Að keyra í Sepang er eins og kynlíf í gufubaði!

Þá er formúlufjör framundan aðra helgina í röð. Við áhugamennirnir búum við ólíkt annað en ökuþórarnir sem þurfa að þeysast áfram og halda athyglinni óskertri á annan klukkutíma við gríðarlega erfiðar aðstæður.

David Coulthard segir að það að keppa í Sepang sé eins og að þræla í gufubaði, slíkur sé hitinn.  Hann segist ekki vita um nokkurn sem vilji stunda æfingar í gufubaði, nema þá kynlíf - eins og hann kemst að orði.

Þá hafið þið það - þeir sem það þekkja vita þá hvernig ökuþórarnir hafa það í kappakstrinum í Sepang!!!

Já, þeir tala léttúðlega kapparnir þegar sá gállinn er á þeim. Mér finnst ómögulegt að ráða nokkuð í framhaldið af æfingunum í morgun. Þetta er reyndar ekkert svo ólíkt því sem var á föstudeginum í Barein.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband