Massa til Toyota og Alonso til Ferrari?

Ferrari væri fengur að AlonsoLausafregnir leika lausum hala á vettvangi formúlunnar um þessar mundir og kemur Fernando Alonso mjög við sögu. Flestir telja hann á förum frá McLaren; ekki endilega til Renault heldur jafnvel til Ferrari. Til að rýma fyrir honum þar er Felipe Massa sagður eiga í samningaviðræðum við Toyotaliðið.

Fregnin um Massa er sett í samhengi við það, að dagar Jean Todt sem liðsstjóra kunni senn að vera taldir, en því vísar hann sjálfur reyndar á buk. Hermt er að tæknistjórinn fyrrverandi, Ross Brawn, vilji stól hans og muni ekki koma aftur til liðsins nema það gangi eftir. Hann vill ekki verða tæknistjóri á ný.

Verði Todt undir í valdabaráttu innan Ferrari ogþurfi að víkja veikist staða sonar hans Nicolas,  en hann er jú umboðsmaður Massa. Toyota er líklega eina liðið sem efni hefur á að kaupa Massa til sína. Gangi það eftir opnast dyr fyrir Alonso sem lausafregnir segja að eigi ekki framtíð fyrir sér hjá McLaren vegna aðildar sinnar að njósnamálinu.

Það kemur væntanlega fljótlega í ljós hvort Ron Dennis og hans menn láta hann frá sér. Þeir eiga ekki kost á betri ökuþór sýnist mér og því er líklega eina réttlætingin að leyfa honum að fara, að liðsandinn verði betri eftir á. En er liðsandinn slæmur? Ekki varð ég var við það í Spa um síðustu helgi. 

Vissulega væri það ávinningur fyrir Ferrari að fá til sín jafn góðan ökuþór og Alonso. En til að losna frá McLaren þykir mér líklegt að hann verði að eiga frumkvæði að því að fá sig leystan undan samningi sem ella gildir út árið 2009.  

Dennis kyngdi 100 milljóna dollara sekt á dögunum og mætti því ætla að hann geti kyngt því að Alonso fari. En vilji Ferrari fá hann, eins og fullyrt er, yrði liðið að borga McLaren væna summu fyrir hann.  Og með því niðurgreiða sektina frá í síðustu viku því Dennis myndi ráða mun billegri ökumann í stað heimsmeistarans.

Þótt fótur sé fyrir flestum lausafregnum í formúlunni - það eru gömul sannindi og ný - þá ætla ég að vera svo djarfur og spá því að þessar sögur gangi ekki eftir og Alonso verði um kyrrt hjá McLaren. Alonso til Ferrari?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óli Sveinbjörnss

Sæll Ásgeir, ég er alveg sammálla þér að Alonso fer ekki til Ferrari. Las það einhverstaðar þegar Alonso vann sinn fyrsta titill þá var hann orðaður við Ferrari en hann sagði að Senna væri sín fyrirmynd og hann langaði að gera sama og hann þ.e. vinna þrjá heimsmeistara titla. Einn með Renault, einn ,með Mclaren og einn með Williams. Þú leiðréttir mig ef ég er að fara með vitlaust mál í sambandi við titla Senna. Það hefur nú verið sagt að allir formúlu ökumenn sækist eftir því að keyra með Ferrari en ég held að Alonso sé ekki á þeirri línu. Svo finnst mér að honum vegið í sambandi við hans þátt í njósnamálinu. Ég sá á heimasíðu FIA fréttatylkynningu að þeir hörmuðu það að ökuþórar Mclaren, Alonso, Hamilton og De la Rosa, hefðu verið dregnir inn í þetta mál. Ökuþórarnir sögðu bara rétt og hreinskilningslega frá. En þetta er náttúrlega svona þar sem brýtur mest á.

Óli Sveinbjörnss, 24.9.2007 kl. 00:15

2 Smámynd: gudni.is

Ég er sammála djörfum spádómum þínum Ágúst. Ég spái því einnig að Alonso verði áfram hjá McLaren á næsta ári. Ég verð samt að viðurkenna það að ég mundi ekkert sjá neitt rosalega eftir honum frá liðinu ef hann færi frá McLaren. Hegðun hans og framkoma gagnvart bæði liðinu og Hamilton í ár er alls ekki til sóma.

gudni.is, 24.9.2007 kl. 11:44

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ferrari-menn hafa lýst því yfir að þeir vilji ekki sjá Alonso og þykir engum skrítið eftir það hvernig maðurinn hefur hagað sér.

Jóhann Elíasson, 27.9.2007 kl. 11:40

4 Smámynd: Ágúst Ásgeirsson

Jean Todt mun víst erfa einhverjar gamlar syndir við Alonso og er ekkert mjög áfram um að fá hann. Annað mun vera að segja um Montezemolo aðalstjóra.

Annars giska ég á að þessar fréttir um Alonso og Ferrari séu undan rifum Ferrarimanna runnar og þær séu liður í því almenna sálfræðisstríði sem viðgengst milli formúluliða í harðri baráttu. Þau reynda að koma mótherjanum úr jafnvægi með ýmsum hætti. 

Alonso kallar þetta kjaftagang sem hann nenni ekki að reyna að leiðrétta meðan keppnin um titil ökuþóra er í algleymi.

Ágúst Ásgeirsson, 28.9.2007 kl. 16:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband