Þriðjudagur, 7. ágúst 2007
Kom dómurunum erjurnar hjá McLaren við?
Að nokkru leyti er hægt að taka undir með þeim sem gagnrýna refsingu Fernando Alonso í tímatökunum í Búdapest. Spurningin er hvort yfirvaldið eigi að skipta sér af innanbúðarerjum hjá keppnisliðum formúlunnar?
Var uppákoman við bílskúra McLaren í tímatökunum í Búdapest ekki barasta innanbúðarátök sem liðsstjórinn Ron Dennis átti að taka á, en ekki Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA)? Voru afskipti þess ekki óþörf? Gengu eftirlitsdómarar þess ekki of langt?
Ég fæ ekki betur séð af lestri skýrslu eftirlitsmanna FIA en þeir hafi gefið sér þá forsendu að Fernando Alonso hafi vísvitandi hindrað Lewis Hamilton með þeim afleiðingum að Hamilton gat ekki klárað síðustu tímatilraun sína.
Og segja að atburðirnir við bílskúr McLaren hafi ekki verið í þágu hagsmuna íþróttarinnar. Hvernig þá, spyr ég? Hvaða hagsmuna? Þeir þurfa að útskýra málið betur, finnst mér.
Í öllum ágreiningsefnum er hættulegt fordæmi að búa sér til forsendur. Á grundvelli þeirra draga menn svo ályktanir sem kunna vera rangar. Í besta falli handahófskenndar. Dennis gaf sínar skýringar á atvikinu og Alonso en dómararnir sögðust ekki trúa þeim.
Því spyr ég, hvað annað höfðu þeir til að fara eftir en skýringar Ron Dennis, Alonso og Hamiltons? Var það e.t.v. sá síðastnefndi sem hratt skoðun eftirlitsmannanna úr vör? Hann sást með einum þeirra að tjaldabaki í Búdapest rétt eftir tímatökuna og staðfestir það sjálfur en segir þá aðeins hafa átt stutt almennt spjall.
Getur ekki allt eins verið og þess þyrfti að spyrja Alonso að ætlun McLaren með biðinni hafi verið sú að þeir hafi verið að bíða eftir Kimi Räikkönen hjá Ferrari svo þeir gætu flækst fyrir honum í lokatilraun hans? Alla vega kom Alonso út í brautina í sína lokatilraun rétt fyrir framan Räikkönen og það ku há mönnum mjög að hafa bíl rétt á undan ef hratt skal aka.
Athugasemdir
Ég lýt á þetta sem tilraun til að hagræða úrslitum rétt eins og Ferrari menn voru svo gagnrýndir fyrir á sínum tíma. Hvort það gerist í tímatökum eða keppni, á brautinni eða í bílskúrnum finnst mér ekki skipta máli.
Steinn Hafliðason, 24.8.2007 kl. 11:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.