Þriðjudagur, 7. ágúst 2007
McLaren gæti komið í veg fyrir að Alonso keppi 2008
Allt getur gerst í formúlunni. Samt á ég bágt með að trúa því að Fernando Alonso sé á förum frá McLaren. Eftir aðeins eina vertíð af þremur sem hann er samningsbundinn liðinu. Ég ætla ekki að trúa því fyrr en það gerist.
Renault vildi fegið fá hann aftur og BMW liðið myndi ekki slá hendinni á móti stæði því hann til boða.
Vitað er að Alonso hefur ekki liðið alltof vel hjá McLaren og hann hefur lengi grunað það um að hygla Lewis Hamilton. Nýverið hefur hann reyndar sagt allt í stakasta lagi og sér líða vel hjá liðinu. Eftir uppákomur innan liðsins í Búdapest um helgina virðist ekki ýkja mikil eining þar á bæ.
Reyndar kann ein ástæða atburðanna vera ákafar tilraunir liðsstjórans Ron Dennis til að gera Alonso ánægðan og eyða grunsemdum hans um forgang Hamiltons. Honum mun áfram að hafa hann í sínum röðum enda er Alonso að verulegu leyti þakkað að McLarenbíllinn er sá besti í formúlunni í ár.
Dennis vísar á bug fregnum þess efnis að óvissa ríki um framtíð Alonso og hann sé e.t.v. á útleið. Ekkert annað sé á dagskrá af hálfu McLaren en standa við samninga beggja ökuþóra.
Það er óhjákvæmilegt að um svona sé kjaftað, sagði Dennis í Búdapest. Ökuþórar okkar eru samningsbundnir nokkur ár fram í tímann. Við munum uppfylla þá af okkar hálfu og vonum að ökuþórarnir standi við sitt en um það snúast samningar."
Þarf það endilega að þýða að Alonso keppi fyrir McLaren. Auðvitað er erfitt - og sennilega útilokað - að halda ökuþór sem misst hefur traust á liði sínu og vill fara. McLaren missti ekki aðeins afburða ökumann heldur sæi það væntanlega eftir honum til harðs keppinautar.
Liðið á þó alltaf þann kost að koma í veg fyrir að Alonso keppi yfirleitt á næsta ári vilji hann ekki aka silfurörvum McLaren. Með því að halda stíft í samninginn sem hann skrifaði upp á.
Athugasemdir
Mikið vildi ég óska eftir því að Alonso myndi fara aftur til Renault. Það er lið til að halda með. Lið með sían eigin mótora og franskt hugvit. Lítið lið að gera góða hluti. Ég held að Dennis hafi skotið sig í fótinn með því að tak Hamilton inn í liðið með Alonso. Hann hefði frekar átt að láta Alonso í friði. Reyndar var það alltaf draumur hjá Alonso að keyra hjá McLaren en líklega ekki á þessum forsendum. Betur hefði verið hjá liðinu að taka hinn Spánverjann með Alonso. Dennis er bara gráðugur eftir slappt gengi undanfarin ár. Ég held að Dennis geti stoppað Alonso með því að keyra 2008 einfaldlega geri ég ráð fyrir því að umboðsmenna passi sig á því að hafa klásúlu í samningnum svo þeir lendi ekki í sama og Button lenti í sem má eiginlega eyðilagt ferilinn hjá honum. En við verðum bara bíða og sjá. Alonso er klárlega besti ökumaður í formúlunni núna eftir að Schumi hætti.
Óli Sveinbjörnss, 9.8.2007 kl. 00:21
Átti að vera "Ég held að Dennis geti ekki stoppað Alonso með því að keyra 2008"
Óli Sveinbjörnss, 9.8.2007 kl. 00:24
Ég efast um að nokkur hafi gert sér grein fyrir því að Hamilton gæti náð svona miklum árangri í ár. Þess vegna get ég ekki sakað Dennis um græðgi að fá hann í liðið.
Þá er ég ekki sammála því að Alonso sé besti ökumaðurinn eftir að Schumacher hætti, ég gæti alveg eins sagt að Hamilton sé betri ökumaður. Hann virðist allavega standast álagið betur þegar á reynir og óumdeilanlega er hann í forystu í stigakeppninni.
Steinn Hafliðason, 24.8.2007 kl. 11:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.