Titilkeppninni lýkur vonandi ekki í Sjanghæ

Vonandi lýkur keppni ökuþóra McLaren um titilinn ekki fyrr en í BrasilíuPúkinn í mér hefur einhverja ástríðu þessa dagana til að brjótast aðeins út og lýsa því yfir að hann voni að Lewis Hamilton verði ekki heimsmeistari í Sjanghæ um helgina. Hann má alveg verða meistari, bara geyma það þar til í lokamótinu í Sao Paulo í Brasilíu hálfum mánuði seinna.

Það er öldungis ómögulegt að heimsmeistarakeppni skuli ljúka áður en blásið er til lokamótsins. Að maður tali nú ekki um ósköpin þegar jafnvel þriðjungur vertíðar er eftir eins og gerðist fyrir nokkrum árum.

Þrátt fyrir allt ruglið og bullið sem í gangi hefur verið utan keppnisbrautarinnar er árið búið að vera um margt jákvætt. Keppnin um ökuþóratitilinn jafnari en lengi og fjórir í baráttunni þar til sl. sunnudag er þeim fækkaði í þrjá.

Sviptingar hafa verið talsverðar og mörg ógleymanleg atvik átt sér stað. Að nokkrum þeirra varð ég vitni að með því að vera á mótsstað, svo sem í Nürburgring og Spa-Francorchamps. Öðrum komu svo sjónvarpsstöðvar vel og skilmerkilega á framfæri.

Mér er sama hver verður meistari, sá hinn sami verður þess verðugur. Úr þessu koma til greina Hamilton, Fernando Alonso og Kimi Räikkönen. Við blasir að Hamilton stendur langbest að vígi og er með aðra höndina á titlinum, ef svo mætti orða það. Veruleg frávik þurfa að verða á venjubundinni frammistöðu hans eigi titilkeppnin að dragast um hálfan mánuð, sem ég vona þó að verði, eins og áður segir.

Annað út úr myndinni en að McLarenþór verði meistari

Alonso lifir í voninni um að kraftaverk gerist og að hann haldi titlinum, en hvað þarf að gerast til að  Räikkönen vinni hann í fyrsta sinn? Miklu meira en kraftaverk, líklega eitthvað á borð við náttúruhamfarir í öðru veldi. Þetta er nú í gríni sagt, en ég tel samt annað útilokað en að McLarenmaður vinni titilinn.    

Ástæðan er einföld. Aðeins einu sinni hefur McLarenbíll fallið úr keppni í ár, en þar er um óhapp Alonso í bleytunni í Fuji að ræða. Ferraribílarnir hafa aftur á móti margsinnis þjáðst af endingarskorti. Og í undanförnum sjö mótum frá því njósnamálið svonefnda kom upp á yfirborðið hafa ökuþórar McLaren landað fleiri stigum en starfsbræður þeirra hjá Ferrari, eða 88 gegn 81.

Og í heildina eru samanlögð stig Hamiltons og Alonso 202 en stig Räikkönen og Felipe Massa 170. Og af 45 verðlaunasætum sem til boða hafa staðið til þessa hafa 22 fallið McLaren í skaut en 18 Ferrari. Öll önnur lið formúlunnar skipta með sér afganginum, fimm sætum.  

Áfram bið á McLarensigri í Sjanghæ?

Eini möguleiki Räikkönens er að hann vinni mótin bæði sem eftir eru og að keppinautarnir falli úr leik í báðum. Öll tölfræði mælir gegn því að slíkt eigi sér stað. Þó er það honum hagstætt í þessu tilliti, að í 11 mótum af 15 hefur sá ökuþór farið með sigur af hólmi sem hraðast ók á föstudagsæfingunum. Það gerði Räikkönen í Sjanghæ í dag. 

Og spurning er hvort áfram verði McLaren að bíða eftir mótssigri í Kína. Frá því kappakstur hófst þar árið 2004 hefur Ferrari hrósað sigri tvisvar og Renault einu sinni, fyrir tilstilli Alonso. 

Tímatökurnar á morgun munu ráða miklu. Í síðasta móti munaði aðeins 70 þúsundustu úr sekúndu á Hamilton og Alonso sem hlutu tvö fyrstu sætin. Var það fjórða mótið í röð þar sem innan við sekúndubrot var á milli tveggja fyrstu.

Tímamót hjá Barrichello

Räikkönen gæti brotið blað í sögu Ferrari um helgina með sigri. Yrði það 200. sigur Ferrari í formúlu-1 og í 600. sinn sem ökuþór liðsins stendur á verðlaunapalli.

Rubens Barrichello þreyir um helgina sitt 248. mót og jafnar þar með mótafjölda Michaels Schumacher. Aðeins einn ökuþór hefur keppt oftar, en það er Riccardo Patrese, sem keppti 256 sinnum á sínum tíma. Það met er innan seilingar hjá Barrichello því hann verður ökuþór hjá Honda einnig á næsta ári. 

Komist Barrichello a.m.k. 39 hringi verður hann annar ökuþórinn í sögu formúlu-1 til að hafa ekið 60.000 km í keppni. Það afrekaði Michael Schumacher sem átti 66.164 keppniskílómetra að baki er hann hætti keppni í lok vertíðarinnar í fyrra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband