Mánudagur, 15. maí 2006
Kimi lélegur langhlaupari
Mér finnst Kimi Räikkönen full fljótur til uppgjafar í formúlunni. Finnar eru þekktir fyrir góða langhlaupara og keppnin um heimsmeistaratitil ökuþóra er eins og hvert annað langhlaup. Engu hlaupi er lokið fyrr en á mark er komið. Hann er ekki í þeirri stöðu að hafa sprengt sig á fyrsta hring. Þess vegna er yfirlýsing hans um að hann sé úr leik fallinn í titilslagnum óskiljanleg.
Maður freistast til að leita skýringa í eigin hugarfylgsni. Upp spretta spurningar. Vissulega hefur hann kvartað undan hraðaleysi McLarenbílsins en jafnharðan segir stjórinn Ron Dennis að engar áhyggjur þurfi að hafa af hraða silfurörvanna! Räikkönen hefur nú spyrnt við fótum all hressilega og nánast með berum orðum gefið frat í síðasta sköpunarverk Adrians Newey.
Er hann ekki líka með þessu að segja blákalt skilið við McLaren. Bílar liðsins hafa verið einstaklega mistækir undanfarin ár og hann segist ætla að keppa fyrir lið sem getur sigrað á næstu árum. Segir þar aðeins Renault og Ferrari koma til greina auk McLaren.
Þessum mikla keppnismanni hlýtur að hafa liðið illa í Barcelona í gær - það er niðurdrepandi sjón að horfa á eftir keppinautum sínum hverfa sér sjónum. Räikkönen hefur ítrekað verið bendlaður við Ferrari. Og víst er að liðið þarf að reiða fram fúlgur fjár til að næla í hann. Ekki síst vegna þess að nú er Renault búið að bjóða honum 20 milljónir evra á ári fyrir að koma til sín! Það eru aðeins 1805 milljónir króna á gengi dagsins. Með öðrum orðum 150 milljónir á mánuði - sem er samasem fimm milljónir krónur hvern dag!
Þetta mun vera margfalt hærri upphæð en Renault hefur verið að borga Alonso. Einkennilegt hlutskipti að vera heimsmeistari á lúsarlaunum á meðan uppgjafa ökuþór eru boðnar svimandi upphæðir úr mörgum áttum! Öðru vísi mér áður brá, ég segi bara ekki annað.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 18:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 14. maí 2006
Tímabær sigur Alonso á heimavelli
Sigur Fernando Alonso í Barcelona var tímabær. Draumur sérhvers ökuþórs er að vinna á heimavelli en bið hefur verið á því í tilfelli Alonso. Tvisvar hefur hann orðið annar en í dag gat ekkert nema bilun í bílnum komið í veg fyrir sigur. Kominn heim til keppni sem heimsmeistari var hann greinilega frá upphafi staðráðinn í að láta draum sinn og landa sinna um sigur fyrsta spænska ökuþórsins í Spánarkappakstrinum rætast.
Það var ekki amalegt að hafa sjálfan þjóðhöfðingjann Jóhann Karl sér til fulltingis. Annars er konungur mikill áhugamaður um íþróttir. Leggur sig fram um að styðja landa sína með nærveru sinni og hefur um langan aldur verið viðstaddur kappaksturinn í Barcelona. Honum hefur ekki leiðst að afhenda verðlaunin í dag.
Alonso sneri dæminu úr tveimur síðustu mótum við og lagði Mihcael Schumacher örugglega að velli - og það á herfræðinni. Fyrir viku var Schumacher með yfirhöndina og vann glæsilegan sigur í Nürburgring, sérstaklega þó með góðri keppnisáætlun því Ferraribíllinn virðist að öðru leyti orðinn nokkuð jafn Renaultinum að getu.
Rétt eins og Schumacher naut aðstoðar liðsfélaga síns Massa í keppninni í Imola fyrir þremur vikum hafði Alonso stuðning af Giancarlo Fisichella framan af keppninni í dag. Var hann tilbúinn að tefja fyrir Schumacher. Eftir á að hyggja og í ljósi þess hversu miklu meira bensín Schumacher var með í sínum bíl uppskar Fisichella ekkert nema tapa öðru sætinu til Schumachers.
Oftast hefur mér fundist lítið varið í Spánarkappaksturinn. Nánast eins og prósessía frá upphafi til enda og lítil sem engin keppni um sæti. Það vantaði mjög á slíkar viðureignir í dag en samt var stemmningin öðru vísi og mikil spenna í loftinu í Barcelona. Þar kemur Alonso til sögunnar. Pressan á honum var mikil. Stemmningin stórjókst eftir sigur hans í keppninni um ráspólinn. Og í ljósi þess hvernig fyrri mót hafa þróast var erfitt að segja til um hvernig færi í dag fyrr en að loknum seinni þjónustustoppunum. Þá gerði Schumacher sér ljóst að hann næði ekki Alonso og sparaði mótor sinn eftir það en hann þarf hann að nota í næsta móti, í Mónakó. Þar verður Alonso hins vegar með nýjan mótor þar sem mótorinn í dag var einnig í bíl hans í Nürburgring.
Ef Barcelonakappaksturinn er fjörlítill þá er Mónakókappaksturinn enn verri - örugglega jafnleiðinlegasta mót ársins. Eina vonin um að röðin breytist eftir að rásmerki er gefið er að bílar skelli utan í vegriðum eða hlekkist á með einhverjum öðrum hætti. Framúrakstur heyrir þar til undantekninga. Meira fjör ætti hins vegar að verða þegar í breska kappaksturinn í Silverstone kemur 11. júní og í mótunum í framhaldi af því. Ég hlakka meira til þeirra móta en þess næsta.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 18:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 11. maí 2006
Sagan um samningamál Schumacher orðin leiðinleg
Fjölmiðlar og er formúluvefur mbl.is ekki þar undan skilinn hafa flutt marga fréttina af málinu allt frá í fyrra. Bæði hann og umboðsmaður hans, Willi Weber, hafa verið loðnir í svörum og nefnt hina og þessa tíma um það hvenær ákvörðun myndi liggja fyrir.
Síðast í gær tjáði Weber sig og sagðist gera ráð fyrir fregnum af fyrirætlunum Schumacher í júlí. Áður hafði hann nefnt júní, þar áður maí og svo framvegis. Þá sagði Ferraristjórinn Luca di Montezemolo í viðtali við ítalska íþróttadagblaðið Gazzetta dello Sport í apríl að hann vænti svars frá Schumacher í maí þessum mánuði um það hvort hann héldi áfram eða hætti.Svo gefur Schumacher til kynna í dag að þurfi fimm mánuði til viðbótar til að velta málinu fyrir sér. Gott og vel. Hann veit best sjálfur hvaða tíma hann þarf til að hugsa málið og skoða. En hvað sem öðru líður þá er ég eiginlega búinn að fá hundleið á þessu máli. Það er löngu orðið svo farsakennt. Auðvitað vil ég að Schumacher haldi áfram. Hann er í fullu fjöri og tvímælalaust einn þriggja toppmanna formúlunnar í dag. Og næstu ára, ef hann vill. Ég hef haft á tilfinningunni að hann sé tilbúinn í eitt ár enn, en Ferrariliðið vill fá hann til tveggja ára. Það segir Montezemolo að honum hafi verið boðið, hann þurfi bara að segja já eða nei. Kannski var Schumacher að gera grín að öllu fárinu er hann sagði í Barcelona í dag, að hugsanlega yrði löng bið í niðurstöðu sína. Ferrari er alveg ánægt þótt það þurfi að bíða til vertíðarloka, sagði hann.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 20:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 10. maí 2006
Ætti Renault að hvíla Fisichella?
Stjórnendur Renaultliðsins virðast stundum hafa ástæðu til að ergjast út í Giancarlo Fisichella. Mér finnst reyndar að þeir ættu að hvíla hann og gefa tilraunaþór sínum, finnska ökuþórnum Heikki Kovalainen, tækifæri í staðinn. Já, eða einhverjum frönskum ökuþórum, nóg er af þeim góðum, t.d. í GP2- og A1-mótunum.
Það er ekki bara að gengi Fisichella sé skrykkjótt frá einu móti til annars. Að maður tali ekki um skapgerð hans, eins og hún braust út gagnvart Jacquese Villeneuve í tímatökunum í Nürburgring.
Nei, hraði Fisichella í keppni á það til að vera skrykkjóttur einnig. Furðugóðir hringir inn á milli en hægagangur þess utan. Og oft er eins og hann finni ekki rétta tempóið fyrr en undir lok kappaksturs.
Í fyrra setti hann til að mynda hraðasta hring Spánarkappakstursins í Barcelona á síðasta hring! En var samt mínútu á eftir sigurvegaranum, Kimi Räikkönen hjá McLaren, á mark.
Skrykkjótt ók hann einnig í Nürburgring um helgina. Yfirleitt ók hann hringinn á rúmlega 1:35 mínútum en svo batnaði tíminn allt í einu um sekúndu á 22. hring. Og án þess að hafa farið neðar kom allt í einu 1:32,964 mín. hringur hjá Fisichella á 46. hring. Alveg eins og þruma úr heiðskíru lofti! Og svo datt hraðinn niður aftur. Hann varð þó altjent sjötti á mark og því í fjórða mótinu í röð í stigasæti. Það hafði hann ekki afrekað frá árinu 2004.
Með hraðasta hring sínum sýndi Fisichella samskonar sprett og Michael Schumacher, Fernando Alonso og Kimi Räikkönen. Engir aðrir komust undir 1:33 mínútur. Munurinn á honum og þeim er að hraði þeirra var mun stöðugri.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 11:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 10. maí 2006
Fljótir fákar í Spa
Þótt undarlegt kunni það að hljóma hófst Ítalíureiðin á hjólum - Diro di Italia - í Belgíu um helgina. Á fjórðu dagleið sinni í gær lögðu hjólareiðagarparnir leið sína meðal annars um formúlubrautina í Spa Francorchamps. Í þeim áfanga hjóluðu þeir frá Wanze til Hotton í Belgíu.
Viðkoman í formúlubrautinni var síðasti kafli keppninnar í Belgíu. Í dag heldur hersingin land- og loftleiðis til Ítalíu. Áfram verður þar haldið á morgun, fimmtudag. Þá þenja knaparnir hjólhesta sína og sjálfa sig í kapp við klukkuna, einn og einn í einu, 38 km vegalengd.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 09:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 10. maí 2006
Vandi Toyota heldur áfram
Lengi vel virtist Toyota ætla að komast vel frá Evrópukappakstrinum í Nürnburgring um helgina. En það er ekki nóg að vera famarlega í byrjun, það er röðin í mark sem telur. Markmið liðsins var að vinna mótssigur í ár. Ekki virðast horfur á því ýkja miklar nú er svo gott sem þriðjungur vertíðar er að baki.
Jarno Trulli byrjaði keppni sjöundi og Ralf Schumacher 11. Um skeið voru þeir nokkrum sætum framar eftir að keppnin hófst. Á endanum kláraði Trulli utan stiga og er það níunda mótið í röð sem hann fer heim stigalaus. Er það svipaður árangur og varð til þess að hann var látinn fara frá Renault 2004.
Ralf virtist ætla að verða í sjötta sæti í 150. mótinu sínu. Mótorinn sprakk hins vegar er stutt var eftir. Hann hafði lokið öllum mótum ársins fram að þessu. Hann vann Evrópukappaksturinn á Williamsbíl árið 2003 en hefur ekki komist á mark í Nürburgring síðan.
Vonandi er að hagur strympu batni og Toyota láti fastar að sér kveða. Miðað við það sem það hefur lagt í sölurnar hlýtur sá dagur að koma að það uppskeri vel.
Red Bull átti ekki heldur góðan dag. Í þriðja sinn í síðustu fjórum mótum féllu báðir bílar liðsins úr leik.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 09:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 10. maí 2006
Hörmuleg helgi hjá Williams
Williams neyddist til að skipta um mótor í báðum bílum fyrir tímatökurnar. Vegna vítis sem því fylgdi hófu Webber og Rosberg keppni í 20. og 22. sæti. Aftar hafa þeir ekki verið á rásmarki frá því í bandaríska kappakstrinum í Watkins Glen árið 1975.
Í það skipti hófu Jacques Laffite og Lella Lombardi keppni í 21. og 24. sæti.Föstudagur, 5. maí 2006
Räikkönen þarf að losna úr álögum
Kimi Räikkönen bíður erfitt hlutskipti í Nürburgring á sunnudag, eigi hann að vinna fyrsta sigur McLaren á árinu á þessum heimavellil mótorsmiða liðsins, Mercedes. Til þess þarf hann eiginlega að losna úr álögum.
Já, það er eins og einhver álög hafi marað á Räikkönen í keppni í Þýskalandi. Hann hefur ekki komist á mark í Nürburgring þrjú ár í röð. Þá hefur hann ekki lokið þýska kappakstrinum í Hockenheim undanfarin fimm ár.
Tíu sinnum hefur Räikkönen hafið kappakstur í Formúlu-1 í Nürburgring og Hockenheim. Aðeins einu sinni hefur hann lokið keppni í stigasæti. Það var á fyrsta ári hans með McLaren, í Evrópukappakstrinum í Nürburgring árið 2002.
Þetta eru ótrúleg álög og fróðlegt verður að sjá hvort ísmaðurinn brýtur hlekki fortíðar af sér á sunnudag og sigri. Útlitið er ekki alltof gott ef eitthvað er að marka æfingarnar í dag. Räikkönen var þar frekar aftarlega á meri. Þó ber ætíð að taka niðurstöðum föstudagsæfinganna með fyrirvara þar sem einstakir ökuþórar geta verið að prófa sig áfram með mjög ólíka þætti.
Vísbendingar ættu hins vegar að fást í tímatökunum á morgun hvernig liðin virðast standa fyrir helgina.
Mánudagur, 3. apríl 2006
Massa og Klien sjá silfrið sínum augum hvor
Nú vilja menn þrátta um hvort Felipe Massa hafi gert akstursmistök í fyrstu beygjunum í Melbourne og orðið þess valdur að Nico Rosberg og Christian Klien féllu úr leik. Taka ef til vill afstöðu út frá því hverjum þeir halda með.
Það fór eins og mig grunaði, engir tveir ökuþórar segja eins frá atviki milli þeirra. Massa segir Klien hafa fyrst rekist utan í sig og eftir það hafi hann bara verið farþegi í Ferrarifáknum. Klien og Red Bull neita að bera nokkra ábyrgð og segja að tvisvar hafi verið ekið aftan á Klien í beygjunni [væntanlega er þar átt við Massa, eða hvað?]
Þannig er þetta í formúlunni. Ökuþórar og fyrirsvarsmenn liða, allt fullorðnir og eldklárir menn, þrefa og þrátta. Minna mann oft á lítil börn í sandkassa. En samt hefur maður gaman að íþróttinni og lætur þrasið ekki leiða sig af þeirri vegu.
Hvað segir Eðvarð um þetta? Ég held sannleikurinn komi aldrei í ljós. Alla vega munu Red Bull og Ferrari ekkert beita sér fyrir því. Þau halda sínu striki og strika bara yfir þetta óhapp, horfa beint fram eftir veg og reyna gera sitt besta í mótunum framundan. Það er venjan í formúlunni!
Myndasyrpu af óhappinu er að finna á formúluvef mbl.is - á slóðinni(http://www.mbl.is/mm/sport/formula/myndasyrpa.html?album=273)
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 07:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 2. apríl 2006
Ánægjubros Brawn átakanlegt
Mér fannst heldur átakanlegt ánægjubrosið sem færðist yfir andlit Ross Brawn tæknistjóra Ferrari er hann sá Juan Pablo Montoya snúa bíl sínum í lok upphitunarhringsins í Melbourne. Hvernig ætli honum hafi svo liðið þegar báðir ökuþórarnir hans voru búnir að eyðileggja bíla sína fyrir hrein akstursmistök áður en keppnin var hálfnuð?
Eins og fleiri hefur Brawn líklega talið að Montoya væri fallinn úr leik eða yrði að byrja aftastur og hagur Ferrari í keppninni við enska liðið væri þar með orðinn betri. Eðlilegt er að mönnum í hans stöðu létti við hvert atvik er bætir stöðu eigin liðs en að það hlakki í þeim jafn opinberlega í viðurvist sjónvarpsáhorfenda um heim allan er fyrst og síðast niðurlægjandi fyrir Brawn sjálfan. Það finnst mér alla vega.
Betur hefði hann sagt "yes" í hljóði og hvatt sína menn í talstöðinni til að bíta nú á jaxlinn vegna ófara Montoya! Yfir því hefði verið meiri reisn.