Í Spa er hugurinn í París

Hressir HS-bræður og vinir í SpaÞað hefur verið nokkuð undarlegt andrúmsloft að tjaldabaki hér í Spa-Francorchamps í allan dag, og er kannski ekki að undra. Það á sérstaklega við blaðamannamiðstöðina þar sem fátt annað er í huga um 300 blaðamanna en hvað gerist í njósnamálinu sem er enn til umfjöllunar í París þegar þetta er skrifað, næstum þremur tímum eftir að búist var við niðurstöðu í því.

Sín á milli skeggræða blaðamenn um málið og velta vöngum yfir því hvernig málið kann að fara. Hverjar afleiðingar þess og hverjar ekki. Þeir reyndu að fá Fernando Alonso til að taka þátt í umræðunni á fundi í miðstöðinni í dag, en tókst ekki. Hann sagðist bara með hugann hér, ekki í París. Hann brosti bara þegar blaðamenn spurðu hann ítrekað um málið og sagði helst ekki neitt. Sat sallarólegur undir orrahríðinni.

Ég hitti Alonso svo aftur rétt áðan bakvið miðstöðina, þar sem hann rölti frá bílskúr McLaren yfir í hið tröllvaxna mótorheimili liðsins við brautina. Ég heilsaði meistaranum og hann brosti og kinkaði kolli til baka. Afslappaður og brosandi gekk hann rólega af fundum með tæknimönnum McLaren. Rétt á undan og mun hraðskreiðari á göngunni var Lewis Hamilton, kominn frá París en hann var viðstaddur upphaf vitnaleiðslanna í dag.

Er ökuþórarnir fimm höfðu verið spurðir um eitt og annað varðandi íþróttina fékk bandarískur blaðamaður orðið. Óvænt spurði hann þá alla um stríðið í Írak. Þeir litu hver á annan og gerðu sig ekki líklega til svara. Bað hann þá Robert Kubica að byrja þar sem Pólland ætti hermenn í Írak. "Hér erum við í formúlu-1, ég ræði bara um hana hér," sagði Kubica og starfsbræður hans sögðust heldur ekki vilja tjá sig.

Athyglisvert var og er ökuþórarnir gengu í salinn að þeim fylgdu fulltrúar liðanna sem fylgjast með hvernig þeir svara og passa upp á að það sé innan hæfilegra marka og ekki gegn hagsmunum liða viðkomandi.

Þannig gaut Felipe Massa stundum til rauðklæddrar konu er hann var ítrekaður spurður út í demparann sem bilaði í bíl hans í upphafi keppni í Monza. Neitaði hann fimlega að fara út í smáatriði, hvernig bilunin hefði átt sér stað og hvers vegna demparinn hefði festst. Sagði þó að ekkert í brautinni, beygjunum eða bílnum að öðru leyti útskýrði bilunina. Samstuð við Hamilton hafi heldur ekki verið ástæðan. Demparinn hefði einfaldlega verið fastur. Hann bað strax um að fá að koma inn að bílskúr þar sem skipt var um dekk því hann hélt að þeim væri um kenna einkennilegar virkni afturenda bílsins. Það hafi ekki verið ástæðan og því hafi hann orðið að hætta keppni því ekki hefði verið hægt að aka bílnum í því ásigkomulagi sem hann var.

Þá sagði Massa það ekki í sínum verkahring að upplýsa um framleiðanda demparans, eins og hann var spurður um a.m.k. tvisvar, þetta væri liðsmál. Hann upplýsti þó að ekki var um nýja gerð af dempurum og hefðu alveg eins íhlutir verið notaðir í bílnum í undanförnum mótum.

Hann sagði að fræðilega hefði Räikkönen getað orðið fyrir sömu bilun en neitaði því að sú væri skýringin á óhappi hans á laugardagsmorgninum í Monza er hann flaug á öryggisvegg. Ferrari gaf þá skýringu að ekkert hefði bilað hjá Räikkönen, aðeins annað dekkið hafi numið við brautina er hann bremsaði því hann hefði hemlað á "þúfu" í brautinni. Þar af leiðandi hafi bíllinn snúist harkalega til hliðar og skollið á öryggisvegg.

Á meðfylgjandi mynd sem fylgir þessu bloggi eru hinir eldhressu HS-bræður sem blogga talsvert um formúluna á blog.is. Þeir ætla að fylgjast með æfingum, tímatökum og keppni hér í Spa. Voru  á leið í heimsókn á bílskúrasvæði keppnisliðanna er fundum okkar bar saman.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband