Laugardagur, 12. maí 2007
Kjósið eins og mér þóknast ellegar fáið þið ekki kappakstur!
Bernie Ecclestone, sem ræður öllu því í formúlu-1 sem hann vill ráða, hefur verið í miklu uppáhaldi hjá mér um dagana. Þrátt fyrir þá aðdáun vík ég mér ekki undan því að gagnrýna hann ef svo ber undir. Margt gott hefur hann gert. Og aðra hluti umdeilda, en þar hlýtur að ná hámarki hans afskipti af spænskri pólitík!
Ecclestone samdi í vikunni um mótshald í Valensíu á Spáni til sjö ára frá og með næsta ári. Tilkynnti þó með pomp og prakt að samkomulagið væri skilyrt; héraðshöfðingi appelsínuhéraðsins Valensíu skyldi ná endurkjöri í kosningum eftir hálfan mánuð. Hann hefði jú lofað að borga Ecclestone 26 milljónir evra á ári fyrir mótið, um 2300 milljónir króna. Því yrði ekki skrifað undir samninginn fyrr en eftir kosningar og þá því aðeins að úrslitin í kosningunum yrðu "rétt".
Það er skiljanlegt að þetta skuli hafa leitt til pólískrar ólgu á Spáni. Og skiljanlegt að því sé haldið fram að hér sé verið að reyna að kúga kjósendur. Og vægast sagt undarleg hegðan af hálfu Bernie. Af hverju beið hann ekki með málið þar til eftir kosningar og lét það þá niður falla ef úrslitin yrðu ekki eins og honum þóknaðist? Og af hverju skrifaði hann ekki strax undir því kjörnir fulltrúar hljóta hafa fullt umboð til þess þótt kosningar séu í nánd? Ef úrslitin yrðu honum ekki þóknanleg gæti hann látið á málið reyna, og vildu nýir valdhafar ekki virða samkomulagið þá yrði samningum rift og málið félli niður. Heimamenn sætu þá líklega uppi með skaðabætur. Eitt mót til eða frá á næsta ári skipti ekki máli og nógir eru þeir sem vilja fá að halda kappakstur í formúlu-1 þótt fyrirvarinn sé e.t.v. of lítill til að fylla skarð Valensíu þegar á næsta ári.
Allavega, Bernie Ecclestone hefur komið á óvart eina ferðina enn. Ætli kallinn hafi nokkuð verið að blanda sér í spænska pólitík visvítandi? Ég hallast að því að svo hafi ekki verið. Hann hefur einfaldlega talað óvarfærnislega og ekki hugsað út í afleiðingarnar.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 08:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 10. maí 2007
Uppgjöf Fisichella ótímabær
Rómanskt ráðleysi var það fyrsta sem mér datt í hug er ég sá að Giancarlo Fisichella hjá Renault væri búinn að gefast upp eftir aðeins þrjú mót. Maðurinn sem fyrir tveimur mánuðum ætlaði að verða heimsmeistari ökuþóra í ár. Og enn eftir 14 mót og keppninni lýkur ekki fyrr en eftir rúma fimm mánuði, seint í október.
Ég botna bókstaflega ekkert í því að jafn reyndur ökuþór skuli gripinn slíku vonleysi löngu fyrir tímann. Vissulega er Renaultliðið ekki svipur hjá sjón miðað við undanfarin tvö ár er það vann bæði titil ökuþóra og bílsmiða.
Keppnin í formúlu-1 er eins og langhlaup, það eru ekki endilega þeir sem eru fyrstir eftir tvo kílómetra sem verða fyrstir í mark eftir 10 km. Þess vegna þýðir ekkert annað en berjast vertíðina út í gegn. Til síðasta blóðdropa. Þetta er ekki spurning um raunsæi, heldur ákveðni og vilja, jafnvel svolitla sálfræði því væl í ökuþór getur smitað frá sér og dregið kjark úr öðrum liðsmönnum. Til hvers eiga þeir að fórna sér nótt sem nýtan dag ef ökuþórinn er búinn að gefast upp?
Þetta segir mér að Fisichella eigi ekki að fá fleiri tækifæri hjá Renault en út þetta ár. Liðið þarf aftur að næla í harðnagla og baráttumenn. Keppnismenn á borð við Fernando Alonso.
Það er hins vegar rétt hjá Fisichella að úr því sem komið er - og verði ekki verulegar breytingar til hins betra í næstu tveimur til þremur mótum - ætti Renault að einbeita sér fremur að hönnun og þróun keppnisbíl næsta árs í stað þess að eyða miklum kröftum í að betrumbæta núverandi bíl, sem hann segir andvana fæddan.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 08:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 29. apríl 2007
Metfjöldi kvenna í IndyCar
Blað verður brotið í dag í sögu bandaríska IndyCar-kappakstursins því meðal 21 keppenda í móti sem fram fer í Kansas verða þrjár konur, Danica Patrick, Sarah Fisher og Milka Duno. Aldrei áður hafa svo margar konur tekið þátt í bandarískum kappakstri á bílum með opnum hjólum eins og það er kallað.
Sarah Fisher hefur keppt í IndyCar í nokkur ár en með hléum þó, aðallega vegna skorts á styrktarfé. Danica Patrick mætti þar til leiks í hitteðfyrra og sló strax í gegn. Vann til að mynda ráspól í Kansas 2005. Þær Fisher og Patrick eru bandarískar en Milka Duno er frá Venezúela og er að keppa í mótaröðinni í fyrsta sinn.
Af þeirri ástæðu kemur ekki á óvart að Duno varð í 21. og síðasta sæti í tímatökunum. Patrick var óánægð með 10. sætið að þessu sinni. Fisher hefur keppni í 17. sæti Meðalhraði þeirra þriggja á hringnum var frá 336,0 til 341 km en sá sem ráspólinn hlaut ók á 344,6 km meðalhraða.
Þótt almennt sé fjallað um kappaksturinn sem tímamót og jákvætt skref í þá veru að þátt kvenna í bílaíþróttum þá finnst konunum þremur sem hlut eiga að máli atburðurinn ekkert óvenjulegur.
"Þetta er hluti af menningunni, atburður eins og hver annar þar sem þjóðerni þátttakenda getur verið mismunandi, hlutfall karla og kvenna misjafnt eða litarháttur ójafn. Konur eru í auknu mæli að láta til sín taka í "karlastörfum". Þær eru forstjórar, þær keppa við karla sem er tímanna tákn," sagði Danica Patrick.
Patrick og Fisher eru keppendur í IndyCar-mótunum í fullu starfi í ár en nýr kapituli var skrifaður á fimmtudag er Duno stóðst nýliðapróf í Kansas-brautinni. Konurnar þrjár líta ekki á mót helgarinnar sem nein vatnaskil.
"Það er ekki þetta sem hvetur mig áfram til að keppa. Og þátttaka mín varð ekki til að hinar tóku þátt. En þetta er skemmtileg þróun og það er gaman að vera hluti af henni," segir Fisher sem hóf fyrst keppni í IndyCar fyrir nokkrum árum.
Patrick tekur í svipaðan streng. "Þetta breytir engu fyrir mig og það breytir mér á engan hátt, hefur ekki áhrif á hugarfarið. Ég pæli eiginlega ekkert í þessu. Ég vona að það hljómi ekki asnalega, en mér er eiginlega alveg sama. Þær eru bara ökuþórar í mínum huga "
Fleiri myndir af konunum þremur frá Kansas er að finna í myndasyrpu á formúluvef mbl.is
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 16:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 25. apríl 2007
Kaupir kappakstursbrautir fyrir stóru sneiðina sem hann tók sjálfum sér
Bernie Ecclestone, sem ég hef löngum kosið að kalla alráð formúlunnar, er ekki á flæðiskeri staddur. Kaupir kappakstursbrautir eins og ekkert sé til að ávaxta pundið sitt. Allt í lagi með það og bara hægt að samgleðjast honum. Nema hvað til fjárfestingarinnar notar hann líklega fjármuni sem hann hefur tekið út úr formúlunni í eigin vasa í stað þess að gefa liðunum meira í aðra hönd af gróðanum af sölu sjónvarpsréttinda og alls kyns sölustarfsemi tengdri íþróttinni.
Nú mega menn ekki misskilja mig og halda að ég líti á karlinn sem arðræningja. Alls ekki og liðin geta þakkað honum fyrir að gera formúluna að því viðskiptaveldi sem hún hefur orðið undir hans stjórn; fyrir áhuga hans, hugmyndaauðgi og útsjónarsemi.
Auðvitað eiga menn að selja hlutina sem dýrast til að hámarka hagnaðinn, ekki standa í einhverjum 25 aura bissness. [Þetta er þó eitthvað sem mér hefur aldrei hugkvæmst að beita í mína eigin þágu!].
En á sama tíma og peningastaflarnir hafa hrúgast upp í fjárhvelfingum Ecclestone [maður sér fyrir sér teiknisögur af Jóakim frænda úr Andrésarblöðunum] hefur hvert keppnisliðið á fætur öðru hrökklast úr íþróttinni vegna fjárskorts. Maður sér á eftir frumkvöðlaliðum á borð við Arrows, Prost, Minardi, Jordan, Stewart og Sauber sem öll voru með í keppni í byrjun aldarinnar.
Fjögur af þessum sex liðum eru raunar áfram við lýði en undir merkjum stórra viðskiptasamsteypa sem eru ekki með í formúlunni á "ungmennafélagsandanum" einum, heldur eru þau fyrst og fremst markaðstæki núverandi eigenda sinna; notuð til að auglýsa m.a. orkudrykki!
Mér finnst sem sagt, að kaup Ecclestone á kappakstursbrautinni í Istanbúl fyrir um 12 milljarða króna og Paul Ricard-brautinni nálægt suðurströnd Frakklands dæmi um að hann hafi haldið einum of stórum skerf af formúlukökunni hjá sér. Fyrir utan þetta á hann miklar og dýrar fasteignir í miðborg London og víðar.
Íþróttir | Breytt 29.4.2007 kl. 13:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Föstudagur, 20. apríl 2007
Líkir Viktor Þór eftir Lewis Hamilton?
Ensk-íslenski ökuþórinn Viktor Þór Jensen stóð sig með eindæmum vel í frumraun sinni í formúlu-3 í Oulton Park-brautinni í Cheshire í Englandi um páskana. Hann verður aftur á ferðinni um þessa helgi í hinni frægu kappakstursbraut Donington Park í Leicesterskíri. Ég mun fylgjast spenntur með hvernig honum vegnar þar.
Háð eru tvö mót á hverri keppnishelgi, ekið í hálftíma í hvoru. Bæði fara fram á sunnudag en tvennar tímatökur, einnig 30 mínútur hvor, fara fram á morgun, laugardag. Keppt er í fjölda annarra bílaflokka á hverju móti, t.d. í fara 11 kappakstrar fram í Donington um helgina.
Í Oulton Park komst Viktor Þór á verðlaunapall í báðum. Það er athyglisverður árangur sem komið getur honum vel því formúla-3 er fyrir marga stökkpallur inn í atvinnumennsku og jafnvel inn í formúlu-1. Spurning er hvort hann fari eins að og Lewis Hamilton í formúlu-1 og komist á pall í þriðja mótinu í röð? Ekki slæmt að vera jafnað við þann mann sem hefur nú þegar breytt ásjónu formúlu-1!
Viktor Þór varð í fjórða og fimmta sæti í tímatökum fyrstu mótanna tveggja. Hann ók til þriðja sætis í fyrri kappakstrinum en bætti um betur í þeim seinni og varð annar í mark. Það er gott að klára fyrsta mótið, það var fiðringur í maganum en hann hvarf um leið og ræst var. Ég er afar ánægður með byrjun vertíðarinnar. Og það er aðeins hægt að komast einu sæti ofar í mínum flokki, eftir að hafa orðið í þriðja sæti og síðan öðru, sagði hann eftir keppnina. Oulton Park hafði ekki verið honum hagstæð braut undanfarin ár en nú kvað hann í kútinn þann ára sem fylgt hafði honum þar.
Breska mótaröðin í formúlu-3 á sér langa hefð og keppnin þar einkar hörð. Í ár eru bílarnir 33 og ökumenn frá 20 löndum. Áhugi fjölmiðla á mótaröðinni er mikill og munu Channel 4 og gervihnattastöðin Motors TV, sem næst á Íslandi, sýna frá öllum mótunum 22 í ár.
Í nafni Íslands og undir íslenskum fána keppir Viktor Þór a Honda-knúnum Dallara F304-bíl fyrir ADR-liðið [Alan Docking Racing]. Fyrir sama lið kepptu tveir núverandi ökuþórar í formúlu-1, Mark Webber árið 1997 og Scott Speed 2003. Speed komst aldrei á pall en Webber vann mótssigra og varð fjórði í stigakeppni ökuþóra.
Aðrir núverandi ökuþórar í formúlu-1 sem skólast hafa í bresku formúlu-3 mótunum eru Lewis Hamilton, 2003, Heikki Kovalainen, 2002, Jenson Button, 1999, Christijan Albers, 1999, Giancarlo Fisichella, 1993, David Coulthard, 1991, Alex Wurz, 1995, Anthony Davidson, 2001, Takuma Sato, 2000 og 2001 og Rubens Barrichello, 1991. Tveir þeirra unnu stigakeppni ökuþóra, Sato og Barrichello.
Allir nema einn voru eldri en Viktor Þór er þeir kepptu í þessum flokki. Einn var jafngamall, Barrichello.
Viktor Þór, sem er 19 ára, er einn þeirra yngstu sem keppir í ár. Meðal mótherja eru ökuþórar sem keppa fyrir lönd sín í A1-mótunum, svo sem Frankie Cheng frá Kína og Sergio Perez frá Mexíkó. Cheng hefur nú forystu í stigakeppninni í flokki Viktors Þórs, með 42 gegn 27 stigum ensk-íslenska ökuþórsins.
Formúluvefur mbl.is mun að sjálfsögðu flytja fréttir af frammistöðu Viktors Þórs í Donington en forvitnast má um bresku formúlu-3 og árangur hins unga ökumanns eftir nokkrum leiðum. Í fyrsta lagi á heimasíðu Viktors Þórs, í öðru lagi á heimasíðu hinnar bresku formúlu-3 og í þriðja lagi á heimasíðu Donington-brautarinnar.
Á meðfylgjandi myndbandi má sjá Viktor Þór í harðri keppni í móti í Palmer Audi-formúlunni sem fram fór í franska sinnepsbænum Dijon í fyrra. Myndbandið má nálgast í mun meiri upplausn á heimasíðu Viktors Þórs.
Formúla 1 | Breytt 29.4.2007 kl. 15:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 16. apríl 2007
Fín byrjun í formúlunni
Þrjú mót, þrír mismunandi sigurvegarar og þrír jafnir í keppninni um heimsmeistaratititl ökuþóra. Formúluvertíðin byrjar einstaklega vel! Getur það verið betra? Er hægt að biðja um meira? Er brottför Michaels Schumacher blessun?
Síðustu spurningunni svara ég með annarri; man einhver eftir Scuhmacher? Jú, það sakna hans örugglega einhverjir sem fylgt hafa honum gegnum súrt og sætt undanfarin ár. En hann er farinn, það er lífið, og verður hvorki kennt um né þakkað að keppnin í formúlunni hefur eitthvað yfir sér sem hana hefur vantað um árabil.
Vissulega hefur mótssigur í mótunum þremur unnist með yfirburðum en keppnin um öll sæti þar á eftir verið mikil. Sviptingar hafa verið miklar og hefur það skilað sér nokkuð vel á sjónvarpsskjána. Eftir mótið í Barein gengur ekki lengur að segja að erfitt sé að taka fram úr! Séu ökuþórar nógu hungraðir, og nægir þá aðeins að nefna Heidfeld, Rosberg, Trulli, að ekki sé talað um öldunginn Coulthard, þá sést að vogun vinnur.
Ferskleikinn sem Lewis Hamilton hefur komið með sér er ánægjulegur og langt verður að leita til að finna fordæmi álíka rimmu og þeir Felipe Massa háðu í Sepang. Minnti helst á glímur Alain Prost og Ayrton Senna forðum. Þar við bætist að liðsskipti Kimi Räikkönen og Felipe Massa hafa og skapað nýja stemmningu.
Þetta og ýmislegt fleira gerir formúluna eitthvað öðru vísi og jafnvel ánægjulegri með að fylgjast í ár.
Annars finnst mér miður að sjá hversu fáir mæta á vettvang í Barein til að fylgjast með keppninni. Reyndar var uppselt á keppnina sjálfa en stúkur og stæði vallarins taka aðeins 34.000 manns. Er það boðlegt? Hvað segði Bernie Ecclestone ef fleiri kæmust ekki inn í Silverstone? Stúkurnar virtust æði tómlegar aðra daga en mótshaldarar segja samt, að með æfingum á föstudag hafi 22.000 manns fylgst, 6.000 fleiri en í fyrra, og á laugardag 26.000. Samtals dagana þrjá 82.000 manns sem er færra en á einum degi í t.a.m. Silverstone; gömlu, lúnu brautinni þar sem stemmning er þó alltaf frábær á vallarsvæðinu.
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 09:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 25. mars 2007
Formúlan og jafnréttið
Samkvæmt nýjum samningi um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. ber RÚV að gæta jafnræðis kynjanna í umfjöllun um íþróttir og íþróttaviðburði. Ætli þar sé fundin skýringin á því hvers vegna RÚV verður af formúlunni?
Af hálfu fyrirtækisins hafa engar skýringar veri gefnar á því hvers vegna Sjónvarpið verður af formúlunni sem það hefur sýnt frá af myndarskap í brátt 11 keppnistíðir. Það hlýtur að hafa boðið í sýningarréttinn sem Sýn hefur hreppt næstu árin. Ef ekki hefði RÚV örugglega sagt frá því.
En bæði útvarpi, sjónvarpi og blöðum hefur verið legið á hálsi, og það með gildum rökum, að þessir fjölmiðlar hafi ekki gætt tilhlýðilegs jafnvægis milli kynja og/eða einstakra greina í umfjöllun um íþróttir.
Nú hefur kraftmikill menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sem gerði garðinn frægan með ÍR snemma á níunda áratugnum, gert það sem í hennar valdi stendur til að ráða bót á þessu við kaup á þjónustu af Ríkisútvarpinu ohf.
Ef það er tilviljun að það beri upp á þessi tímamót að RÚV missir formúluna þá er það undarleg tilviljun. Þetta eru tímamót sem jafnréttissinnar munu eflaust fagna því til efs er, að nokkur önnur íþrótt sé jafnmikið karlasport. Karlar eru í öllum aðal- og aukahlutverkum. Á mótsstað rekst maður að tjaldabaki á stöku konu við bílskúra og á athafnasvæðum liðanna. Hlutverk þeirra er nær eingöngu bundið við að dreifa til blaðamanna fjölrituðum upplýsingum og kommentum frá ökuþórum og liðsstjórum um æfingar, tímatökur og keppni.
Þótt þær séu starfi sínu örugglega vel vaxnar og eldklárar þá hefur mér oftast fundið sem þessar konur væru meira upp á punt hjá liðunum. Þær falla yfirleitt að einhverri formúlu um lengd, breidd og hæð og eru helst af ljósara taginu. Þar sér maður t.a.m. aldrei feitar konur eða ljótar, enn síður svartar eða gular á hörund svo eitthvað sé nefnt.
Þrátt fyrir að karlmennskan fái notið sín í æsar í formúlunni sýna allar rannsóknir og mælingar, að áhuginn á henni er ekki bundinn við karla. Hann er ekki síðri hjá konum, það er staðreynd. Og um margt er hún fjölskyldusport því börnin hafa ekki síður gaman af.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 22. mars 2007
Vonandi þróast keppnin og verður fljótt meira spennandi
Jæja, þá er ballið byrjað á ný. Auðvitað hafði maður beðið spenntur mánuðum saman og búinn að telja sér trú um, eins og venjulega, að keppnin yrði fjörleg. Ökuþórarnir myndu bjóða upp á rokk og tjútt, svo fór þó ekki og lítið fannst mér fjörið á dansgólfinu. Það sem eftir situr í huganum þremur dögum seinna eru minningar um yfirburði Kimi Räikkönen og ljómandi góð byrjun Lewis Hamilton.
Hélt satt að segja að bílarnir yrðu miklu jafnari og keppnin því tvísýnni. Niðurstaðan sú að aðeins hlutverkaskipti hafa átt sér stað frá í fyrra og bilið áfram stórt milli einstakra liða. Framfarir hjá McLaren, BMW og Super Aguri og nokkrar hjá Williams. Toyota, Spyker, Red Bull og Toro Rosso á sínum stað um og aftan við miðju, en gríðarleg afturför hjá Honda og þó nokkur hjá Renault.
Á toppnum er ljóst, að Ferrari hefur tekist að halda þræðinum áfram þar sem frá var horfið í fyrra en Renault dalað. Þessi tvö lið voru einráð í fyrra. Mesta breytingin milli þeirra er að Ferrari er áfram með tvo góða ökuþóra, toppmaður er farinn frá Renault sem í staðinn er með nýliða sem klikkaði eins mikið og hægt var. Mér hefur aldrei þótt Fisichella nema miðlungs góður en hann fær prik fyrir að halda Massa fyrir aftan sig á síðustu hringjunum. Þar sýndi hann styrkleika á lakari bíl.
Renault munar um að hafa misst Alonso en að sama skapi hefur McLaren stórgrætt. Hann er enn banhungraður og hvötin mikil að gera góða hluti með nýju liði. Räikkönen var búinn að missa áhugann eftir þrjú til fjögur mót í fyrra en nú ætti hann að verða bardagaglaður í ár á góðum bíl og sigur í fyrsta móti gefur honum mikinn byr í seglin.
Stuðningsmenn Ferrari eru ugglaust með hýrri há og unnendur McLaren bjartsýnni en í fyrra. Þar sem ég held hvorki með liði og tæpast með ökuþór þá varð ég fyrir nokkrum vonbrigðum með mótið vegna þeirrar litlu keppni sem þar átti sér stað í betri helming bílahópsins. Jákvæðu hlutirnir eru framfarir McLaren og Super Aguri og frábær akstur Hamiltons.
Mér hefur fundist mikið spunnið í Kovalainen frá í GP2-mótunum og miklar vonir hafa verið bundnar við hann. Kannski óraunhæfilega miklar því honum hefur verið ætlað að veifa þeim gunnfána sem Alonso flaggaði svo glæsilega. En þessi geðugi piltur, sem ég hef hitt og kynnst lítillega, brást algjörlega að þessu sinni. Mikilvægt er fyrir hann að gera mun betur strax í næsta móti - og það vona ég - svo hann missi ekki kjarkinn sem til þarf í toppslaginn.
Nú er bara að vona, að fyrsta mótið segi ekki alla söguna um stöðu formúlunnar; að keppnin eigi eftir að jafnast mun meira. Maður verður að hafa biðlund og gefa því þrjú til fjögur mót eða svo. Enda munu liðin breyta bílum sínum nokkuð eftir tvö til fjögur mót og búa þá nýjungum, sem orðið hafa til vegna bílprófana í aðdraganda keppnistímabilsins.
Maður vonar bara að sviptingar verði meiri og dansinn fjörlegri þegar kemur að mótunum í Evrópu.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 10:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 28. nóvember 2006
Batnandi manni best að lifa
Það er athyglisvert að lesa um iðrun Michaels Schumacher vegna atviksins í Jerez 1997 er hann freistaði þess að verða heimsmeistari ökuþóra í formúlunni með bíræfnum bellibrögðum. Hingað til hefur hann þóst sakleysið uppmálað og sagt að um akstursóhapp hafi verið að ræða.
Batnandi mönnum er best að lifa, var það fyrsta sem mér datt í hug við lesturinn. Og bíð nú eftir að meistarinn mikli játi annað samskonar atvik fjórum árum fyrr í Adeleide í Ástralíu. Frá því slapp hann reyndar án refsingar og hampaði titlinum í það skiptið, í fyrsta sinn á ferlinum.
Fæstum þótti það gerlegt á sínum tíma að ökuþórar reyndu að keyra náungann út úr brautinni með þeim hætti sem átti sér stað í Adeleide. Meðal annars vegna þess að tveir ökuþórar höfðu látið lífið á einni mótshelgi hálfu ári áður og formúlan hálflömuð ennþá vegna þess.
Í ljósi atburða síðar meir hvarflar vart annað að málsmetandi mönnum en að atvikið í Adeleide hafi verið eitthvað annað en óviljaverk. Með sama hætti og hann hefur alltaf - þar til nú - neitað sök varðandi Jerez hefur hann aldrei ljáð máls á öðru en atvikið í lokamótinu 1994 hafi verið óviðráðandi óhapp.
Schumacher er óumdeilanlega afburða ökuþór og einstakur afreksmaður. Og það alveg burtséð frá tveimur umræddum atvikum. Og ef eitthvað er finnst mér hann maður að meiri og jafnvel aukast í áliti með játningu sinni nú. Sá sem ekki iðrast ósæmilegar gjörðir er ekki við bjargandi. Schumacher fellur ekki í þann flokk, alla vega ekki lengur, að mínu mati.
Eftir að hafa marglesið og skoðað upptökur af atvikinu í Adeleide á árum áður og líka eftir bellilbrögð hans í Mónakó síðastliðið vor fer ég ekkert ofan af þeirri skoðun að hann hafi unnið einvígið um titilinn 1994 við Damon Hill með brögðum. Titilslagur þeirra það ár var harður og skemmtilegur, sama hvor þeir vann. Ekkert síðri rimma en keppni Alonso og Schumacher í ár - og jafnvel meira spennandi.
Schumacher segist nú engu sjá jafn mikið eftir og er hann freistaði þess að keyra Jacques Villeneuve hjá Williams út úr brautinni í Evrópukappakstrinum 1997 í Jerez á Spáni. Atvikið átti sér stað frammi fyrir urmul sjónvarpsmyndavéla og sást greinilega frá öllum vinklum hvernig hann reif í stýri sitt og lagði inn í bíl Villeneuve rétt fyrir beygju nokkra. Freistaði hann þess að keyra báða úr leik. Við það hefði hann hlotið heimsmeistaratitilinn þriðja sinni.
Tilraunin mistókst hins vegar og ólíkt því sem var í Adeleide voru myndavélarnar of margar sem sýndu og sönnuðu illan ásetning meistarans. Framferðið þótti það bíræfin að Schumacher var sviptur öðru sætinu í keppninni um heimsmeistaratitilinn og árangur hans á árinu öllu strikaður út. Fróðlegt verður að sjá hvort frekari játningar eigi sér stað á næstunni.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 08:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 6. október 2006
Jötnar slást í Suzuka
Fyrir þá sem vilja spennu og dramatík í keppni um íþróttasigur getur staðan vart verið betri í keppninni um heimsmeistaratitil ökuþóra í formúlu-1. Þegar aðeins tvö mót eru eftir af 18 eru Michael Schumacher hjá Ferrari og Fernando Alonso hjá Renault jafnir að stigum. Búast má við jötnaslag þeirra í millum í Suzuka um helgina.
Schumacher gæti var látið sig dreyma um betri úrslit í Suzuka en að hið sama gerðist og í ítalska kappakstrinum í Monza fyrir mánuði. Þar fór hann með sigur af hólmi en Alonso féll úr leik vegna mótorbilunar sem var nýmæli í annars endingartraustum Renaultinum.
Draumaúrslit Schumacher væru jafnframt martröð Alonso því slík endurtekning þýddi að Schumacher yrði í raun orðinn heimsmeistari áttunda sinni á sunnudagskvöld. Tæki aftur til sín titilinn sem Alonso vann í fyrra yngstur ökuþóra sögunnar. Með 10 stiga forystu fyrir lokamótið gæti hann sleppt að keppa þar sem hann hreppti titilinn út á einum sigrinum fleira en Alonso yrðu þeir jafnir þegar upp verður staðið í vertíðarlok.
Titilkandídatarnir hafa hlotið 116 stig hvor en þar skilur í sundur að Schumacher hefur unnið einu móti fleira, 7 gegn 6, þegar mótin í Suzuka um helgina og Sao Paulo í Brasilíu eftir hálfan mánuð eru eftir. Keppnin á lokametrum vertíðarinnar hefur vart verið jafnari um árabil.
Sams konar staða var uppi 1998, þá voru Schumacher og Mika Häkkinen hjá McLaren jafnir að stigum er tvö mót voru eftir. Í þeim hafði Häkkinen betur og vann sinn fyrsta titil. Hann vann og aftur árið eftir og Schumacher varð að bíða til þúsaldarársins til að vinna sinn fyrsta titil sem ökuþór Ferrari. Vann hann titilinn síðan fimm sinnum í röð eða þar til Alonso ók til sigurs í fyrra.
Báðir ökuþórarnir hafa allt að vinna í Suzuka. Og þeir vita að með einum mistökum eða lítilvægri bilun gæti í einu vetfangi allt það sem þeir hafa á sig lagt frá vertíðarbyrjun í mars til að vinna titilinn verið unnið fyrir gíg.
Þótt flestir telji að titilbaráttan ráðist ekki fyrr en í Sao Paulo 22. október þykir alveg ljóst að um risaslag verði að ræða í Suzuka; keppni jötna undanfarinna ára í formúlu-1. Fer vel á því að Suzuka-brautin verði kvödd með tilþrifum en frá og með næsta ári fer japanski kappaksturinn fram í Fuji-brautinni.
"Ég held fólk hafi viljað fá spennandi keppni um titilinn í ár og það er það sem því er nú boðið upp á, segir heimsmeistarinn Alonso í forspjalli Renaultliðsins fyrir Suzuka. Geta bíla beggja er mjög áþekk og því munu dekkin ráða úrslitum í lokamótunum tveimur. Michelin hefur staðið sig frábærlega vel í Suzuka nokkur undanfarin ár og ég hef góða tilfinningu fyrir helgina. Við erum fullir sjálfstraust hjá Renault og hið sama á við um þá hjá Ferrari. Við skulum því bíða og sjá hvað gerist, bætir Alonso við.
Schumacher hefur hrósað sigri oftar en nokkur annar ökuþór í Suzuka. Fyrsta sigurinn vann hann á Renault-knúnum Benettonbíl árið 1995 og fimm sinnum hefur hann komið fyrstur á mark þar á Ferraribíl.
Alonso hefur best náð þriðja sæti í Japan, en í því varð hann í fyrra. Hann segir afrekaskrá Schumacher í Suzuka ekki hrella sig neitt og vísar til þess að í fyrra tók hann tvisvar fram úr honum í keppninni þar sem var ein sú tilþrifamesta á vertíðinni.
Báðir segja Suzuka-brautina með þeim skemmtilegustu. "Hún krefst mikils af ökuþórnum, líkamlega og tæknilega. Þetta er eitt af þeim mótum sem sérhver ökuþór vill vinna það hef ég ekki enn gert, " segir Alonso.
Hvað aksturstækni varðar þá elska ég Suzuka. Brautin er frábær," sagði Schumacher í aðdraganda mótsins. "Bíllinn okkar hefur verið góður undanfarið og við verðum að sjá hvort okkur tekst að nýta dekkin eins vel og á öðrum brautum," bætti hann við.
Þótt einvígi Schumacher og Alonso sé það sem allra augu beinist að fyrir mót helgarinnar er öðrum ökuþórum áfram um að komast á verðlaunapall og jafnvel ryðja þeim úr vegi. Ferrari og Renault hafa sín á milli unnið öll mót ársins nema ungverska kappaksturinn sem Jenson Button á Honda vann. Hefur Ferrari unnið sex af síðustu sjö mótum árins.
Button og liðsfélagi hans Rubens Barrichello gætu reynst skeinuhættir í Suzuka en þar munu þeir leggja allt í sölurnar því var gætu þeir fært liði sínu betri árangur en sigur þar, í brautinni sem Hondaverksmiðjurnar eiga. Mæta þeir til leiks með nýja og mun öflugri útgáfu af mótor í bílum sínum.
Kimi Räikkönen hjá McLaren vann stórgóðan sigur í fyrra. Hóf keppni í 17. sæti en klifraði jafnt og þétt upp röðina uns hann komst fram úr Giancarlo Fisichella hjá Renault á síðasta hring. Fisichella má heldur ekki afskrifa um helgina eftir annað sætið í síðasta móti, í Sjanghæ fyrir viku.
Räikkönen tekur við sæti Schumacher hjá Ferrari á næsta ári en sæti hans hjá McLaren fyllir Alonso. McLarenþórinn stendur frammi fyrir líklega sínum besta möguleika á mótssigri á árinu, en á efsta sæti verðlaunapalls hefur hann ekki staðið frá í Suzuka fyrir ári. Með sigri myndi hann og koma í veg fyrir að McLaren fari sigurlaust frá keppnistíð í formúlunni í fyrsta sinn frá árinu 1996. Mun hann njóta stuðnings McLaren sem vill bæði losna út úr sigurþurrð en jafnframt að Alonso komi sem heimsmeistari til sín á næsta ári.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 21:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)