópukappaksturinn, Nigel Mansell á Williams-bíl á heimavelli í Brands Hatch árið 1985.
Um helgina má búast við risaslag milli McLaren og Ferrari en fyrrnefnda liðið telur það sinn heimavöll þar sem Mercedes á í því 40% og leggur liðinu til mótora í keppnisbílana.
Fernando Alonso hjá McLaren vann sigur í brautinni 2005, þá sem liðsmaður Renault, og mun freista þess að minnka forskot liðsfélagans Lewis Hamilton í keppninni um heimsmeistaratitil ökuþóra.
Kimi Räikkönen hjá Ferrari vann tvö síðustu mót, franska kappaksturinn og þann breska og er 18 stigum á eftir Hamilton í keppni ökuþóra þegar átta mót eru eftir vertíðar. Honum hefur gengið illa í Nürburgring og hyggst breyta því nú. Árið 2003 hóf hann keppni á ráspól en féll úr leik í forystu seint í keppninni vegna vélarbilunar. Mótorbilun felldi hann einnig úr leik árið eftir en brotnaði fjöðrun í upphafi síðasta hrings 2005 og varð hann þar með af annars öruggum sigri. Í fyrra komst hann loks á mark en varð fjórði.
Tvö lið hafa ekki unnið stig það sem af er ári, Spyker og Toro Rosso. Spurningin er hvort breyting verði þar á um helgina. Sömuleiðis hvort fimm ökuþórar, sem hafa heldur ekki komist á blað í ár, afli sér stiga; Adrian Sutil, Vitantonio Liuzzi, Scott Speed, Anthony Davidson og Rubens Barrichello. Nýr ökuþór verður um borð í öðrum bíla Spyker í Nürburgring en þegar þetta var skrifað var sætinu óráðstafað.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 23:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 20. júlí 2007
Aðsókn dvínar ekki þótt Schumacher sé hættur
Formúla 1 | Breytt 21.7.2007 kl. 23:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 19. júlí 2007
Stemmning þótt fjörið byrji ekki fyrr en á morgun
Það kom mér næstum á óvart hversu mikil stemmning var við Nürburgring brautina er ég rölti um keppnissvæpðið í dag. Fjölmenni á vettvangi þótt formúlubílarni verði ekki gangsettir fyrr en á morgun, föstudag. Þúsundum saman gengu áhorfendur um athafnasvæði keppnisliðanna og þjónustusvæðið. Margir duttu í lukkupott og unnu ferð um brautina á öflugum sportbílum. Erill var í kynningarbásum liðanna og talsverð viðskipti áttu sér stað í sölubásum þar sem seldar voru húfur, bolir og margt fleira, m.a. mesta þarfaþing formúlumóta, eyrnartappar.
Búast má við rimmu milli ökuþóra McLaren og Ferrari í Nürburgring um helgina. Þá hefur Nick Heidfeld hjá BMW varað stórliðin tvö við því að reikna ekki með hans liði á heimavelli. Það er brautin reyndar einnig fyrir McLaren vegna nálægðar höfuðstöðva Mercedes Benz sem eiga 40% í liðinu.
Sé litið á einstaka ökuþóra toppliðanna hefur Fernando Alonso hjá McLaren ekki fagnað sigri frá í Mónakó í maí. Og gengi hans hefur verið upp og ofan. Í tveimur síðustu mótum, Magny-Cours og Silverstone, lét hann þó hraustlega til sín taka. Með grimmum framúrakstri í fyrrnefndu brautinni og baráttu við Ferrari í þeirri seinni.
Lewis Hamilton er undramaður ársins og verið á verðlaunapalli í öllum mótunum níu sem lokið er. Vonbrigði þó hið síðasta; þriðja sæti á heimavelli í Silverstone. Hvað sem því líður er nýliðinn með 12 stiga forystu í stigakeppni ökuþóra.
Felipe Massa nýtur þess að Ferrari hefur náð sér á strik á ný og náð undirtökum í keppninni við McLaren. Hann á þó við þann reip að etja að Kimi Räikkönen hefur fundið rétta taktinn á ný og gerir grimmt tilkall til þess að teljast aðalökumaður Ferrari.
Räikkönen vann tvö síðustu mót og er upp á sitt besta. Þótt hann hafi ekki náð forystu í þeim báðum fyrr en í seinna þjónustustoppi virðist fátt ætla að stöðva hann. Í Nürburgring hefur hann þó eiginlega þann djöful að draga að hafa ekki komist á mark á undanförnum árum þegar öruggur sigur virtist blasa við.
Hér eru bara nokkrir nefndir en fleiri hyggjast reyna keppa um fremstu sæti. Þar á meðal Heidfeld hinn þýski. Hann mun njóta góðs stuðnings í stúkum brautarinnar á heimavelli sínum og víst er að það léttir mönnum keppnina og hvetur.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 6. júlí 2007
Njósnir og meint spellvirki
Ekki treysti ég mér til að leggja neina dóma á njósna- og skemmdarverkamál þau sem komið hafa upp á yfirborðið síðustu daga og snúast um Nigel Stepney, einn helsta tæknimann Ferrari í rúman áratug, og Mike Coughlan aðalhönnuð McLaren.
Málin virðast annars vegar snúast um stuld á teikningum og verklagsgögnum hjá Ferrari sem komið hafi verið í hendur Coughlan. Hins vegar um meinta tilraun Stepney til skemmdarverks á keppnisbílum Ferrari nokkrum dögum fyrir Mónakókappaksturinn.
Hvort tveggja eru grafavarleg mál og mikilvægt að fá sem skjótasta niðurstöðu. Ganghraði mála af þessu tagi á Ítalíu er hins vegar nokkurn veginn í öfugu hlutfalli við hraða formúlubíla og því getur maður allt eins búist við að einhver misseri líði áður en niðurstaða fæst. Sem er líka grafalvarlegt því reynist Stepney saklaus, eins og hann heldur sjálfur fram, fær hann seint uppreisn þeirrar æru sem Ferrari hefur svipt hann með málshöfðuninni og ítrekuðum yfirlýsingum um sekt, sem þó hefur ekki verið sönnuð - enda málið á byrjunarstigi, og ekki farið frá lögreglu til dómara.
McLaren má ekki vamm sitt vita og því setti liðið Coughlan af meðan á rannsókn málanna stendur. Sömuleiðis er starfsheiður hans í veði. Liðsstjórinn Ron Dennis þykir strangheiðarlegur maður og gat hann ekki varist tárum er hann þurfti að tjá sig um málið í Silverstone í gær, svo hefur það tekið á hann. Segir hann sér afar kært um heiður sinn og ekki síður - jafnvel meira - um heiður liðsins. Því taki það sig einkar sárt að nafn þess skuli bendlað við njósnir hjá Ferrari.
Innanbúðarrannsókn hjá McLaren hefur leitt í ljós, að gögnin frá Ferrari hafi aldrei í bílsmiðju liðsins komið og ekki verið notuð við þróun keppnisbílanna. Þau mun Coughlan hafa fengið í hendur seint í apríl. Dennis hefur opnað bílsmiðjuna fyrir Alþjóða akstursíþróttasambandinu (FIA) til að sannleikurinn megi koma í ljós og hann segist ekkert óttast; býst við engu öðru en FIA staðfesti sakleysi McLaren og aðildarskort þess að málunum.
Ítalskir fjölmiðlar segja frá því í dag, að fleiri starfsmenn Ferrari en Stepney séu til rannsóknar. Og málið kann að tengjast Hondaliðinu, en óbeint þó. Stepney átti tvo fundi með forsvarsmönnum þess í apríl og bauðst til að koma til starfa hjá japanska liðinu með sveit mjög færra en ótilgreindra manna. Einn þeirra sem hann nefndi mun sagður vera Coughlan, en þeir Stepney eru gamlir samstarfsmenn, allavega hjá Ferrari.
Ef til vill er þar skýringin fengin á gögnunum í fórum Coughlan, ef til vill kunna þeir að hafa verið byrjaðir að brugga ráð um Hondaför, það er þó bara tilgáta mín út í loftið og ekkert hef ég frekar fyrir mér um það. Fundir Stepney með Hondamönnum leiddu hins vegar ekki til þeirrar niðurstöðu sem hann vænti í vor og ganga má út frá því sem gefnu að liðið hafi lítinn áhuga úr þessu á þjónustu hans vegna málaferla Ferrari á hendur honum.
Það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu málsins og hvort eða hver áhrif og afleiðingar þess verða.
Að lokum finnst mér Ferrari hafa mátt halda betur á málum gagnvart fjölmiðlum. Liðið stendur í yfirlýsingaþrasi við Stepney í stað þess að leyfa lögreglurannsókn að hafa sinn framgang. Þá sagði það ensku lögregluna hafa framkvæmt húsleit hjá Coughlan en varð að éta það ofan í sig nokkrum dögum seinna og taka sérstaklega fram að enska lögreglan hafi ekki komið við sögu rannsóknarinnar.
Það á annars ekki af Ferrari að ganga í svona málum því í apríl voru tveir fyrrverandi starfsmenn liðsins, Mauro Iacconi og Angelo Santini, fundnir sekir af því að hafa farið með leyndarmál Ferrari með sér er þeir réðust til starfa hjá formúluliði Toyota. Japanska liðið vék þeim úr störfum áður en málið varð opinbert. Þeir voru dæmdir af undirrétti í Modena á Ítalíu - þar sem réttarhöld bíða Stepney og Coughlan - en Iacconi og Santini hafa áfrýjað þeim dómi.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 19:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 30. júní 2007
Síðasta mótið í sveitinni
Tímamót verða líklega í Magny-Cours í Frakklandi um helgina. Hugsanlega er það í síðasta sinn sem þar verður keppt í formúlu-1. Og jafnvel að a.m.k. einhverra ára hlé verði á mótshaldi í þessu upphafslandi Grand Prix-kappaksturs.
Ástæðurnar eru fjárhagslegar og aðallega gríðarleg þóknun sem Bernie Ecclestone krefst fyrir hönd fyrirtækis síns af mótshöldurum fyrir framkvæmdaréttinn.
Grand Prix-kappakstur á rætur að rekja til bílakeppni sem hófst í Frakklandi árið 1894. Sprettir í borgum og bæjum þróuðust smám saman í þolakstur, bæði fyrir mann og bíl. Fljótlega náðu bílarnir ógnarhraða, hátt í 200 km/klst, en þar sem keppni fór fram á opnum vegum voru slys tíð, bæði á keppendum sem og áhorfendum.
Grand Prix-kappakstur þróaðist smám saman og er formúla-1 bein afleiðing þess. Hún kom til sögunnar 1950 með sameiningu nokkurra GP-landsmóta í mótaröð. Fyrsta mótið fór fram í Silverstone í Bretlandi, en einnig var keppt í Mónakó, Indianapolis, Sviss, Belgíu, Ítalíu og Frakklandi. Formlega eru orðin Grand Prix enn í heiti hvers formúlumóts. Þannig heitir mót helgarinnar 91. Grand Prix Frakklands.
Fyrsti franski formúlukappaksturinn fór fram í Reims 2. júlí 1950. Keppt hefur verið í Frakklandi allar götur síðan að árinu 1955 frátöldu. Nokkru áður en mótið skyldi fara fram biðu tugir áhorfenda bana í alvarlegu slys í sólarhringskappakstrinum í Le Mans. Í hluttekningarskyni var formúlumótinu aflýst.
Þau tíðindi eiga sér stað í dag, að Michael Schumacher sest undir stýri Ferraribíls og ekur honum í Magny-Cours strax eftir tímatökurnar. Er bíllinn þannig búinn að Schumacher getur tekið farþega með sér. Meðal gesta hans í bílnum verður franska fótboltagoðið Zinedine Zidane.
Zidane verður heiðursgestur franska kappakstursins og þiggur þeysireið um brautina í Ferrari FXX-bílnum. Aksturinn er liður í fjáröflunardegi fyrir stofnun og líknarfélag sem helga sig rannsóknum á mænu- og heilasiggi barna og meðferð þeirra.
Það er mér mikill heiður að fara á franska kappaksturinn í Magny-Cours. Spennandi keppni í formúlunni í ár er mjög áhugaverð fyrir unnendur íþróttarinnar eins og mig. Þangað fer ég þó fyrst og fremst til að styðja ICM, stofnunina sem hefur það að markmiði að gefa mönnum tækifæri á að vinna bug á tilteknum taugasjúkdómum, segir Zidane af þessu tilefni.
Magny-Cours er eiginlega út í sveit, fjarri frönskum stórborgum. Vinnur það bæði með mótshaldi þar og með. Ökuþórarnir kunna margir við rólegheitin og að geta hvílst fjarri glysi og innihaldslausu glamri sem fylgir mótum víða. Nú er að sjá hvort bæjaryfirvöldum í Versölum í útjaðri Parísar verði að ósk sinni og að þar verði keppt innan tveggja ára eða svo.
Annar kostur væri að halda franska kappaksturinn í Paul Ricard-brautinni skammt frá Marseilles. Hún er til reiðu og í eigu Bernie Ecclestone, aðeins þarf að slá upp fleiri stúkum, sem ætti ekki að veta tiltökumál.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 07:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Franska sjónvarpsstöðin TF1 var með fróðlega úttekt fyrir hálfum mánuði á bílum Ferrari og McLaren vegna njósnaumræðunnar. Með grafískum teikningum báru þeir saman það sem skiptir svo miklu máli í bílum; fjöðrunarbúnað, fram og afturvængi, vindskeiðar ýmiss konar og byggingu bílanna.
Niðurstaðan var sú að þessir hlutir voru gjörólíkir að hönnun og virkan. Sem sagt að á silfurörvum McLaren væri ekkert fengið úr Ferraribílunum.
Annars er sama hvernig þetta mál fer, ég held það sé búið að stórskaða formúluna. Því miður, eins og vertíðin hefur annars verið jákvæð.
Vonandi fáum við unnendur íþróttarinnar að njóta hennar við kappakstursbrautarinnar eða á sjónvarpsskjánum. Megi úrslit ráðast á brautunum en ekki við harðviðarborð í fundarsölum í París.