Laugardagur, 15. september 2007
Í ægibrattri Rauðavatnsbeygjunni blasir himininn við ökuþórunum
Það er fróðlegt að lesa gögn frá keppnisliðum og dekkjaframleiðandanum Bridgestone um hvað bíður liðanna um helgina hér í Spa-Francorchamps. Mikið mun mæða á gangverki bílanna, ökuþórunum og maður gæti haldið eftir lesturinn að dekkin væru mannleg!
Það er afar fróðlegt að standa í dalbotni og virða fyrir sér Rauðavatnsbeygjuna (Eau Rouge). Í sjónvarpinu virkar hún tiltölulega flöt en í raunveruleikanum er eins og maður standi við hamarsvegg, slíkur er brattinn. Hann er a.m.k. jafnmikill, ef ekki meiri en í brattasta kafla Kambana.
Upp þennan bratta æða bílarnir á mestu mögulegri ferð og sér ökuþórinn ekkert nema himininn framundan, fyrir utan toppa hæstu trjánna í annars ægifögru umhverfi hér.
Inn í brekkuna koma bílarnir á um 300 km hraða og slíkir eru kraftarnir sem toga í ökuþórana, að þeir eru skammt frá yfirliði. Pressast niður í sætin með krafti sem jafngildir fimmfaldri þyngdaraflshröðun. Það á sér þó ekki stað nema í einhver sekúndubrot og fljótlega tekur við, einnig í sekúndubrot, neikvæður kraftur þegar bíllinn kemur yfir brekkubrúnina áum 290 km hraða, en þá er eins og ökuþórinn ætli upp úr sætinu en rammgerð belti koma vitaskuld í veg fyrir það.
Allir segjast ökuþórarnir elska þessa beygju og engum stendur ógn af henni. Segja hana kannski hrollvekjandi á fyrsta hring en eftir það sé hrollurinn úr þeim. Lewis Hamilton segist standa á bensíngjöfinni í botni er hann leggur í beygjuna og fetilnum lyfti hann ekki. Aðalatriðið sé að hreyfa stýrið sem minnst til að afturendinn hlaupi ekki útundan sér og bíllinn snarsnúist, eins og kom fyrir Jacques Villeneuve fyrir nokkrum árum.
Brautinni hefur verið lítillega verið breytt í lok hringsins og upphafi hans til að auka á möguleika til framúraksturs og auka á öryggi ökuþóra og áhorfenda. Hún er 7.003 metra löng, sú lengsta á árinu, og er meðalhraði bílanna yfir 260 km/klst, enda eru þeir ekki nema um 1:45 mínútur með hringinn. <p>
Spa-Francorchamps brautin reynir verulega á hina nýju V8-mótora sem keppt er með í fyrsta sinn í Spa í ár, en þegar síðast fór hér fram mót, 2005, voru V10-mótorar enn í keppnisbílum formúlunnar. Fengu liðin tækifæri að meta aðstæður með tilliti til mótorsins við þriggja daga bílprófanir í júlí. Er hann undir miklu álagi, eða í botni 73% hringsins. Það hlutfall er einungis hærra í Monza, eða 77%, en þar er hringurinn 1,2 km styttri. Aukinheldur er mótorinn tvisvar í botni í yfir 20 sekúndur, þar af 23 sekúndur frá fyrstu beygju, La Source, að Les Combes-beygjunni þar sem einn minnisstæðasti framúrakstur seinni tíma átti sér stað, er Mika Häkkinen tók fram úr Michael Schumacher árið 2000.
Þarna á milli er m.a. Rauðavatnsbeygjan og sætir mótorinn og reyndar allir vélrænir hlutar bílsins - gríðarlegum togkröftum á þessum tíma, til hliðanna og upp og niður, eins og ökuþórarnir. Álagið er gríðarlegt og í Rauðavatnsbrekkunni pressast þeir niður svo að botninn er aðeins rúma tvo sentimetra frá malbikinu. Hönnun mótorsins, og bílsins alls, tekur reyndar mið af þessu álagi, þessum miklu og afar snöggu kraftbreytingum. Ekki síst þarf smurkerfi mótorsins að duga til að koma olíu á sína staði undir álaginu.
Eins og jafnan munu tímatökurnar í dag væntanlega ráða miklu um endanlega niðurstöðu, þótt það sé kannski eins afgerandi hér og í öðrum brautum vegna óvenjulegra aðstæðna. Vegna legu sinnar og eðlis dregur það úr mögulegum hraða að drattast með mikinn bensínþunga. Miðað við núverandi fyrirkomulag tímatökunnar getur komið sér vel að vera með eyðslusaaman mótor undir vélarhúddinu.
Eins og áður segir toga þyngdaraflskraftar mjög í bílinn en hann er einnig undir miklu álagi af völdum vængpressu. Vængir eru meiri en t.d. í Monza vegna nokkurra hægra beygja. Engu að síður eru 13 af 19 beygjum brautarinnar teknar á yfir 150 km/klst hraða og þá mæðir mikill álagsþungi á bílnum vegna vængja og loftafslflata sem eiga að tryggja veggrip í gegnum þær. Er vænghleðsla bílanna svipuð og í Montreal og Indianapolis og ræður skilvirkni loftafls þeirra úrslitum um gengi í keppninni.
Í lok tveggja langra beinna kafla eru möguleikar til framúraksturs fyrir hendi dugi endahraði bíls á undan ökuþórnum ekki til að verja stöðu sína. Þetta á við um Les Combes- beygjuna og lokabeygjuna, strætóstoppið svonefnda.
Fjöðrunin er höfð tiltölulega stíf er þó stíf fyrir til að stuðla að straumfræðilegri skilvirkni í hraðari beygjunum og snöggum stefnubreytingum í hröðum beygjuhlykkjum. Gott veggrip er gríðarlega mikilvægt út úr strætóstoppinu og fyrstu beygjunni, La Source hárnálarbeygjunni, eigi ökuþór ekki að standa berskjaldaður gagnvart framúrtöku mótherja á bremsusvæði í næstu beygjum á eftir.
Spa reynir meira á dekk en aðrar brautir og því býður Bridgestone upp á tvær hörðustu dekkjagerðir ársins að þessu sinni. Alls mætir fyrirtækið með 2.200 regn- og þurrdekk til Spa og hefur verið mjög annasamt á athafnasvæði Bridgestone bakvið bílskúra liðanna þar sem starfsmenn fyrirtækisins hafa umfelgað frá morgni til kvölds.
Hið eina í keppnisbílnum sem á frekar rólegan dag af kappakstri að vera er bremsukerfið. Á því mæðir hlutfallslega lítið, minna en í öðrum brautum ársins. Aðeins þarf að hemla hart inn að þremur beygjum, La Source, Les Combes og strætóstoppinu.
Athugasemdir
Mjög fínn pistill!
Takk fyrir hann, og aðra pistla frá þér :-)
Einar Indriðason, 15.9.2007 kl. 15:39
Þakka þér, Einar, fyrir vinsamlega umsögn. Hefði eiginlega átt að hafa eina setningu með um hversu ægifagurt er hér um slóðir.
Já, og líka það að hér mun vera nokkrir hópar íslenskra áhugamanna um formúluna. Landinn lætur aldrei sitt eftir liggja og ég gæti vel ímyndað mér ef farið er út í hlutfallareikninga út frá höfðatölufjölda væru íslenskir áhorfendur einna fjölmennastir hér í Spa!
Hef hitt tvo hópa, hina einu og sönnu HS-bræður og vini hér á brautinni í fyrradag, og svo fjóra hressa náunga sem snæddu samtímis og ég á pizzustað í bænum Malmedy þar sem ég gisti mótshelgina. Vertinn minn er gamall lögreglustjóri sem stjórnaði lögreglusveitunum við brautina í 20 ár. Hann segist hafa verkjað í hálsinn undir lokin af því að reyna fylgja bílunum er þeir þutu framhjá honum!
Ágúst Ásgeirsson, 15.9.2007 kl. 16:35
Sæll Ágúst , langar að þakka þér fyrir frábæra athugasemd sem þú settir á bloggið hjá mér .Ég sniglast alltaf inná síðuna þína þegar þú kemur með nýjar færslur og það er alltaf frábært að lesa þín skrif
Kveðja Guðný
Guðný GG, 22.9.2007 kl. 16:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.