Mánudagur, 10. september 2007
Hverjum dettur í hug að McLarenbílarnir séu smíðaðir upp úr teikningum Ferraribílsins?
Hverjum dettur í hug, eftir að hafa horft á kappaksturinn í Monza í gær, að McLarenbílarnir séu smíðaðir upp úr teikningum Ferraribílsins? Þeir rétti upp hönd! Í ljósi njósnamáls sem skekið hefur formúluna undanfarið var þetta eflaust mikilvægasti sigur McLaren í sögu liðsins. Og sætari en ella þar sem það vann tvöfalt á heimavelli Ferrari og gjörsigraði ítalska liðið.
Athugasemdir
Að vissu leyti er það rétt hjá þér, bílarnir eru ekki eins. Hins vegar má nota þessar upplýsingar til að ná ákveðnu forskoti t.d. til samanburðar og þannig þróa eins konar þriðju útfærslu sem gefur óréttmætt forskot þar sem hluta vinnunnar kemur frá öðru keppnisliði. Hitt er svo annað mál hvort upplýsingarnar hafi verið notaðar. Æii... þetta er leiðindamál og tekur athygli manns frá sjálfri íþróttinni. Vona bara að þeir komist að einhverri niðurstöðu fljótlega svo það sé að baki sem fyrst.
Hafsteinn E. Jakobsson (IP-tala skráð) 11.9.2007 kl. 19:48
gaman!!! nú eru McLaren menn að hugsa um að áfría ekki!!!
með hagsmuni íþróttarinnar í huga????
Ef ég væri saklaus af svona ákæru og væri sektaður um 20-30% af launum mínum myndi ég nú sennilega áfría
mér finnst umtalið um þetta vera allt í þá átt að kæra McLaren um njósni og/eða svindl sé eins vitlaust og að kæra páfan fyrir nauðgun
En ég skil heldur ekki hvernig er hægt að dæma Mclaren en leyfa samt ökumönunum að aka McLaren!?!?!?!?!
merkilegt l´ka það sem bernei ecelstone hefur sagt aðí run hefðu þeir átt að vera dæmdir úr keppni með öllu næstu 2 ár en hann og fleiri hefðu barist fyrir því að sekta þá frekar um háar upphæðir
hefði þá spyker annaðhvort verið dæmt úr keppni eða látið fara á hausinn?
var þá ástæðan fyrir því að dæma McLaren ekki úr keppni viðsiftaleg
allavegana er þetta FIA dómskerfi bara geðþóttaákvarðanir virðist vera
en frábærir pistlar hjá þér
tolli (IP-tala skráð) 15.9.2007 kl. 22:45
Bæta við athugasemd
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.
Franska sjónvarpsstöðin TF1 var með fróðlega úttekt fyrir hálfum mánuði á bílum Ferrari og McLaren vegna njósnaumræðunnar. Með grafískum teikningum báru þeir saman það sem skiptir svo miklu máli í bílum; fjöðrunarbúnað, fram og afturvængi, vindskeiðar ýmiss konar og byggingu bílanna.
Niðurstaðan var sú að þessir hlutir voru gjörólíkir að hönnun og virkan. Sem sagt að á silfurörvum McLaren væri ekkert fengið úr Ferraribílunum.
Annars er sama hvernig þetta mál fer, ég held það sé búið að stórskaða formúluna. Því miður, eins og vertíðin hefur annars verið jákvæð.
Vonandi fáum við unnendur íþróttarinnar að njóta hennar við kappakstursbrautarinnar eða á sjónvarpsskjánum. Megi úrslit ráðast á brautunum en ekki við harðviðarborð í fundarsölum í París.