Miðvikudagur, 5. mars 2008
Tekur Jón Ásgeir við af Frank Williams?
Er Williams á góðri leið með að verða lið Baugs í formúlu-1? Sú spurning leitar á hugann við fregnir um að fyrirtæki í eigu Baugs Group gangi til liðs við Williams og styrki það svo um munar. Jón Ásgeir Jóhannesson yrði flottur á stjórnborði á kappakstursmótum.
Williams hefur frá 2004 þegið aðstoð hinna dugmiklu íslensku fjárfesta gegnum stærstu leikfangaverslunar heims, sem Baugur á að hluta. Í ár styrkja tvö fyrirtæki félagsins til viðbótar kappakstursliðið.
Og það sem meira er, stjórnandi þess, Frank Williams, segir að aðkoma Baugs að liðinu eigi enn eftir að aukast. Hann neitar því í samtali í dag, að svara því hvort það endi með því að Baugur fjárfesti hreinlega í liðinu.
Það yrði óneitanlega skemmtilegt ef Íslendingar ættu allt í einu eitt af betri kappakstursliðum formúlu-1. Eina einkaliðið í keppninni sem kveður að.
Segja má, að þetta sé ekta fjárfestingarkostur fyrir Jón Ásgeir. Kaup eru líklega hagstæð nú og geta orðið ábatasöm. Williamsliðið er ekki eins verðmætt nú og fyrir nokkrum árum er betur gekk hjá því en undanfarin ár.
Verðmæti liðsins er áætlað um 100 milljónir punda í dag, rúmlega 13 milljarðar króna, og hefur lækkað úr um 150 milljónum punda fyrir nokkrum árum. Svo erfiðlega gekk með reksturinn samhliða slöku gengi, að Frank Williams seldi einkaþotu sína til að fjármagna rekstur og uppbyggingu. Alvöru maður, Sir Frank, og trúr sinni hugsjón.
Með betra gengi og ráðningu nokkurra toppmanna til þess að gera það betur í stakk búið að takast á við topplið formúlunnar mætti auka verðmæti Williamsliðsins og selja það með vænum gróða eftir einhver ár. Afkoma þess er tiltölulega trygg og þá stefnir í að liðin fái frá og með næsta ári aukinn skerf af þeim miklu tekjum sem falla til í formúlunni.
Loks eru eigendurnir Frank Williams og Patrick Head teknir að reskjast, eru á miðjum sjötugsaldri, og hafa áreiðanlega ekkert á móti að setjast í helgan stein hvað úr hverju eftir að vera á kafi í formúlunni síðustu 30 árin og í öðrum kappakstri áður. Þeir hafa skilað góðu dagsverki og geta verið stoltir af. Tekur Jón Ásgeir við kyndlinum af þeim? Það væri óneitanlega skemmtilegt.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 18:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 28. febrúar 2008
Dennis nýtur óskoraðs trausts
Þá liggur það fyrir. Ron Dennis situr sem fastast á stóli æðsta stjórnanda McLaren. Með óskoruðum stuðningi hluthafa í eigendafélaginu. Og skyldi engan undra. Frétt spænska íþróttadagblaðsins Marca um að verið væri að bola honum úr starfi reynist því bull.
Af reynslu síðasta árs tók ég frétt Marca um innanbúðarmál McLaren með vænum fyrirvara. Það var næstum ævintýralegt að fylgjast með því hvernig samskiptaörðugleikar innan McLaren og innbyrðis væringar ökuþóranna í fyrra snerist upp í styrjöld spænskra og enskra fjölmiðla.
Hámarki fannst mér það ná er ég var viðstaddur blaðamannafund í mótorheimili McLaren í Spa eftir tímatökurnar á laugardeginum. Það leyndi sér ekki hatrið í spurningum nokkurra enskra blaðamanna sem baunað var að Fernando Alonso. Og ekki var hlutlægninni fyrir að fara, heldur spurt spurninga sem hlaðnar voru af hlutdrægni.
Spænska fréttin um Dennis var angi af þessu. Framkvæmdastjóri McLaren, Martin Whitmarsh, segir engan þrýsting á Ron Dennis að víkja. Og yrðu einhverjar breytingar myndu þær verða að frumkvæði Dennis. Whitmarsh segir að hann verði við stjórnvölinn þegar vertíðin hefst í Melbourne eftir hálfan mánuð.
Ron nýtur fulls stuðnings hluthafanna, allrar yfirstjórnar liðsins og allra sem vinna hjá liðinu og fyrirtækinu. Hann gegnir þremur hlutverkum: er stjórnarformaður McLaren Group, aðalforstjóri McLaren Group og liðsstjóri McLaren liðsins, sagði Whitmarsh í dag.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 19:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 27. febrúar 2008
Dennis vikið úr starfi liðsstjóra McLaren?
Ron Dennis hefur verið knúinn til að taka pokann sem liðsstjóri McLaren. Við starfi hans tekur framkvæmdastjóri liðsins, Martin Whitmarsh. Frétt í þessa veru flytur spænska blaðið Marca í dag og ég verð að segja að fyrstu viðbrögð mín eru að taka henni ekki sem nýju neti.
Blaðið tók harða afstöðu gegn Dennis og McLaren í fyrra vegna meðferðar á Fernando Alonso. Það segir Mercedes-Benz hafa knúið Dennis til að standa upp af stóli sínum. Félagið á stóran hlut í liðinu og mun að sögn blaðsins afar óánægt með hvernig hann hélt á njósnamálinu í fyrra sem kostaði liðið háar sektir og heimsmeistaratitla.
Blaðið segir að senn verði tilkynnt um breytingar á högum Dennis með fréttatilkynningu. Honum verði fengið nýtt hlutverk en því mun ekki fylgja ákvörðunarvald í mikilvægum málum McLaren.
Dennis á 15% í McLaren.
Mánudagur, 18. febrúar 2008
Sagði Super Aguri stefna að sigri 2008
Super Aguri liðið verður ekki sakað um að eiga sér ekki takmark í formúlu-1. Hafði satt að segja gleymt málinu, en þegar ég fletti í gömlum fréttum á formúluvef mbl.is rakst ég á eina þar sem framkvæmdastjórinn Daniele Audetto var ekkert að skafa af hlutunum. Sagði beinlínis að liðið ætli sér sigur 2008, á vertíðinni sem er að renna upp.
Fréttin birtist í desember 2006, rétt eftir jómfrúarvertíð Super Aguri. Það vann sér það til frægðar að vinna ekki eitt einasta stig á vertíðinni og varð því neðst keppnisliðanna ellefu.
Audetto sagði þessum tímapunkti, að Super Aguri yrði væntanlega í stakk búið til að keppa um sigur í mótum á keppnistíðinni árið 2008. Við ætlum að sýna fram á að við erum engir undirmálsmenn.
Núna erum við með undirstöður liðsins í lagi, vélvirkjana og verkfræðingana og því viljum við virkilega sýna fram á og sanna að við getum barist fyrir betri sætum.
Verðum við eins góð og við vorum með gamla bílinn í ár getum við kannski hugsanlega unnið eins og einn kappakstur 2008, sagði Audetto. Ég vona að væntingar hennar rætist.
Ári fyrir þessi fleygu orð ríkti mikil óvissa um þátttöku Super Aguri í formúlunni. Liðið átti engan bíl og var eiginlega með lítið annað en beinagrind af nauðsynlegum mannafla. Því til viðbótar hafði Alþjóða akstursíþróttasambandið (FIA) ekki talið það með á lista yfir keppnisliðin 2006 þar sem liðið hafði ekki lagt fram 48 milljóna punda þátttökutryggingu.
Það var reyndar stórafrek að liðinu tókst að komast í keppnina 2006. Keppnisbílar þess voru umbreyttir fjögurra ára gamlir Arrowsbílar sem liðseigandinn Suzuki Aguri keypti næstum á síðustu stundu af Minardistjóranum Paul Stoddart.
Í fyrsta mótinu var Sato nærri sex sekúndum lengur í tímatökunum en fremsti maður. Bilið í ráspólshafa hafði lækkað niður í 2,5 sekúndur í lokamóti ársins í Brasilíu. Í því móti hafnaði Sato í tíunda sæti og átti sjöunda hraðasta hringinn.
Með Anthony Davidson og Takuma Sato sem ökuþóra og á nýjum bíl stóð liðið sig betur 2007. Vann fjögur stig en ótrúleg óheppni Davidsons í kappakstrinum í Montreal kom í veg fyrir að stigin yrðu mun fleiri. Hann var í þriðja sæti seint í kappakstrinum, á eftir öryggisbíl, er bjór flæktist inn á brautina, en af þeim er mikið í nágrenni St. Lawrenceárinnar sem brautin stendur við.
Davidson komst ekki hjá því að aka á bjórinn, framvængur laskaðist svo hann varð að fara inn á þjónustusvæðið og fá nýjan væng. Það er leitt með bjórinn, hann lagði mig að velli. Ég sá hann ekki í tæka tíð og skildi ekki hvers vegna framhjólin læstust, sagði Davidson hinn svekktasti.
Sato var heppnari og ók á mark í sjötta sæti sem var besti árangur Super Aguri-liðsins frá upphafi. Í kaupbæti tók hann fram úr heimsmeistaranum þáverandi, Fernando Alonso hjá McLaren, á síðustu hringjunum.
Ekki veit ég hvort Audetto hafi lækkað markið í ár frá yfirlýsingunni djörfu í desember 2006. Það er ekki hægt annað en að dást að stórhuga fólki og ég óska Super Aguri góðs gengis í ár.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 20:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 12. febrúar 2008
Ástæðulaust að óttast hraða Räikkönen
Margir standa agndofa af undrun yfir miklum hraða Kimi Räikkönen við bílprófanir í Barein í síðustu viku. Táknar þetta að Ferrari valti yfir önnur lið í ár, spyrja sumir og óttast jafnvel óspennandi ár. Það tel ég alveg ástæðulaust því þegar betur er að gáð er akstur Räikkönen ekki svo ógnvekjandi og virðast kann við fyrstu sýn.
Á fyrsta degi ók Räikkönen á betri tíma en ráspólstíma síðasta árs. Daginn eftir bætti hann um betur með því að aka hringinn á tveimur sekúndum betri tíma þegar hann æfði tímatökur kappaksturs. Hann var mun fljótari í förum flesta daga en liðsfélaginn Felipe Massa og fyrstu dagana langt á undan Toyutunum tveimur.
Er hér um marktækan árangur að ræða? Vísbendingar um yfirvofandi yfirburði Räikkönens í keppni? Og hvað gerist svo þegar Ferrari uppfærir yfirbyggingu og vængi til að gera bílinn enn hraðskreiðari, eins og liðið hefur boðað?
Fátt er vandasamara en að reyna ráða í árangur og form manna af vetraræfingum. Aðstæður geta verið afar ólíkar frá einni æfingu til annarrar og einni braut til annarrar. Brautar- og lofthiti er allt annar nú en hann verður í mótinu í Barein í apríl. Og ætla að meta getu í keppni út frá æfingu getur verið afar varasamt.
Vissulega var Räikkönen ógnvekjandi hraðskreiður í Barein. Og yfir því gleðjast unnendur hans og Ferrari. En í kappakstrinum í Barein í apríl í fyrra voru ökuþórar ekki eins hraðskreiðir og á æfingum í brautinni í febrúar sama ár. Og á þeim æfingum óku nokkrir ökuþórar hraðar en Räikkönen gerði í síðustu viku. Til að flækja samanburðinn var loft- og brautarhiti á æfingunum í febrúar og mars í fyrra hærri en í síðustu viku.
Að þessu sögðu tel ég ástæðulaust að fella stóra dóma á þessari stundu um samkeppnisfærni Räikkönen í ár. Ljóst má þó vera að Ferraribíllinn er einkar fljótur í förum. Og vonandi fáum við að sjá þá í samanburði við McLaren, Renault, BMW og fleiri bíla við æfingarakstur á næstu tveimur vikum.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 20:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Miðvikudagur, 6. febrúar 2008
Strikar Ecclestone breska kappaksturinn út?
Stundum pirrar Bernie Ecclestone mig ferlega mikið en þrátt fyrir það er karlinn í miklu uppáhaldi hjá mér. Það er honum að verulegu leyti að þakka hversu voldug formúlan er og ekki skal gert lítið úr því. En þá gömlu speki, að mikið vilji meira (með öðrum orðum græðgi), virðist mega heimfæra á hann.
Nú hefur hann í hótunum við Silverstonemenn og heimtar af þeim stórhækkun þóknunar fyrir að fá framlengingu á samningi um keppni frá og með árinu 2010. Greiði þeir ekki "markaðsverð" fer breski kappaksturinn fram í síðasta sinn á næsta ári, 2009, segir hann. Og bætir við að mótshaldarar í Silverstone segi núverandi þóknun alltof háa. Svo útlitið er ekki gott.
Það væri saga til næsta bæjar ef hann strikar út Silverstone, vettvang fyrsta mótsins í formúlu-1. Þá ætti hann ekkert eftir nema hætta líka mótshaldi í Monza - þá væri íþróttin líklega dauð.
Mér finnst Ecclestone full einstrengingslegur, meini hann það sem hann segir.
Í fyrsta lagi er ólíku saman að jafna þegar um annars vegar einkaaðila er að ræða og hins vegar ríkisstjórnir í þriðja heims löndum, eða héraðsyfirvöld. Hinir fyrrnefndu hafa ekki aðgang að skattfé almennings. Hann á auðvelt með að kreista fé úr stjórnvöldum í Kína, Malasíu, Singapúr, Barein, Tyrklandi og þar fram eftir götunum. Og héraðsstjórninni í Valencia. Þar skipta 10 milljónir dollara til og frá ekki svo miklu máli.
Annað á við um Silverstone, Magny-Cours, Indianapolis og Hockenheim. Þar þurfa menn að láta sér duga aðgangseyrir og auglýsingatekjur, sem fyrirtæki Ecclestone tekur reyndar líka sinn skerf af. Og þar er stærsti kostnaðarliðurinn þóknanir til Ecclestone.
Vegna óbilgirni hans hefur keppni nú verið hætt í Bandaríkjunum. Í Þýskalandi hafa Nürburgring og Hockenheim sameinast um eitt mót í stað þess að halda tvö vegna tapreksturs á heildardæminu.
Allt stefndi í það í fyrra að þá færi franski kappaksturinn fram í síðasta sinn vegna taps undanfarin ár. Það breyttist eftir forsetakosningarnar sl. vor og enginn veit hvað nákvæmlega gerðist því hagur mótshaldara í Magny-Cours hafði ekki batnað. Mótið heldur áfram þar, alla vega í ár og líkast til það næsta. En nú er það eitt helsta kosningamálið í sveitarstjórnarkosningum í Versölum að fá formúlukappaksturinn þangað 2010. Kannski það hafi verið agnið sem dugði á Ecclestone sem viljað hefur fá mótið til Parísar þótt þar sé engin kappakstursbraut.
Svo skil ég ekki alveg samhengið í því að krefja mótshaldara um síhækkandi þóknun fyrst keyra á niður útgjöld formúluliðanna. Miðað við hugmyndir Max Mosley myndu þau lækka úr mörg hundruð milljónum dollara á ári á lið í 150-200 milljónir dollara. Það ætti að minnka þörf Ecclestone fyrir hærri þóknun, þó svo hún renni ekki til liðanna.
Þau fá fyrst og fremst skerf af sjónvarpsréttartekjunum. Og þá erum við komin að öðru máli þar sem formúlan er á góðu tempói inn í vítahring. Með því að leggja áherslu á og flytja mótshaldið í auknu mæli til Asíu og fækka þeim hlutfallslega í Evrópu eins og raunin hefur verið hefur áhugi evrópskra sjónvarpsstöðva á formúlunni dvínað. Þ.e. keppnin fer fram á óhentugum áhorfstíma og verðgildi útsendingarréttar því minna í augum stöðvanna, sem eru helstu mjólkurkýr Ecclestone.
Við því hefur hann brugðist með því að gera kröfu til þess að mótin í fjarlægum heimshlutum fari fram á tíma sem henti evrópskum sjónvarpsstöðvum, en ekki endilega heimamönnum. Byrjað verður í Singapúr í ár og önnur Asíumót eru næst á dagskrá. Útlit er hins vegar fyrir að mótshaldi ljúki senn í Melbourne í Ástralíu því þar er lítill áhugi á kvöldkappakstri.
Það er eflaust akkur að því að keppa sem víðast um heim í formúlu-1. Ljóst má þó vera að gæðin eru takmörkuð þar sem liðin þola að hámarki 20 mót á ári. Rætur íþróttarinnar eru í Evrópu og þar á hún miklu meiri vinsældum að fagna en í öðrum álfum. Uppselt hefur t.d. löngum verið í Silverstone en mótin í Sjanghæ, Barein og Kúala Lúmpúr hafa farið fram fyrir hálftómum stúkum. Í bresku brautinni gömlu er ætíð óborganleg stemmning, það hef ég upplifað sjálfur.
Vel má vera að Ecclestone verði að krefja mótshaldara í Silverstone um hærri þóknun til að gæta jafnræðis gagnvart öðrum mótshöldurum. Startgjaldið sem nýjustu mótshaldarar borga honum fyrir hvert mót mun vera um 22 milljónir dollara en síðan hækkar greiðslan lítillega eftir því sem á samningstíma líður.
Til samanburðar mun Silverstone hafa borgað honum 15,7 milljónir dollara í fyrra. Sú upphæð verður eitthvað hærri í ár og svo aftur það næsta, en núverandi samningur um mótshald í brautinni rennur út með mótinu á næsta ári, 2009.
Fróðlegt verður að fylgjast með framvindunni.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 22:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 23. nóvember 2007
Segir Renault „au revoir“?
Það er kannski full geyst farið að velta vöngum yfir því núna hverjar afleiðingar kunna hugsanlega að vera af ákvörðun sem tekin verður eftir hálfan mánuð eða svo. En mér segir svo hugur, að Renault kunni allt eins að hætta þátttöku í formúlu-1 verði liðið dæmt harkalega fyrir njósnir viku af desember.
McLaren hefur hert á sókninni gegn Renault með því að leka gögnum um rannsókn meintra njósna franska liðsins. Þær felast í því að verkfræðingur, Phil Mackereth, sem réði sig til Renault frá McLaren fyrir rösku ári, hafi haft með sér 11 diska fulla af teikningum og gögnum um keppnisbíla McLaren í ár og fyrra.
Í skjali sem lekið var til breskra fjölmiðla í gær segir að gögnin hafi verið flutt inn í tölvukerfi Renault í september í fyrra og 18 tæknimenn Renault, þar á meðal yfirhönnuðurinn Tim Densham, hafi viðurkennt að hafa unnið með gögnin í alls 11 tölvum í höfuð stöðvum liðsins. Reyndar segja lögmenn McLaren að vitnisburður starfsmanna Renault sé oft ófullnægjandi og villandi og beinlínis rangur í tilviki tæknistjórans Bob Bell.
Vert er að rifja upp, að Fernando Alonso sagði óvissu um framtíðarþátttöku Renault í formúlunni hafa orðið til þess á sínum tíma að hann réði sig í árslok 2005 til að keppa fyrir McLaren í ár. Forsvarsmenn franska bílafyrirtækisins hafa löngum sagt, að Renault yrði í formúlunni meðan það teldist skynsamlegt.
Því velti ég því mjög fyrir mér hver afleiðingin verður fari svo að íþróttaráð Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) sakfelli liðið. Nóg þykir skömmin orðin af þeirri uppljóstrun að illa fengin hugvitsgögn frá McLaren hafi fundist í tölvukerfum liðsins í Enstone í Englandi og verið brúkuð þar af helstu tæknimönnum og nokkrum æðstu mönnum liðsins.
Með tilliti til fordæmisins sem gefið var fyrir tveimur mánuðum með refsingu McLaren fyrir ámóta framferði - og þó jafnvel enn umfangsminna - má ætla að refsing Renault verði æði þung, verði liðið á annað borð sakfellt. Með allt að 100 milljóna dollara sekt á bakinu væri skynsemi þátttökunnar líklega rokin út í veður og vind og sneypan nóg til að forstjóri Renault, Carlos Ghosn, segi hingað og ekki lengra.
Alla vega spái ég því að Alonso skrifi ekki undir neina samninga við Renault fyrr en eftir 7. desember, ef hann þá fer til liðsins á ný.
Hafa ber í huga í þessu sambandi öllu, að af hálfu Renault er allri sekt neitað, en óneitanlega minna varnir þess á varnir McLaren varðandi njósnir hjá Ferrari. Af tilkynningu frá Renault eftir að því var stefnt fyrir brot á íþróttareglum FIA fyrir um hálfum mánuði má ætla að umfang málsins sé mun minna en McLaren vill vera láta.
Þar segir að gögnin hafi verið einungis keyrð inn í persónulega skrá Mackereth í tölvukerfi Renault. Það hafi verið gert í heimildarleysi og án vitneskju nokkurs manns í stjórnunarstöðu. Hann hafi jú sýnt þau nokkrum tæknimönnum en gögnin, þeir hafi aðeins litið yfir þau en að engu leyti hafi þau verið notuð gagnvart keppnisbíl Renault. Af hálfu McLaren er því haldið fram að nánast hafi verið um að ræða allar teikningar sem varði keppnisbíl, öll kerfi hans og hvert einstakt mælimál. Af hálfu Renault segir að um hafi verið að ræða teikningar af aðeins fjórum hlutum bílsins; lögin eldsneytistanksins, gírasamstæðunni, stillanlegum massadempara og fjöðrunardempara.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 15:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 17. nóvember 2007
Senuþjófurinn Schumacher
Það var skemmtileg tilbreyting að fylgjast með bílprófunum í Barcelona í vikunni. Michael Schumacher stal þar heldur betur senunni. Skyldu Kimi Räikkönen og Lewis Hamilton hrósa happi að hafa ekki þurft að taka þátt?
Það muna þeir aldrei viðurkenna en verður maður ekki að álykta sesm svo, að gamli meistarinn hefði tekið þá í kennslustund? Það var allavega raun Felipe Massa.
Það var ekkert sem benti til þess að Schumacher hafði ekki ekið Ferrarifáknum sem orð er á gerandi í heilt ár. Miklu líkara því sem hann hefði aðeins tekið sér frí í einn til tvo daga.
Geta ber þess Massa til varnar að Schumacher hefur mikla reynslu af akstri formúlubíla án hjálparbúnaðar en Massa enga. Í því liggur alla vega hluti skýringarinnar á muninum á þeim. Og ég býst nú frekar við því að aðrir ökuþórar dragi Schumacher uppi með meiri æfingu í akstri án spyrnustýringar o.s.frv.
Það væri sem sagt ekkert að því að fá að sjá til hans oftar í vetur með þetta í huga. Hvaða hug ætli aðrir ökuþórar beri til þess? Að þurfa kannski stöðugt að sjá undir iljarnar á honum? Það væri eigi góð auglýsing fyrir þá. En ætli þeim standi kannski ekki alveg á sama?
Laugardagur, 17. nóvember 2007
Vertíðinni loks lokið
Þá er keppnistímabili ótrúlega tíðindasams formúluárs loks lokið. Með niðurstöðu áfrýjunarréttar FIA í gær í klögumáli sem snerist um bensínkulda. McLaren mistókst að næla þar í heimsmeistaratitil ökumanna. Niðurstöðunni una menn auðvitað þótt í raun hafi enginn dómur verið upp kveðinn.
Ljóst virðist að dómarar áfrýjunarréttarins hafi verið mjög ósammála um niðurstöðuna, sem var að áfrýjun McLaren væri ekki dómtæk. Að ekki skyldi tekin afstaða til hennar. Fyrir vikið hangir kjarni málsins áfram í lausu lofti; að fá reglurnar um bensínkuldann afdráttarlaus á hreint og við hvaða lofthitamælingar skuli miðað.
Það tók dómarana rúman sólarhring að komast að þessari niðurstöðu, að dæma ekki í málinu. Getur verið að ástæðan hafi verið sú að titill ökuþóra hafi verið í húfi? Ég er þeirrar skoðunar að sú var ástæðan fyrir því að dómararnir í Sao Paulo refsuðu ekki BMW og Williams á staðnum fyrir bensínið, sem tæknifulltrúi FIA sagði að hafi verið ólöglega kalt.
Ég er líka á því að það hafi verið slæmt fyrir ímynd formúlunnar ef dómurinn hefði tekið titilinn af Kimi Räikkönen í gær og afhent Lewis Hamilton hann. Mér er nokk sama fyrir hvaða lið þeir keppa. Það hefði kannski verið betra að þeir væru liðsmenn t.d. Spyker og Toro Rosso því afstaða formúluáhugamanna til deilumála mótast almennt meira af því hvort þeir halda með Ferrari eða McLaren en hreinni hlutlægni.
Þess vegna er nær helmingur unnenda íþróttarinnar ánægður með lyktir málsins en hinn óánægður.
Líklega eru allir sammála um að útkljá beri titla formúlunnar á keppnisbrautinni en ekki í dómstólum. Ég sé þó ekkert athugavert við að menn leiti réttar síns rísi ágreiningur um reglur. Til þess er dómstólakerfi íþróttahreyfingarinnar og reglur hennar gera ráð fyrir þeim möguleika. Svo verða menn bara að sætta sig við lokadóminn hverja skoðun sem þeir hafa svo á honum.
Titlar hafa ráðist utan kappakstursbrautarinnar svo þetta mál er því ekkert nýtt að því leyti. Síðast í sumar var öðrum titli ársins ráðstafað með úrskurði íþróttaráðs FIA. Og sama titli úthlutaði áfrýjunarrétturinn árið 1999.
Og augljóslega hafði McLaren hagsmuni af því að fá málið dómtekið vegna titilkeppninnar. Tæknifulltrúi FIA í Sao Paulo úrskurðaði að bensínið á bílum Williams og BMW hafi verið ólöglegt samkvæmt reglum og gildandi viðmiðum. Dómararnir töldu hins vegar vafa á því. Sá vafi snerist einungis um við hvaða lofthitamælingu væri miðað - þá sem kæmi fram á skjám FOA og birtast á sjónvarpsskjám um heim allan eða mælingu frönsku veðurstofunnar, sem er hin opinbera veðurstofa FIA.
Með tímanum undrast maður meira og meir regluverk formúlunnar og hvernig mál rekast þar. Reglur virðast óljósar og ógagnsæjar og þungir dómar eru úrskurðaðir án rannsóknar og dæmt á líkum. Nýjasta dæmið er brottvikning McLaren úr keppni bílsmiða í ár. Og eftir gærdaginn standa menn í sömu sporum varðandi reglu sem þráttað var um að þessu sinni.
Svo finnst mér aðfinnsluvert hvernig tveir helstu leiðtogar og áhrifamenn formúlunnar hafa hagað sér gagnvart kærumálinu. Hótanir Bernie Ecclestone um að segja af sér ef ákveðin niðurstaða fengist ekki komst í heimsfréttir. Max Mosley forseti FIA gagnrýndi McLaren og áfrýjunina hástöfum og talað gegn henni eftir að fram var komin. Af hverju þögðu þeir ekki og svöruðu spurningum bara á þá leið að láta bæri dómstólnum eftir að fjalla um málið? Það hefði verið öllu foringjalegra.
Segja má að yfirlýsing Ecclestone hafi verið mistök því vart hafði hann sleppt orðinu er bloggsíður víða um heim loguðu og hvöttu hann til að taka Mosley á brott með sér!
Ekki er ég sérlegur aðdáandi McLaren; árétta það að ég held ekki með neinu liði en dáist að þeim flestum að einhverju leyti, þar á meðal McLaren og Ferrari. En það er ekki laust við að maður hafi nokkra samúð með McLaren eftir allt sem á hefur gengið á árinu. Eftir að hafa haft alla burði til að vinna báða titla ársins situr liðið eftir með sárt ennið - engan titil og sér á eftir úrvals ökuþór, líklega þeim besta í formúlunni í dag þegar bæði bílþróunarfærni og kappakstursfærni hans er höfð í huga.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 10:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 8. nóvember 2007
Ekki ein báran stök - nú þarf Briatore að svara til saka fyrir njósnir
Það er ekki ein báran stök í hneykslismálum formúlu-1. Svonefndar njósnir hjá Ferrari að falla í gleymsku þegar önnur della af svipuðum toga sprettur fram og verður til þess að afrek á kappakstursbrautinni falla enn og aftur í skuggann - akkúrat þegar bílprófanir vetrarins eru að renna upp.
Alþjóða akstursíþróttasambandið (FIA) hefur nú sakað Renault um nákvæmlega sama brot og það sakaði McLaren um í sumar - brot á keppnisreglum með því að hafa í fórum sínum með ólögmætum hætti hugbúnað keppinautar,
Renault mun vera með gögn frá McLaren en hönnuður þess síðarnefnda var með undir höndum gögn frá Ferrari sem kostaði McLaren á endanum útskúfun úr keppni bílsmiða og 100 milljóna dollara sekt.
Reynist íþróttaráð FIA samkvæmt sjálfu sér refsar það Renault með álíka hætti - hverjar svo sem viðbárur franska liðsins verða. Ljóst er að það hefur haft gögnin undir höndum. Samkvæmt dómnum yfir McLaren þarf ekkert að sanna að þau hafi ekki verið notuð, miðað við röksemdafærslu ráðsins í fyrra málinu mátti ætla að þau hafi verið notuð fyrst þau voru í fórum liðsmanna.
Gögnin sem Renault er með eru búin að vera í fórum liðsins frá í september í fyrra þar til í október í ár, er könnun FIA á málinu lauk. Því hafði það mun meiri möguleika á að nýta sér þau en McLaren þar sem hönnuður McLaren var með nær öll gögn sem hann fékk frá Ferrari í höndum í aðeins rúman mánuð.
Í anda allrar sanngirni skal Renault þó teljast saklaust þar til annað hefur sannast, en forsvarsmenn liðsins þurfa að svara til saka frammi fyrir íþróttaráði FIA eftir fjórar vikur í Mónakó.
Athyglisvert er að mál Renault kom upp við innanhússrannsókn McLaren eftir að í ljós kom að aðalhönnuður liðsins, Mike Coughlan, hafði undir höndum hugverk og tæknigögn um 2007-bíl Ferrari. Leiddi grannskoðun á tölvukerfum McLaren í ljós að fyrrverandi starfsmaður liðsins hafði hlaðið niður og tekið með sér nokkra tölvudiska fulla af tæknigögnum er hann réðist til Renault í fyrra.
Þar á meðal hafi verið nákvæmar teikningar og mæligögn fyrir eldsneytiskerfi bílsins, gírkassa, olíukælikerfi, stýribúnað vökvakerfis bílsins og sérlegan fjöðrunarbúnað sem notaður hafi verið í bílum McLaren 2006 og 2007.
Renaultstjórinn Flavio Briatore gekk einna harðast fram á sínum tíma og þótti McLaren sleppa létt með að vera ekki rekið úr keppni í ár og næsta ári vegna njósnamálsins. Einnig taldi hann liðið hafa sloppið vel þar sem ökuþórarnir voru ekki sviptir stigum.
Þetta gæti átt eftir að hitta Ítalann dómharða illa fyrir. Hann var vitaskuld ekkert nema sakleysið uppmálað þegar út spurðist í haust að lið hans byggi e.t.v. einnig yfir ólöglega fengnum gögnum eins og McLaren. Lýsti hann því yfir við ítalska íþróttadagblaðið Gazzetta dello Sport að hann væri bjartsýnn á að Renaultliðið teldist ekki hafa gert neitt rangt.
Briatore sagðist þá ekki skilja atganginn út af málinu og sakaði Ron Dennis liðsstjóra McLaren um grjótkast úr glerhúsi. Fróðlegt verður að sjá hvort fleiri búi í glerköstulum.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 18:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)