Laugardagur, 1. apríl 2006
Aprílgabb hjá Ferrari eða áhrif vængjanna?
Botna ekkert í árangri eða öllu heldur getuskorti Ferraribílanna í tímatökunum í Melbourne. Komast ekki gegnum niðurskurðinn í hóp 10 bestu. Áreiðanlega hafa einhverjir haldið að um aprílgabb væri að ræða. En ætli skýringin á ónógum hraða - sem Schumacher segir að verði að finna - hafi eitthvað með ólöglegu fram- og afturvængi bílsins að gera sem Ferrari var beðið að taka af bílnum eftir síðasta mót?
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 10:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Laugardagur, 25. mars 2006
Vinnur Fisichella annað árið í röð í Melbourne?
Þriðja ballið á nýhafinni stuðvertíð er framundan; eftir viku í Albertsgarði í Melbourne í Ástralíu. Þarf ekki að rífa mig eins snemma upp og menn heima á klakanum því klukkunni verður flýtt um helgina hér í Frakklandi og seinkað í Melbourne eftir viku. Sem sagt kappaksturinn hefst klukkan sex að morgni að frönskum tíma en ekki rúmlega miðja nótt eins og á Raufarhöfn.
Í ljósi yfirburða Renault í Malasíu spyr maður sig hvort Giancarlo Fisichella endurtaki afrekið frá í fyrra og vinni aftur í Melbourne í ár? Mest hætta er honum sjálfsagt búin af liðsfélaga sínum Fernando Alonso. En svo segjast McLarenmenn munu taka stórtækum framförum í Albertesgarði og gefa til kynna að þeir muni í það minnsta velgja Renault verulega undir uggum.
Fisichella ók frábærlega í Sepang en Alonso neyddist til að beita annarri taktík vegna mistaka við bensínáfyllingu. Standi þeir jafnar að vígi hvað uppleggið varðar í Melbourne verður fróðlegt hvort Ítalinn geti lagt hinn spænska liðsfélaga sinn að velli. Sýni hann þolinmæði og þrautsegju sé ég ekki hvers vegna hann ætti ekki að geta það!
Víst er að mann hlakkar til mótsins.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 13:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 21. mars 2006
Vondir vængir og váleg tíðindi
Bomban er fallin, bæði fram- og afturvængur Ferraribílanna eru ólöglegir samkvæmt úrskurði Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA). Og afturvængir McLaren og BMW ofan í kaupið. Þá er það komið á hreint.
Breytingarnar sem Ferrari og McLaren þurfa að gera munu verulegar en afturvæng BMW mun þurfa breyta smáræðis.
Þetta gæti átt eftir að koma hart niður á liðunum, sérstaklega Ferrari og McLaren. Vængirnir hafa jú veruleg áhrif á getu bílanna og vegna V8-vængjanna ríður enn meira á að loftflæðið um bílinn sé skilvirkt og bæti hraða þeirra.
Nýir vængir koma því líklega til að draga úr ferð bílanna. Þar með er þess allt eins að vænta - a.m.k. fyrst um sinn - að Renault og Honda slíti sig frá McLaren og Ferrari í stigakeppnum formúlunnar. Það eru vissulega váleg tíðindi því hætt er við að keppnin verði ekki eins tvísýn og spennandi og í fyrstu tveimur mótum ársins.
Vitaskuld fara tæknimenn liðanna út á ystu mörk hönnunarrammans eins og hann er lagður niður í tæknireglum formúlunnar. Vænghönnuðir framangreindra liða hafa ekki aðeins farið inn á grátt svæði, heldur út fyrir ramman, samkvæmt niðurstöðum FIA.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 10:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 18. mars 2006
Metagræðgi?
Jæja, ekki skildi ég alveg tilgang Michaels Schumacher með því að hamast í tímatökunum og þræla þannig að óþörfu út mótorinn nýja sem settur var í bílinn í morgun.
Hefði ekki verið nær að spara hann í keppnina því litlu munar hvort maðurinn hefur keppni í 11., 14. sæti eða aðeins aftar. Það læddist að mér sú hugsun að þarna væri karlinn að reyna slá ráspólamet Ayrtons Senna.
Þegar formúlumetin hafa legið í valnum vegna glæsilegs gengis hans um dagana hefur hann alltaf neitað því að metaslátta væri eitthvað markmið hjá sér, sagðist aldrei hugsa um tölfræði sem slíka.
En var þetta ekki gönuhlaup í morgun hjá Schumacher? Var það metagræðgi? Hann einn getur svarað því. En þurfti hann eitthvað að læra á brautina eða aðstæður? Það held ég ekki; ekki fremur en liðsfélagi hans sem kaus að spara sína vél.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 11:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 17. mars 2006
Vandi Monza óleystur
Þær eru þokkalegar fréttirnar frá Ítalíu í dag. Bann við æfingum og keppni háværra bíla í Monza er staðfest en undir bannið falla formúlubílarnir sem eru langt yfir hávaðamörkum sem leyfileg eru. Það er náttúrulega skandall ef ítalski kappaksturinn verður að flytja burt úr þessari sögufrægu braut.
Þeir sem hafa keypt sér hús eða byggt í Monza undanfarna rúmlega hálfa öld hafa vitað að hverju þeir gengju varðandi æfingar og keppni í brautinni. Og bílar eru ekkert háværari nú en á árum áður.
Við verðum bara að vona hið besta og að einhver vitræn niðurstaða fáist í málinu þar sem tekið er tillit til sjónarmiða beggja aðila, íbúanna og akstursíþróttanna.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 19:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 17. mars 2006
Að keyra í Sepang er eins og kynlíf í gufubaði!
Þá er formúlufjör framundan aðra helgina í röð. Við áhugamennirnir búum við ólíkt annað en ökuþórarnir sem þurfa að þeysast áfram og halda athyglinni óskertri á annan klukkutíma við gríðarlega erfiðar aðstæður.
David Coulthard segir að það að keppa í Sepang sé eins og að þræla í gufubaði, slíkur sé hitinn. Hann segist ekki vita um nokkurn sem vilji stunda æfingar í gufubaði, nema þá kynlíf - eins og hann kemst að orði.
Þá hafið þið það - þeir sem það þekkja vita þá hvernig ökuþórarnir hafa það í kappakstrinum í Sepang!!!
Já, þeir tala léttúðlega kapparnir þegar sá gállinn er á þeim. Mér finnst ómögulegt að ráða nokkuð í framhaldið af æfingunum í morgun. Þetta er reyndar ekkert svo ólíkt því sem var á föstudeginum í Barein.
Mánudagur, 13. mars 2006
Toyota mun sigrast á vandanum!
Árangur Toyotaliðsins í Barein var langt undir væntingum og þaðan virðist liðið fara vængbrotið - svo ekki sé meira sagt - ef marka má yfirlýsingar forsvarsmanna þess. Gascoyne tæknistjóri segist hreint og beint ringlaður yfir hraðaskortinum.
Skiptin yfir á Bridgestonedekk af Michelin virðast hafa bitnað hart á Toyota. Allavega í samanburði við Williamsliðið. Það er mjög nærtæk skýring því Toyotabíllinn er meira og minna sá sami og liðið beitti í síðustu tveimur til þremur mótunum í fyrra með góðum árangri - þá voru Michelindekk undir honum.
Ég hef fulla trú á að Toyotamenn komist yfir vandann og muni laga stöðu sína stórlega að nokkrum mótum liðnum. Nú vita þeir nákvæmlega hvar þeir standa miðað við önnur lið og þeir hafa bæði aðstöðu og auðlindir til að takast á við vandann og sigrast á honum tiltölulega fljótt.
Mánudagur, 13. mars 2006
Byrjunin lofar góðu!
Vertíðin fór vel af stað, hvernig sem á það er litið. Góður sigur Alonso eftir verðuga rimmu við Schumacher. Ánægjulegt að hann skuli kominn í toppslaginn á ný því það eykur bara á fjörið og dramatíkina í keppninni um heimsmeistaratitil ökuþóra. Ótrúlegur akstur hjá Räikkönen - það er eins og hann þurfi að starta aftast, þá er hann bestur!!!
Svo eru það öll ef-in! Hvað hefði gerst ef kúplingin hefði ekki snuðað Button í ræsingunni? Og hefði Rosberg ekki bara komist á pall ef hann hefði ekki klúðrað fyrstu beygjunni og snúist þar útaf? Það finnst mér ekki fjargi lagi að álykta.
Allavega kemur Williamsinn þægilega á óvart - þar á bæ hefur mönnum tekist að aðlagast skiptum yfir á Bridgestonedekk margfalt betur en Toyotamönnum! Og aukinheldur skiptu þeir um mótorsmið þannig að margfaldur nýr vandi blasti við Williams er liðið hannaði bíl sinn í fyrrahaust.
Hafi árangur Rosberg í fyrsta mótinu ekki verið tilviljun þá ætti hann að verða reglulega í stigasæti í ár og meðal 6-8 efstu í keppninni um titil ökuþóra á sínu fyrsta ári í Formúlu-1. Sá til hans í GP1-mótum í fyrra og hann er ótrúlega sókndjarfur og sýndi þar einstaka hæfileika - rétt eins og í Barein.
Föstudagur, 10. mars 2006
Á Schumacher sjens?
Michael Schumacher er heljarmenni, það er best að taka það fram. En ég held ekkert með honum frekar en öðrum ökuþórum. Og ég hata hann ekki heldur - þó fer ekki á milli mála að ýmsir stuðningsmenn hans halda það!!! Við það verð ég víst að búa og sef eftir sem áður vært þrátt fyrir allt!
Á hann einhverja möguleika í titilbaráttunni í formúlunni í ár? Við upphaf vertíðar held ég ekki. En svo afsannar hann það og þá er það bara í stakasta lagi!
Vitaskuld hefur Schumacher talað undanfarið sem 248-bíllinn væri sérdeilis góður og tilbúinn í slaginn við Alonso og Räikkönen. Getur hann sagt annað? Hann er jú eins og fyrirliði á velli sem þarf að peppa liðsmenn sína og stuðningsfólkið í stúkunum og við sjónvarpsskjána. Foringi - og hefur verið góður sem slíkur. Bar höfuðið hátt í fyrra þótt örugglega væri hann hundfúll undir niðri sem alvöru keppnismanni sæmir!
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 13:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 10. mars 2006
Hvaða lið floppa?
Miðað við hvernig liðunum hefur gengið við þróunaraksturinn í vetur þá virðist blasa við að Red Bull floppi í ár. Og jafnvel Toyota líka.
Þetta er nokkuð undarlegt í ljósi þess að þau voru langfyrst til að smíða keppnisbíla sína og byrja prófanir á þeim. Mike Gascoyne tæknistjóri Toyota sagði blákalt að það myndi veita liðinu gríðarlegt forskot - það gæti verið búið að sníða alla galla sem óhjákvæmilega fylgdu svo miklum reglubreytingum og fyrir árið í ár. Fyrir vikið myndi Toyota mæta með óbrigðulan bíl í fyrsta mót. Í ljós kemur um helgina hversu sannspár hann reynist.
Það á líka við um Red Bull að það er ekki allt fengið með peningum. Ekkert hefur verið til sparað og toppmenn keyptir til liðsins, síðast Adrian Newey frá McLaren. Minnir mig á Chelsea sem afrekaði frekar lítið árum saman þótt dýrar stjörnur væru í flestum stöðum.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 13:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)