Laugardagur, 6. október 2007
Hamilton með rúmlega hönd á titlinum
Það má hverjum og einum vera ljóst eftir tímatökurnar í Sjanghæ í Kína í dag, að Lewis Hamilton hjá McLaren er kominn með aðra höndina og rúmlega það á heimsmeistaratitil ökuþóra í ár. Úr þessu getur vart neitt - nema einstakt ólán - komið í veg fyrir að hann verði á morgun fyrsti nýliðinn frá árinu 1951 til að vinna heimsmeistaratitil ökuþóra.
Hann verður jafnframt með því yngsti meistari sögunnar. Hann er 22 ára en metið á liðsfélagi hans Fernando Alonso sem var 24 ára er hann vann sinn fyrsta titil, á Renault-bíl, árið 2005.
Fyrir mótið er Hamilton með 12 stiga forskot á Alonso, meistara undanfarinna tveggja ára. Auk kappakstursins í Sjanghæ í Kína um helgina er aðeins lokamót vertíðarinnar eftir, í Sao Paulo í Brasilíu, eftir hálfan mánuð.
Glæsilegur sigur í Japan
Einfaldasta leið Hamiltons til að vinna titilinn er að vinna kappaksturinn á morgun. Takist það ekki dugar honum að verða á undan Alonso og Kimi Räikkönen hjá Ferrari. Önnur úrslit gera málið flóknara en eigi titilbaráttan að lifa fram í lokamót ársins eftir hálfan mánuð verður Alonso að vinna a.m.k. tveimur stigum meira en Hamilton í Kína.
Hamilton vann glæsilegan sigur í japanska kappakstrinum síðastliðinn sunnudag í úrhellisrigningu í Fuji-brautinni en Alonso féll úr leik. Varð þar með fyrsti ökuþórinn í sögu formúlu-1 til að vinna 100 stig í aðeins 15 mótum. Hann á nú allgóða möguleika á að vinna titilinn fyrstur Breta frá því Damon Hill afrekaði það árið 1996.
Hins vegar getur óhapp og brottfall úr keppni í Sjanghæ, rétt eins og hjá Alonso í Fuji, gjörbreytt stöðunni á ný. "Allt getur gerst en ég er sigurviss og mjög ákveðinn í að standa mig vel. Mikið er rætt um titilinn en ég reyni að hugsa ekki um hann, heldur einbeiti mér að mótunum tveimur sem eftir eru og reyni að gera mitt besta."
Hamilton hafði hvorki séð brautina í Sjanghæ er hann mætti þar til leiks né hefur hann séð Sao Paulo. Það ætti ekki að skipta máli því hann fór með sigur af hólmi í ár í þremur brautum sem hann hafði aldrei komið til áður; Indianapolis, Montreal og Fuji.
Alonso þarf kraftaverk
Vonir Alonsos um þriðja titil ökuþóra í röð byggjast á einhvers konar "kraftaverki"; öllu heldur óheppni af hálfu liðsfélaga hans og hatramms keppninautar. Hann hóf keppni í Sjanghæ á ráspól í fyrra og vann mótið 2005 á Renault-bíl.
"Brottfall mitt í Japan hefur ekki auðveldað mér keppnina um heimsmeistaratitilinn. En það eru enn 20 stig til skiptanna og ég ætla að berjast af hörku um hvert og eitt þeirra," sagði Alonso í aðdraganda Kínakappakstursins.
Hann mun notast við varabíl McLaren úr japanska kappakstrinum í Sjanghæ þar sem keppnisbíll hans skemmdist of mikið í Fuji til að hægt yrði að gera við hann milli mótanna.
"Hið eina sem ég hugsa um og einbeiti mér að er að fara með sigur af hólmi í Sjanghæ og Interlagos," sagði Alonso einnig.<p>
Räikkönen á möguleika
Kimi Räikkönen hjá Ferrari á stærðfræðilega möguleika á titlinum en hann er 17 stigum á eftir Hamilton. Hann gæti flækt stöðuna með því að vinna kappaksturinn í Sjanghæ sem yrði 200. mótssigur Ferrari í formúlu-1. Fyrsta sigur Ferrari vann Argentínumaðurinn Froilan Gonzalez í Silverstone árið 1951.
Brautin hentaði skarlatsrauða Ferrarifáknum í fyrra er Michael Schumacher ók til sigurs úr sjötta sæti á rásmarki en það var 91. og síðasti sigur hans í formúlu-1. Räikkönen getur reitt sig á hjálp liðsfélaga síns Felipe Massa, sem er úr leik í titilkeppninni.
Ökuþórar McLaren munu hins vegar enga miskunn sýna hvor öðrum sem gæti komið Räikkönen vel. "Svo virðist sem Hamilton hafi þetta í höndum sér, en ég gefst ekki upp. Ég mun allavega reyna að gera honum erfiðara fyrir með því að vinna síðustu tvö mótin," sagði Räikkönen á heimasíðu sinni í vikunni. <p>
McLaren aldrei unnið í Kína
Räikkönen féll úr leik í Sjanghæ í fyrra en varð í öðru og þriðja sæti 2004 og 2005. Massa féll einnig úr leik í fyrra en besti árangur hans í brautinni er sjötta sæti árið 2005.
Svo vill til, að McLaren hefur ekki fagnað sigri í Kína frá því kappakstur hófst þar árið 2004. Ferrari hefur tvisvar hrósað sigri og Renault einu sinni, fyrir tilstilli Alonso.
Vinni Hamilton annað hvort lokamótanna tveggja, í Kína eða Brasilíu, verður hann fyrsti ökuþór sögunnar til að vinna fimm mót á jómfrúarári sínu. Jacques Villeneuve vann fjögur mót á sínu fyrsta ári, 1996. Með sigrinum í Fuji jafnaði Hamilton fjölda mótssigra stofnanda liðsins, Bruce McLaren.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.